„Það er svo mikið sem við getum sagt með líkamanum“

Matthea Lára Pedersen var aðeins 19 ára gömul þegar hún byrjaði að vinna sem atvinnu­dansari. Hún hefur hugrekki að leiðar­ljósi og hvetur fólk til þess að sækja tækifærin sem það langar í.

Matthea Lára Pedersen
Matthea Lára Pedersen Er atvinnu­dans­ari og hefur starfað sem slíkur frá 19 ára aldri. Mynd: Johannes Hjorth

Matthea Lára Pedersen er atvinnu­dansari, búsett í Utrecht í Hollandi. Síðustu ár hefur hún dansað með fremstu dans­flokkum heims og unnið víðs vegar um Evrópu. Hún segir listir mikil­vægar og hvetur fólk til þess að fylgja forvitninni sinni. Um þessar mundir dansar hún í óperu­sýningu í þýsku borginni Hanover.

Dansari

Matthea Lára PedersenFlutti til Sví­þjóðar 16 ára gömul ásamt for­eldrum sínum og stund­aði nám við Kon­ung­lega sænska ball­ett­skól­ann.

Matthea fór á sína fyrstu ballett­æfingu aðeins þriggja ára gömul en man fyrst eftir sér í hiphop og djass­dansi í Dansskóla Birnu Björns. Þegar hún var 11 ára gömul ákvað hún að prófa tíma í List­dansskóla Íslands eftir samræður við eldri bróður sinn, atvinnu­dansarann Frank Fannar Pedersen. „Við fundum gamla ballett­búninga af mömmu sem voru alveg upp í háls og opnir niður í bak,“ segir Matthea og brosir. …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár