Endurgreiðslubeiðnir til Skattsins fjórfaldast á milli ára

Meðal ráð­staf­ana sem gripið var til vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins var hækkun á end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts úr 60 í 100 pró­sent auk þess sem end­ur­greiðslu­heim­ildir voru útvíkk­aðar. Afgreiddar end­ur­greiðslur vegna bíla­við­gerða nema 25 millj­ónum króna.

Frá því maí síð­ast­liðnum hafa rúm­lega 14 þús­und umsóknir um end­ur­greiðslur virð­is­auka­skatts borist Skatt­inum. Frá til og með ágúst í fyrra bár­ust Skatt­inum sam­tals 3.542 slíkar beiðnir svo þær hafa fjór­fald­ast á milli ára. Þetta kemur fram í svari Skatts­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts.

Meðal þeirra ráð­staf­ana sem stjórn­völd hafa gripið til í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins er að hækka end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts tíma­bundið úr 60 pró­sentum upp í 100 pró­sent vegna end­ur­bóta á íbúð­ar­hús­næði sem og að útvíkka end­ur­greiðslu­heim­ild­irnar. Nú fæst til dæmis virð­is­auka­skattur sem greiddur hefur verið vegna vinnu við bíla­við­gerðir og heim­il­is­hjálp og -þrif að fullu end­ur­greiddur.

Rúmlega 18.500 endurgreiðslubeiðnir í ár

Í svari Skatts­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um end­ur­greiðslur virð­is­auka­skatts segir að frá því í jan­úar 2020 hafi borist rúm­lega 18.500 end­ur­greiðslu­beiðnir vegna allra end­ur­greiðslu­þátta. Í fyrra hafi 6.340 end­ur­greiðslu­beiðnir borist Skatt­inum frá 1. jan­úar út ágúst. „Athuga þarf í þessu sam­bandi að end­ur­greiðslu­beiðnir geta varðað kostnað sem fellur til eitt­hvað fyrr en beiðnin berst. Þannig voru 13.784 beiðnir vegna kostn­aðar á árinu 2020 og 3.740 vegna kostn­aðar á árinu 2019,“ segir í svar­inu. Restin, um þús­und beiðnir hafi verið fyrir kostnað sem féll til enn fyrr.

Ef litið er til þrengra tíma­bils, þá hefur Skatt­inum borist rúm­lega 14 þús­und umsóknir um end­ur­greiðslur af ýmsu tagi frá því í maí, sam­kvæmt svari Skatts­ins. Í fyrra nam fjöldi end­ur­greiðslu­beiðna frá maí til og með ágúst um 3.500. Fjöldi umsókna hefur því fjór­fald­ast á milli ára á tíma­bil­inu.

25 milljóna endurgreiðsla vegna bílaviðgerða

Útvíkkun á end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts sem tók gildi fyrr í ár náði meðal ann­ars til end­ur­greiðslu á vinnu vegna bíla­við­gerða. Í svari Skatts­ins segir að umsóknir vegna bíla­við­gerða séu orðnar rúm­lega 5.200 tals­ins. Á þriðju­dag var búið að afgreiða 1.631 umsókn sam­tals að fjá­hæð rúm­lega 25 millj­óna króna.

Vegna end­ur­bóta og við­halds hús­næðis hefur Skatt­inum borist alls um 12 þús­und umsóknir frá upp­hafi árs, þar af hafa um 8 þús­und umsóknir borist frá 1. maí. „Á árinu 2020 er búið að afgreiða 12.369 umsóknir vegna end­ur­bóta og við­halds, þar af 3.434 vegna kostn­aðar sem féll til á árinu 2020. End­ur­greiðslur sam­kvæmt umsóknum vegna kostn­aðar 2020 sam­kvæmt þessum 3.434 umsóknum nema 469.745.335 kr,“ segir í svari Skatts­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár