Fall WOW air gæti þýtt 3 prósenta samdrátt

Mögulegt fall WOW air gæti leitt til þrettán pró­senta falls krón­unnar og tveggja til þriggja pró­senta sam­dráttar í lands­fram­leiðslu. Þetta leiðir sviðs­mynda­grein­ing stjórn­valda í ljós.

Skúli Mogenssen forstjóri WOW air og eini hluthafi þess
Skúli Mog­ens­sen for­stjóri WOW air og eini hlut­hafi þess Mynd: WOW air

Gjald­þrot íslenska flug­fé­lags­ins WOW air hefði getað leitt til þess að lands­fram­leiðsla drægist saman um tvö til þrjú pró­sent og gengi krón­unnar veikt­ist um allt að 13 pró­sent á næsta ári. Þetta er á meðal helstu nið­ur­staðna sviðs­mynda­grein­ingar sem stjórn­völd unnu í lok sum­ars vegna mögu­legra áfalla í rekstri flug­fé­lags­ins. Starfs­hópur sem var skip­aður full­trúum frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu, for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og Seðla­bank­anum vann sviðs­mynda­grein­ing­una. Frá þessu er greint í Mark­aðnum, fylg­i­­riti Frétta­­blaðs­ins um við­­skipti og efna­hags­­mál, í dag.

Í grunn­s­viðs­mynd grein­ing­ar­innar var nið­ur­staðan sú að ef WOW air hefði fallið þá hefði útflutn­ingur getað dreg­ist saman um tíu pró­sent á næsta ári, verð­bólga hækk­aði á sama ári um þrjú pró­sentu­stig og færi þannig upp í hátt í sex pró­sent og um 1.400 manns bætt­ust á atvinnu­leys­is­skrá. Til sam­an­burðar voru ríf­lega 4.500 manns atvinnu­lausir hér á landi í lok ágúst­mán­aðar og Hagstofa Íslands og Seðla­bank­inn spá 2,7 pró­senta hag­vexti á næsta ári og að gengi krón­unnar hald­ist á sama tíma stöðugt.

[links]

Þann 13. júlí síð­ast­lið­inn sendi WOW air frá sér til­kynn­ingu um að félagið hefði tapað um 2,4 millj­örðum króna á árinu 2017. Þar var einnig sagt að eig­in­fjár­hlut­fall WOW air hefði verið 10,9 pró­sent um ára­mót. Allar við­vör­un­ar­bjöllur fóru á fullt, sér­stak­lega í ljósi þess að fyrir lá hversu mikið erf­ið­ari aðstæður væru orðnar á árinu 2018. Ljóst var þó að stjórn­völd höfðu áhyggjur og frá því í vor hafa þau fylgst mjög náið með stöðu félags­ins, og óform­leg sam­staða er um það að það verði að grípa inn í riði WOW air til falls. Þar sem félagið flytur 37 pró­sent allra far­þegar sem fara um Kefla­vík­ur­flug­völl yrðu áhrifin á Ísland í heild svo mikið að það megi ein­fald­lega ekki ger­ast. Þar er sér­stak­lega horft á áhrifin á greiðslu­jöfnuð.

Í umfjöllun Mark­að­ar­ins kemur fram að sam­hliða vinnu starfs­hóps­ins unnu full­trúar fjög­urra ráðu­neyta að gerð sér­stakrar við­bragðs­á­ætl­unar vegna hugs­an­legra áfalla sem upp gætu komið í rekstri fyr­ir­tækja sem talin eru kerf­is­lega mik­il­væg, þar með talið flug­fé­lag­anna Ice­landair og WOW air. Fram kemur í fund­ar­gerð fjár­mála­stöð­ug­leika­ráðs, sem ræddi meðal ann­ars stöðu íslensku flug­fé­lag­anna á fundi sínum síð­asta föstu­dag, að það sé mat ráðs­ins að mögu­leg áföll í flug­geir­anum myndu ekki ógna fjár­mála­stöð­ug­leika. 

Sumir sér­fræð­ingar sem starfs­hóp­ur­inn kvaddi til hafa hins­vegar gagn­rýndu sviðs­mynda­grein­ing­una á þeirri for­sendu að hún van­mæti mögu­leg keðju­verk­andi áhrif af gjald­þroti WOW air, sam­kvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins

Tryggði sér fjármögnun með skuldabréfauppboði

WOW air tryggði sér fjár­mögnun upp á sam­tals 60 millj­ónir evra, sem jafn­gildir 7,9 millj­örðum króna, í skulda­bréfa­út­boð­inu sem lauk um miðjan síð­asta mánuð. Skúli Mogensen er for­stjóri og eini hlut­hafi flug­fé­lags­ins en þátt­tak­endur í upp­boð­inu voru bæði erlendir og inn­lendir fjár­festar. Samkvæmt fjár­festa­kynn­ingu WOW air, sem útbúin var í aðdrag­anda skulda­bréfa­út­boðs flug­fé­lags­ins í sumar, veitti Arion banki félag­inu sex millj­óna evra lán á haust­mán­uðum síð­asta árs. Lánið, sem ber 4,3 pró­senta vexti og er á gjald­daga í sept­em­ber 2020, er eina banka­lán WOW air en fyrir utan lánið er nýleg skulda­bréfa­út­gáfa félags­ins eina lengri tíma mark­aðs­fjár­mögnun þess. Frá þessu er greint í umfjöllun Mark­að­ar­ins.

Rekstar­um­hverfi flug­fé­laga um allan heim hefur versnað til muna und­an­farið, einkum vegna mik­illar sam­keppni og hækk­andi olíu­verðs. Verð á flug­vél­elds­neyti hækk­aði um 36 pró­sent á fyrri hluta árs og og gera má ráð fyrir að verð á olíu haldi áfram að hækka út árið. Í fjár­festa­kynn­ingu félags­ins er upp­lýst um að eins pró­sents hækkun á verði á flug­elds­neyti hafi nei­kvæð áhrif á afkomu félags­ins að fjár­hæð 1,6 millj­ónir dala, jafn­virði 184 millj­óna króna. Ólíkt Icelandair og helstu keppi­nautum þeirra í Evrópu ver WOW air ekki elds­neytis­kaup sín fyrir sveiflum í olíu­verði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wowair

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár