Ekkert nýtt úr gömlu

Ekkert lát er á mót­mælum almenn­ings í Alsír. Eftir að for­set­inn lét af völdum hefur reiði mót­mæl­enda beinst að ráð­herrum og öðrum valda­mönnum.

„Við getum ekki haldið kjafti lengur,“ sögðu alsírskar konur sem á Alþjóð­legum bar­áttu­degi kvenna þann átt­unda mars, flykkt­ust út á götur í Alsír og hófu upp raust sína innan um aðra mót­mæl­endur. Ólíkt fyrri bar­áttu­dögum kvenna í Alsír voru engir söngv­arar á veit­inga­stöðum, og engin blóm gefin til við­skipta­vina. „Í dag munu kon­urnar ekki dansa heldur láta mál­stað sinn heyr­ast,“ sagði hin 24 ára Malia við blaða­mann Le Monde þar sem hún sat með móður sinni, Malika, á gang­stétt. Báðar voru þær með bros á vör. Souhila, sem var mætt með tveimur dætrum sínum seg­ist spyrja sig hvernig sam­fé­lag hún vilji skilja eftir fyrir dætur sínar.

Þetta var vísir að því sem koma skyldi í mót­mæl­unum sem hófust þegar Abdelaziz Bouteflika for­seti Alsír til­kynnti að hann myndi bjóða sig fram í fimmta sinn. Mótmæli kvenn­ana eru til marks um sam­heldni mót­mæl­enda sem sýna ekki á sér neitt far­ar­snið þó að Bouteflika hafi nú sagt af sér. Fólkið sem safn­ast nú saman á götum Alsír krefst bæði stjórnar- og sam­fé­lags­breyt­inga. En þó að mót­mælin hafi að mestu leyti farið frið­sam­lega fram leyn­ist undir niðri ótti sem fáir vilja ljá orðs á. Mest­allan tíunda ára­tug­inn og fram yfir alda­mót geis­aði blóðug borg­ara­styrj­öld í land­inu og margir eru hræddir að mót­mælin muni leiða til átaka. „Óttinn er enn til staðar,“ segir Malika en bætir því við að það veiti fólki von að sjá hversu frið­sam­leg mót­mælin hafa verið.

[box]

Mótmælin halda áfram

Eftir að mót­mælin hófust reyndi Bouteflika að lægja öld­urnar með því að draga fram­boð sitt til baka en frestaði um leið kosn­ing­unum sem fara áttu fram nú í apríl en það fór illa í almenn­ing sem hélt ótrauður áfram að mót­mæla. Annan apríl síð­ast­lið­inn sagði hann svo óvænt af sér, en allt hefur komið fyrir ekki og mót­mælin hafa haldið áfram. Nú er talið lík­leg­ast að Abdelka­dir Bensalah, for­seti efri deildar alsírska þings­ins muni taka við sem bráða­birgða­for­seti. Það verður þó að telj­ast ólík­legt að það muni slá á óánægju þjóð­ar­innar.

[adspot]Bensalah, auk for­sæt­is­ráð­herr­ans Nouredine Bedoui og Tayeb Belaiz, for­manni stjórn­ar­skrár­nefndar Alsír til­heyra hópi sem mót­mæl­endur hafa kallað „B-in þrjú”. Í kjöl­far afsagnar Bouteflika hafa „B-in þrjú” orðið að skot­spóni mót­mæl­enda sem þykja þre­menn­ing­arnir vera tákn­myndir vald­níðsl­unnar og spill­ing­ar­innar sem ríki innan stjórn­kerf­is­ins. Þess utan þykja þeir standa Bouteflika of nærri og vera of inn­vinkl­aðir í stjórn­kerfið til að geta orðið hluti af nýju Alsír. Eða eins og einn mót­mæl­enda sagði þá „gerir maður ekki nýtt úr gömlu.”

Það er kannski til marks um trú alsírks almenn­ings á að stjórn­völd muni gera breyt­ingar að á Twitter gengur sá brand­ari að Bouteflika sé nú í óða önn að semja við bræður sína um það hver muni taka við for­seta­stólnum. Samkvæmt lögum verður þó að kjósa nýjan for­seta innan þriggja mán­aða frá því að for­seti segir af sér en enn hefur ekki verið boðað til kosn­inga. En það er ljóst að eftir hátt í 60 ár af sjálf­stæði er ljóst að alsírska þjóðin hefur loks kom­ist að því hvernig stjórn­kerfi hún vill og mun ekki slá af kröfum sínum.

Viðkvæm staða

Mörgum Alsír­ingum hefur þótt þögn hers­ins og aðgerða­leysi hans í mót­mæl­unum vera hávær, og ótt­ast að mót­mælin muni leiða af sér átök milli hópa með ólíka fram­tíð­ar­sýn lands­ins. Þeir telja þögn hers­ins vera til marks um að hann ætli að leyfa ástand­inu í land­inu að versna í þeim til­gangi að geta tekið yfir stjórn lands­ins.

Það er eðli­legt að Alsír­ingar ótt­ist margir að mót­mælin muni leiða til átaka. Landið var stærstan hluta tíunda ára­tug­ar­ins og fram á 21. öld­ina þjakað af borg­ara­styrj­öld þar sem her lands­ins barð­ist gegnum íslömskum öfga­hópum. Eftir arab­íska vorið, sem átti að sá fræjum frelsis og lýð­ræðis í araba­heim­inu, haustaði einnig snemma í Sýrlandi og nágranna­land­inu Líbýu eftir að arab­íska vorið hófst, þó að lýð­ræði hafi að ein­hverju leyti náð að skjóta rótum í Túnis.

Leiða má að því líkum að ein­hverjum strang­trú­ar­mönnum á Alsír svíði enn þá tapið í borg­ara­styrj­öld­inni og muni nýta sér mót­mælin og mögu­legar sam­fé­lags­breyt­ingar sem skálka­skjól til að við sig fylgi. Það gerð­ist til að mynda í Túnis þar sem þús­undir gengu til liðs við Íslamska ríkið í kjöl­far arab­íska vors­ins.

Þó að kröfur bók­stafs­trú­ar­fólks hafi ekki verið háværar í mót­mæl­unum hafa þau verið nátengd trú­ar­sam­fé­lag­inu. Flest mót­mælin hafa átt sér stað eftir föstu­dags­bænir og klerkar hafa hvatt sókn­ar­fólk sitt til að mót­mæla stjórn­völdum. Þá hafa fámennir hópar meðal mót­mæl­enda kallað eftir því að í land­inu verði tekin upp íslömsk sjaría-lög.

Stjórn­mála­menn voru einnig óhræddir við að nota stríðið í Sýrlandi og önnur átök í kjöl­far arab­íska vors­ins til að hræða mót­mæl­endur. Ahmed Ouyahia, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra sem sagði af sér skömmu eftir að mót­mælin hófust, reyndi að hræða mót­mæl­endur með því að stríðið í Sýrlandi hefði líka byrjað með frið­sam­legum mót­mælum.

Almenn­ingur hefur hins­vegar látið þann áróður sem vind um eyru þjóta og flykk­ist enn út á götur lands­ins. Saga lands­ins og návígi þess við sterk vígi íslamskra öfga­manna í Líbýu, Malí og Túnis gera það hins­vegar að verkum að lítið má út af bregða. Leiði mót­mælin til átaka getur landið orðið að próf­steini á það hvort að ISIS sam­tökin standi jafn höllum fæti og sagt er. En hvernig sem fer er ljóst að Alsír er statt á mjóum fjalls­hrygg og á honum getur það ekki staðið til langs tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár