Björn Erlingur er skattakóngur Íslands

Kort­lagning á tekju­hæsta eina prósentinu sýnir að karlar eru skatta­kóngar í öllum umdæmum. Aðeins tólf konur ná inn á lista yfir þá 100 sem hæstu skattana greiddu á Íslandi á síðasta ári. Sú efsta á listanum er í 21. sæti. Þeir sem eru efstir á lista yfir tekju­hæsta eina prósentið á Íslandi koma flestir úr útgerðar­geiranum.

Skatta­kóngur Vestur­lands árið 2021 og jafnframt skatta­kóngur Íslands er Björn Erlingur Jónasson, fyrr­verandi útgerðar­maður í Ólafsvík. Alls greiddi Björn Erlingur rúmar 692 milljónir króna í skatta á síðasta ári, að langmestu leyti í fjármagns­tekjuskatta, um 689 milljónir króna. Fjármagns­tekjur Björns Erlings eru tilkomnar af sölu útgerðar­fyrir­tækisins Valafells sem hann átti ásamt konu sinni, Kristínu Vigfúsdóttur.

Flettu í Hátekju­lista Stundarinnar hér. 

Skatta­kóngur Vestmanna­eyja á síðasta ári var Sævaldur Pálsson, fyrr­verandi útgerðar­maður, en hann greiddi um 686 milljónir króna í skatta. Það fleytir Sævaldi upp í annað sæti yfir skatta­kónga á landsvísu. Líkt og í tilfelli Björns Erlings í Ólafsvík eru skatt­greiðslur Sævalds að mestu leyti tilkomnar vegna fjármagns­tekna, en því sem næst allar skatt­greiðslur hans voru fjármagns­tekju­skattar. Sævaldur og börn hans seldu útgerðar­fyrirtækið Berg til Bergs-Hugins, sem er í eigu Síldar­vinnslunnar, og gengu kaupin í gegn í febrúar á síðasta ári.

Skatta­kóngur Vestfjarða á síðasta ári …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Þeir eru ekki á flæðiskeri staddir útgerðarrisarnir, eða þeir sem selja kvótann"sinn".
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2022

Mest lesið undanfarið ár