Teikn­ingar barna Hryll­ing­ur­inn sem flótta­menn­irnir hafa upp­lifað birt­ist í mynd­unum sem börnin teikna. Mynd: Benjamín Julian

Flóttinn stöðvaður

Benjamín Julian hefur undan­farið hjálpað flótta­mönnum sem koma til Grikk­lands á flótta frá vondum aðstæðum. Hann skrifar um hvernig ríkið bregst flótta­mönnum og snýst gegn sjálfboða­liðum. Þeir sem veita flótta­mönnum hjálpar­hönd eru áreittir af yfir­völdum og jafnvel ákærðir fyrir alvarlega glæpi.

Síðasti afmælis­dagurinn minn var einn sá fallegasti sem ég hef átt. Það var Menningar­nótt og vinir mínir voru með mér í tjaldi þar sem við dönsuðum, spjölluðum og dreifðum flugritum um opin landamæri allan daginn. Þegar ég kom heim sá ég myndbönd af því hvernig þúsundir flótta­manna höfðu brotist gegnum landamæra­girðingarnar milli Grikk­lands og Makedóníu. Fólk með bakpoka, með börnin sín, sum með ekkert nema fötin sem þau klæddust, brutust í gegnum og streymdu útúr girðingunum sem höfðu haldið þeim föngnum dögum saman. Þetta var besta afmælis­gjöf sem maður gæti hugsað sér: frelsun þúsunda sem hafði verið haldið í viðjum laga, reglna og hefða sem eiga djúpar og marg­slungnar rætur í hroll­vekjandi sögu Evrópu­ríkja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár