Átökin auka vonleysi flóttamanna

For­sæt­is­ráð­herra Líbýu reynir nú að höfða til popúl­ískra afla og útlend­inga­ótta í Evrópu til að treysta stuðn­ing við rík­is­stjórn sína. Tölur um fjölda flótta­manna í land­inu eru sagðar stór­lega ýktar.

Í kjöl­far þess að líbýski stríðs­herr­ann Khalifa Haftar og her­lið hans hafa sótt fastar að Trípólí, höf­uð­borg Líbýu, hafa þau hund­ruð þús­und flótta­manna sem stödd eru í land­inu orðið að verk­færi í höndum alþjóð­lega við­ur­kenndrar rík­is­stjórnar lands­ins, sem beita þeim nú fyrir sér í til­raun til tryggja sér auk­inn stuðn­ing Evr­ópu­ríkja.

Rík­is­stjórn Fayez al-Sarraj hefur spilað inn á vax­andi útlend­inga­andúð og þjóð­ern­ispopúl­isma í Evrópu með því að vara við að verði ekk­ert að gert muni átta hund­ruð þús­und flótta­menn flæða frá land­inu og yfir til Evrópu. Í þeim hópi væru ekki ein­göngu fólk sem vildi kom­ast til Evrópu í von um betra líf heldur einnig með­limir hins svo­kall­aða Íslamska ríkis sem hefðu verið hraktir frá borg­inni Sirte fyrir þremur árum.

Það er ekki að ástæðu­lausu að rík­is­stjórnin hefur brugðið á þetta ráð. Und­an­farin ár hafa popúl­ískir flokkar sem ala á ótta og andúð í garð inn­flytj­enda styrkt stöðu sína í Evrópu. Eitt skýrasta dæmið um það er þegar núver­andi rík­is­stjórn á Ítalíu tók við völdum árið 2018. Ítalska rík­is­stjórnin, með Norð­ur­banda­lag Matteo Salvini inn­an­borðs, hefur barist gegn því að flótta­menn kom­ist til Ítalíu frá ríkjum Norður-Afríku með því að meina skipum sem bjargað hafa flótta­mönnum, sem lagt hafa af stað yfir hafið, að leggj­ast að bryggju í ítölskum höfnum. Það hefur valdið því að þessi sömu skip hafa verið föst á hafi úti í allt að tvær vikur í leit að landi sem til­búið er að taka við flótta­mönn­unum – sem virð­ist verða sífellt erf­ið­ara.

Gæti þýtt færri flóttamenn

Þessar tölur al-Sarraj um fjölda flótta­manna eru síður en svo óum­deildar. Matteo Villa, sem starfar fyrir Italian Institute for Political Studies, segir að orð for­sæt­is­ráð­herr­ans séu ein­göngu örvænt­ing­ar­full til­raun til að vekja ótta hjá vest­rænum, og ekki síst ítölskum stjórn­völdum og tryggja sér þannig stuðn­ing þeirra. „Það eru ekki einu sinni átta hund­ruð þús­und flótta­menn í Líbýu,” segir hann og Læknar án landamæra telja ómögu­legt að áætla hversu margir flótta­menn muni leggja af stað frá Líbýu til Evrópu í von um betra líf.

En orð al-Sarraj dugðu til að ná eyrum ítal­skra stjórn­valda. Giuseppe Conte, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, sagði á fundi með stuðn­ings­mönnum rík­is­stjórnar al-Sarraj, að koma þyrfti í veg fyrir krísu sem gæti stór­skaðað Ítalíu og Evr­ópu­sam­bandið. Það gæti jafn­vel komið líbýsku þjóð­inni til góða.

Aftur á móti bendir Villa á að óstöð­ug­leiki hafi hingað til valdið því að færri flótta­menn hafi lagt af stað yfir hafið. Aðal­á­stæða þess sé að þeir sem skipu­leggja smygl á fólki séu oftar en ekki skæru­liðar og þegar bar­dagar brjót­ast út séu þeir þátt­tak­endur í þeim.

Fólk í vanda fær ekki hjálp

Líkt og Ítalía hafa önnur Evr­ópu­ríki reynt að koma sér hjá því að taka á flótta­manna­vand­anum. Á und­an­förnum árum hefur Evr­ópu­sam­bandið dælt tugum millj­óna evra til líbýsku land­helg­is­gæsl­unnar og á sama tíma hefur ábyrgð á björgun flótta­manna leynt og ljóst verið komið yfir á alþjóð­leg hjálp­ar­sam­tök. Land­helg­is­gæsla Líbýu seg­ist á und­an­förnum árum hafa stöðvað um það bil fimmtán þús­und flótta­menn undan ströndum lands­ins.

Það er því kannski ekki skrýtið að flótta­menn sem sitja í flótta­manna­búðum í Líbýu veigri sér við að leggja af stað yfir hafið. Ekki ein­ungis er ferðin frá ströndum Norður-Afríku gríð­ar­lega hættu­leg heldur á það líka á hættu að vera hand­samað af líbýskum stjórn­völdum. Craig Kenzie sem starfar fyrir Læknar án landamæra segir að sam­tökin hafi sér­stakar áhyggjur af þeim sem leggja af stað yfir hafið núna því skortur sé á björg­un­ar­sveitum. „Ef fólk lendir í vanda á leið sinni er lík­legt að ekki verði hægt að koma þeim til bjargar,“ segir hann.

Samkvæmt tölum landamæra­gæslu Evrópu, Frontex, hafa innan við fimm hund­ruð flótta­menn kom­ist frá Alsír, Túnis og Líbýu yfir til Evrópu á þessu ári. Á sama tíma greina alþjóð­leg sam­tök frá því að 409 hafi látið lífið á för sinni frá þessum löndum.

Alið á ótta

[links]Segja má að al-Sarraj fylgi með ummælum sínum um flótta­manna­vand­ann sem Evrópa gæti staðið frammi fyrir, að vissu leyti í fót­spor Ahmed Ouyahia, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Alsír. Ouyahia sagði við upp­haf mót­mæl­anna þar í landi að stríðið í Sýrlandi hefði einnig haf­ist með frið­sömum mót­mælum. Þó að aðstæð­urnar séu vissu­lega ólíkar og að orðum Ouyahia hafi verið beint að alsírskum almenn­ingi, fremur en Evr­ópu­búum, er ljóst að vald­hafar í norður Afríku reyna í auknum mæli að spila á ótta og til­finn­ingar fólks í þeirri von að treysta völd sín.

Þessi orð al-Sarraj koma einnig í kjöl­far þess að rík­is­stjórn hans hefur hægt og rólega misst stuðn­ing á alþjóð­legum vett­vangi. Stuðn­ingur ýmissa arabaríkja, Banda­ríkj­anna og í síauknum mæli Rúss­lands og Frakk­lands við Khalifa Haftar og her­sveitir hans hefur enda auk­ist und­an­farin miss­eri. Þó að staðan í land­inu sé að mörgu leyti óljós, sér­stak­lega í ljósi þess að gíf­ur­legt magn rangra upp­lýs­inga berst frá báðum fylk­ingum, má það þó telj­ast ljóst að sókn Haftar að Trípólí kemur í kjöl­far þess að hann hefur tryggt sér nægi­legan alþjóð­legan stuðn­ing til að reyna að ná borg­inni á sitt vald.

Staðan er tvísýn

Frönsk stjórn­völd – en Frakk­land er það Evr­ópu­ríki sem stendur næst Haftar og hers hans – segj­ast ekki hafa vitað af fyr­ir­ætl­unum Haftars um að ráð­ast að Trípólí. En rík­is­stjórn al-Sarraj til­kynnti samt sem áður nýverið að hún hefði klippt á öll sam­skipti við Frakk­land vegna stuðn­ings og tengsla lands­ins við Khalifa Haftar.

Kenn­ingar um að Frakkar hafi bein afskipti af átök­unum fengu svo með­byr nýverið þegar hópur vopn­aðra franskra rík­is­borg­ara var hand­tek­inn þegar þeir reyndu að kom­ast yfir landa­mærin til Túnis. Auk vopna fund­ust á hópnum sam­skipta­tæki sem sögð eru tengd við her­sveitir Haftar. Samkvæmt nafn­lausum heim­ild­ar­manni úr tún­íska stjórn­kerf­inu, sem Al Jazeera vitnar til, er hóp­ur­inn á vegum frönsku leyni­þjón­ust­unnar. Því neita Frakkar og segja að menn­irnir, sem höfðu diplómat­ísk vega­bréf, séu verðir úr franska sendi­ráð­inu og að för þeirra yfir landa­mærin hafi verið hluti af hefð­bundnum flutn­ingum starfs­manna sendi­ráðs­ins.

Staða lands­ins er með öðrum orðum tví­sýn; þar sem Sádí-Arabía, Jórdanía, Egypta­land, Frakk­land, Rússland og Banda­ríkin styðja, leynt eða ljóst, her­sveitir Khalifa Haftar og Bretland, Ítalía og fleiri ríki styðja rík­is­stjórn al-Sarraj. Staðan sem upp er komin eykur enn á óviss­una sem flótta­menn­irnir, sem flúið hafa yfir Sahara eyði­mörk­ina í leit sinni að betra lífi í Evrópu, hafa þurft að lifa við.

Þrælasalar helsta ógnin

Það er lýsandi fyrir því hversu von­laus staða flótta­mann­anna er að þrátt fyrir að vera staddir í flótta­manna­búðum við fremstu víg­línu og þrátt fyrir að frá­sagnir ber­ist af því að þeir hafi verið neyddir til að taka afstöðu í átök­unum og að taka þátt í þeim þá segja þeir styrj­öld­ina ekki vera þeirra helsta áhyggju­efni.

Sína helstu ógn segja þeir snúa að þræla­sölum og smygl­urum. Þeir kúgi þá, hækki upp­sett verð fyrir flutn­ing­ana og setji það ekki fyrir sig að beita hand­rukk­unum og nauðg­unum geti fólk ekki greitt þeim. Jafnvel þeir sem geta greitt smygl­ur­unum eru ekki bjart­sýnir á að kom­ast yfir hafið. „Ég held það sé ekki hægt að kom­ast til Evrópu,“ sagði ung­lingur staddur í Abu Salim-búð­unum við blaða­mann Al Jazeera.

Þeirra helsta von er að lifa við öryggi, en bjart­sýnin minnkar með hverjum deg­inum og að kom­ast yfir Mið­jarð­ar­hafið er þeirra eina von um að losna úr greipum þræla­sölum og smygl­urum. En eins og Craig Kenzie hjá Læknum án landamæra bendir á þá er það ekki glæpur að leita að öryggi en á meðan ekki er meira lagt í björg­un­ar­að­gerðir á Mið­jarð­ar­haf­inu er ólík­legt að þeim verði að ósk sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár