Harpa Jónsdóttir nýr framkvæmdastjóri LSR

Harpa Jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs Seðla­banka Íslands, hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri LSR – Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins, stærsta og elsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins.

Harpa Jónsdóttir
Harpa Jóns­dóttir Mynd: Hringbraut

Harpa Jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs Seðla­banka Íslands, hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri LSR – Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins, stærsta og elsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins. Hún tekur síð­sum­ars við af Hauki Haf­steins­syni sem verið hefur fram­kvæmda­stjóri sjóðs­ins frá 1985 eða í 34 ár sam­fleytt. Frá þessu er greint í frétt LSR.

Haukur, sem stýrt hafði Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins í 34 ár, ákvað að láta af störfum í sum­ar. Hann til­kynnti þetta á starfs­manna­fundi í byrjun mars. LSR er stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins og þar með stærsti fag­fjár­festir í íslensku atvinnu­lífi. Sjóð­ur­inn er til að mynda á meðal stærstu eig­enda flestra skráðra félaga á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði.

Harpa er með BS-gráðu í stærð­fræði frá Háskóla Íslands og meist­ara- og dokt­ors­próf í verk­fræði frá Tækni­há­skóla Dan­merkur með tímaraða­grein­ingu, töl­fræði og vatna­fræði sem sér­svið.

Í frétt LSR kemur fram að Harpa sé reyndur stjórn­andi með víð­tæka þekk­ingu á íslensku fjár­mála­kerfi og hafi átt mikil alþjóð­leg sam­skipti á sviði fjár­mála fyrir hönd Seðla­bank­ans. Hún hafi sem fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs borið meg­in­á­byrgð á að meta áhættu og veik­leika í fjár­mála­kerf­inu og marka stefnu um þjóð­hags­varúð og eft­ir­lit með lausu fé. Hún rit­stýri skýrslu bank­ans um fjár­mála­stöð­ug­leika.

Capacent ásamt sér­stakri val­nefnd innan stjórnar LSR hélt utan um ráðn­ing­ar­ferli nýs fram­kvæmda­stjóra, stjórnin tók síðan ákvörðun um ráðn­ing­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár