Bókabræður – í minningu skapandi bókaútgefanda

Á unglings­árum fékk ég vinnu á bókalager Vöku-Helga­fells fyrir jólin. Þar var eldri maður í bláum vinnu­sloppi sem prílaði eins og apaköttur upp himinháa bókarekka og tefldi þess á milli. Þarna voru líka tveir bræður, oft í eins fötum, sem aðstoðuðu hann við að moka bókum út í jóla­bókaflóðið: Kjartan Örn og Ragnar Helgi. Foreldrar þeirra ráku Vöku-Helgafell; Ólafur Ragnarsson, fyrr­verandi frétta­maður, og Elín Bergs, sem var svo smart í buxna­dragt að mér fannst hún vera Marlene Dietrich.

Þau höfðu stofnað útgáfuna Vöku og síðar keypt gamla Helgafell sem Ragnar í Smára stofnaði – en hjónin voru á ýmsan hátt frumkvöðlar í bóka­útgáfu og fjár­mögnuðu safn­útgáfur stór­skálda með ýmiss konar bóka­klúbbum og janvel með aðstoð frá sjálfum Andrési önd.

Bræðurnir störfuðu við útgáfuna, í og með, fram yfir unglingsár. Síðar komu þeir að bóka­útgáfu með ólíkum hætti. Ragnar Helgi er í dag einn dáðasti bóka­kápu­hönnuður landsins, auk þess að vera annar forsvars­maður bóka­útgáfunnar Tunglsins og sjálfur rithöfundur. Kjartan Örn starfaði um árabil hjá útgáfu­risanum Random House í New York en er í dag framkvæmda­stjóri Transition Labs. Þeir voru til í rabb um upphaf nútímans í íslensku útgáfu­landslagi og við hittumst á Kaffi Rósenberg.

Þegar ég minnist liðuga öldungsins grípur Kjartan orðið:

Kjartan: Böðvar Pétursson var aldurs­forseti bóka­útgáfunnar. Hann var bæði umtals­vert eldri en samstarfs­fólkið og hafði starfað hjá Helga­felli allt frá árinu 1949. Ég man …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár