Færri treysta Sjálfstæðisflokknum fyrir innflytjendamálum

Færri telja Sjálf­stæð­is­flokk­inn bestan til þess fall­inn að leiða inn­flytj­enda­mál á Íslandi en í fyrra og fyrir þremur árum. Þetta kemur fram í könnun MMR á því hvaða stjórn­mála­flokka fólk telur best til þess fallna að leiða ákveðna mála­flokka.

Flestir treysta flokknum þó enn fyrir mála­flokknum, en 25,6 pró­sent svar­enda töldu Sjálf­stæð­is­flokknum best treystandi fyrir inn­flytj­enda­málum. Þegar MMR spurði sömu spurn­ingar í jan­úar í fyrra sögðu 32 pró­sent að flokknum væri best treystandi. Í jan­úar 2012 töldu 41,4 pró­sent Sjálf­stæð­is­flokk­inn bestan til að leiða inn­flytj­enda­mál.

20,3 pró­sent svar­enda treystu Sam­fylk­ing­unni best fyrir inn­flytj­enda­málum, 14,9 pró­sent Bjartri fram­tíð, 13,8 pró­sent Fram­sókn­ar­flokknum og 13,5 pró­sent Pírötum. 11,9 pró­sent svar­enda töldu Vinstri græn best til þess fallin að leiða inn­flytj­enda­mál.

Treysta Pírötum fyrir rannsókn á tildrögum bankahruns


Fjórð­ungur þeirra sem svör­uðu sögð­ust telja Pírata best til þess fallna að leiða rann­sókn á til­drögum banka­hruns­ins. Næst­flestir treysta Sjálf­stæð­is­mönnum og Vinstri grænum fyrir því, 19,1 og 19 pró­sent. Þá treysta 14,3 pró­sent Bjartri fram­tíð fyrir verk­efn­inu og 13,9 pró­sent Sam­fylk­ing­unni. Fæstir treysta Fram­sókn­ar­flokknum helst fyrir rann­sókn á til­drögum banka­hruns­ins, eða 8,8 pró­sent.

Þá segj­ast flestir telja Sam­fylk­ing­unni best treystandi til að leiða samn­inga um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, eða 39 pró­sent. 24,2 pró­sent treysta Sjálf­stæð­is­flokknum best fyrir Evr­ópu­sam­bands­málum, og 12,4 pró­sent Fram­sókn­ar­flokknum. 11,5 pró­sent telja Bjarta fram­tíð besta til að leiða samn­inga um aðild að ESB, 7,4 pró­sent VG og 5,6 pró­sent treysta Pírötum best fyrir verk­efn­inu.

Þá seg­ist fjórð­ungur treysta Sjálf­stæð­is­flokknum best fyrir end­ur­skoðun á stjórn­ar­skránni en 19,5 pró­sent Pírötum. 17,5 pró­sent treysta Sam­fylk­ing­unni og 15,7 pró­sent Bjartri fram­tíð. 12,4 pró­sent treysta Vinstri grænum best fyrir end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar en fæstir treysta Framsókn fyrir henni, eða 9,4 pró­sent.

MMR spurði 933 ein­stak­linga í könn­un­inni 9. til 14. jan­úar, en hafa verður í huga að vik­mörk í könnun þar sem um það bil 1000 manns eru spurðir geta verið allt að 3,1 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár