Vilja afnema refsingu fyrir að móðga erlenda þjóðhöfðingja

Frumvarp hefur verið lagt fyrir Alþingi.

Sex þing­menn Vinstri grænna hafa lagt fram frum­varp um breyt­ingu á almennum hegn­ing­ar­lögum þannig að ekki verði lengur refsi­vert sam­kvæmt íslenskum lögum að móðga erlenda þjóð­höfð­ingja.

Í hegn­ing­ar­lög­unum er nú grein sem kveður á um að hver sem opin­ber­lega smánar erlenda þjóð eða erlent ríki, æðsta ráða­mann, þjóð­höfð­ingja þess eða fána eigi að sæta sektum eða fang­elsi allt að tveimur árum.

Þing­menn­irnir leggja fram frum­varpið á nýjan leik, en það var lagt fyrir á síð­asta þingi líka. „Á und­an­förnum miss­erum hefur tals­vert verið þrengt að tján­ing­ar­frelsi víða um heim. Frelsi blaða­manna hefur verið skert og stjórn­völd í ein­stökum ríkjum hafa reynt að upp­ræta gagn­rýna umræðu, jafn­vel yfir landa­mæri,“ segir í grein­ar­gerð þing­mann­anna. Tekið er dæmi af máli þar sem þýsk stjórn­völd létu undan þrýst­ingi frá Tyrk­lands­stjórn og heim­il­uðu mála­ferli gegn grínista sem hafði farið óvirðu­legum orðum um Erdogan for­seta Tyrk­lands. Ákvörðun þýskra stjórn­valda hafi verið mjög umdeild og álits­hnekkir fyrir stjórn­völd, en hún bygg­ist á lögum sem gilda þar og fela í sér refs­ingar við því að smána erlenda þjóð­höfð­ingja eða ríki.

„95. gr. almennra hegn­ing­ar­laga felur í sér afar hörð við­ur­lög við því að smána erlend ríki, þjóð­höfð­ingja eða þjóð­ar­tákn á borð við fána. Þá er til­tekið að óheim­ilt sé að ráð­ast gegn sendi­er­ind­rekum með ofbeldi eða valda eign­ar­spjöllum á sendi­ráðum eða lóðum þeirra. Laga­á­kvæðum sem standa eiga vörð um sóma erlendra þjóð­höfð­ingja hefur sjaldan verið beitt hér á landi og enn sjaldnar fallið dómar á grunni þeirra. Þau fáu til­vik hafa þó síst verið landi og þjóð til sóma. Þannig hlaut rit­höf­und­ur­inn Þór­bergur Þórð­ar­son dóm fyrir að kalla Adolf Hitler blóð­hund og skáldið Steinn Steinarr fyrir að smána haka­kross­fána þýska nas­ista­flokks­ins. Óhætt er að segja að sagan hafi farið mjúkum höndum um þau afbrot,“ segir enn fremur í grein­ar­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár