Vaxtabótakerfið fyrir tekjulægri sem var yfirgefið

Árið 2013 voru greiddir 9,1 millj­arður króna á þávirði í hús­næð­is­stuðn­ing í gegnum vaxta­bót­ar­kerfið, sem miðað er að tekju­lægri og eigna­minni hópum sam­fé­lags­ins. Í fyrra fengu heim­ili lands­ins um tvo millj­arða króna í vaxta­bætur.

Vaxta­bóta­kerfið er sú leið sem lengi vel var notuð til að miðla hús­næð­is­stuðn­ingi úr opin­berum sjóðum til íslenskra heim­ila. Kerfið var inn­leitt, ásamt greiðslu barna­bóta, af vinstri stjórn Fram­sókn­ar­flokks, Alþýðu­flokks og Alþýðu­banda­lags árið 1988 og var ætlað að létta á greiðslu­byrði ungs fjöl­skyldu­fólks. 

Það er þannig upp­byggt að stuðn­ing­ur­inn lendir frekar hjá tekju­lægri heim­ilum og ungu fólki, enda vaxta­bæt­urnar bæði tekju- og eigna­tengdar. Því hærri tekjur sem við­kom­andi er með, og því meiri eignir sem hann hefur kom­ist yfir, því minna fær hann í vaxta­bætur. 

Síðustu tæpu tvo ára­tugi hefur mark­visst verið grafið undan þessu hús­næð­is­stuðn­ings­kerfi. Fyrst með því að láta skerð­ing­ar­mörk ekki fylgja þróun íbúða­verðs, sem hefur marg­fald­ast, og síðan með því að setja áhersl­una á miðlun hús­næð­is­stuðn­ings á kerfi skatta­af­sláttar þeirra sem safna og nýta sér­eign­ar­sparnað til að borga niður íbúða­lán sín, sem eru aðal­lega tekju­hæstu hópar sam­fé­lags­ins, undir hatti Leið­rétt­ing­ar­innar. 

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Allt með velþókknun Vinstri grænna sem þegar allt kemur til alls reynist vera hægri flokkur.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár