Vinnuregla að forsætisráðherra fari ekki nema vera sérstaklega boðið

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir það vinnu­reglu í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu að ráð­herr­ann sé „aldrei sendur nema honum sé sér­stak­lega boðið.“ Þetta sé vegna þess að mjög margar upp­á­komur væru þess virði að sækja og nauð­syn­legt hefði verið að tak­marka slíkt.

Þetta sagði for­sæt­is­ráð­herra í við­tali við Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni í dag, í umræðum um hvers vegna hann fór ekki á sam­stöðu­fund vegna hryðju­verk­anna í París. Hann sagði að hann hefði gjarnan viljað hafa haft tæki­færi til þess að mæta. „Eftir að varð ljóst hvers eðlis væri var orðið of seint að kom­ast á stað­inn,“ sagði hann.

Hann tók undir margt af því sem kom fram í yfir­lýs­ingu frá ráðu­neyt­inu í dag, um að eftir á að hyggja hefði verið betra að ein­hver æðstu ráða­manna þjóð­ar­innar hefði mætt.

Umræðan skrýtin


Sig­mundur Davíð sagði jafn­framt að umræðan um fjar­veru hans hefði um margt verið skrýtin. „Það ger­ist allt of oft þegar upp koma ein­hver alvar­leg mál, sem eiga að vekja okkur til umhugs­unar um mikil grund­vall­ar­at­riði, þá snýst umræðan allt of mikið um eitt­hvað á yfir­borð­inu. Eitthvað sem leiðir umræð­una jafn­vel út í móa. Það er nú það versta við þetta ef þetta hefur orðið til þess að leiða umræðu frá ýmsum mik­il­vægum álita­efnum eitt­hvað allt annað.“

Hann sagð­ist hafa fylgst mikið með umræðu í kjöl­far hryðju­verk­anna, meðal ann­ars hvað varðar tján­ing­ar­frelsi, ekki síst í erlendum fjöl­miðlum. Þar væri talað um að menn þori ekki að ræða hvað sem er á Vest­ur­löndum. Spurður að því hvort hann sæi til­hneig­ingu til þessa í okkar sam­fé­lagi sagði Sig­mundur Davíð margt minna á þessa gagn­rýni og umræðu um stöðu tján­ing­ar­frelsis. „Það er að segja, það er eins og það sé alltaf að þrengj­ast ramm­inn um það hvað megi ræða og rök­ræða sé meira að segja bönnuð um ákveðna hluti. Og ég er svo­lítið hræddur um að þessir full­trúar stjórn­ar­and­stöð­unnar sem voru að spyrja eitt­hvað út í þessa hluti í gær, ég er svo­lítið hræddur um að þeir sjái fyrir sér að ramm­inn þreng­ist frekar en að hann opn­ist. Nema kannski Pírat­arnir, sem hafa verið svo­lítið dug­legir, sumir hverjir að minna á mik­il­vægi tján­ing­ar­frels­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár