Vilja að Samherji skili peningunum til namibísku þjóðarinnar

Samfélag Namib­íu­manna í Banda­ríkj­unum gera veru­lega athuga­semd við ummæli Bjarna Bene­dikts­sonar um hver ástæðan fyrir Sam­herj­a­mál­inu sé. Þau vilja að Ísland biðji Namibíu afsök­unar og að Samherji skili pen­ingum til namibísku þjóð­ar­innar.

Samfélag Namibíumanna í Bandaríkjunum afhendir sendiherra Íslands þar í landi yfirlýsingu sína.
Samfélag Namib­íu­manna í Banda­ríkj­unum afhendir sendi­herra Íslands þar í landi yfir­lýs­ingu sína. Mynd: Facebook.

Samfélag Namib­íu­manna í Banda­ríkj­unum vilja að íslensk stjórn­völd biðji namibísku þjóð­ina afsök­unar vegna Sam­herj­a­máls­ins og að þau láti Samherja „skila pen­ing­unum til namibísku þjóð­ar­innar.“

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem hóp­ur­inn afhenti Bergdísi Ell­erts­dóttur, sendi­herra Íslands í Washington, fyrr í dag. Greint er frá fund­inum og yfir­lýs­ing­unni á facebook-síðu sam­fé­lags Namib­íu­manna í Banda­ríkj­unum.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að hóp­ur­inn viti til þess að margir, sér­stak­lega Vestur-Evr­ópu­menn, haldi að spill­ing sé við­tekin venja í Afríku og sé jafn­vel í erfða­efni þeirra þjóða sem sé að finna í álf­unni. Síðan er vitnað í ummæli Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í frétt á vef Guardian nokkrum dögum eftir að Sam­herj­a­málið var opin­berað þar sem haft var eftir Bjarna að spilltum stjórn­völdum í Namibíu sé hugs­an­lega um málið að kenna. „Veik rík­is­stjórn, spillt rík­is­stjórn í þessu landi. Sem virð­ist vera und­ir­liggj­andi vanda­mál sem við sjáum núna.“

Hópurinn seg­ist ekki vera sam­mála þess­ari full­yrð­ingu og hann hafi komið á fund sendi­herr­ans til að koma því á fram­færi. Namibíska þjóðin sé þvert á móti harð­dug­leg. Flestir lands­menn lifi þó í mik­illi fátækt og njóti ekki ávaxta af spilltum gjörðum fámenns hóps í land­inu.

Í yfir­lýs­ing­unni sam­fé­lags Namib­íu­manna í Banda­ríkj­unum segir að Samherji hafi ekki greitt skatta í Namibíu heldur þess í stað mútað sex ein­stak­lingum til að kom­ast að kvóta og svo haldið eftir hagn­að­inum fyrir sig sjálfa og Ísland. Spillt fram­ferði Samherja hafi rænt namibísku þjóð­inni tæki­fær­inu af því að njóta afrakst­urs af nýt­ingu nátt­úru­auð­linda í land­inu.

[adspot]Vegna þessa eigi Ísland að neyða Samherja til að greiða bætur til namibísku þjóð­ar­innar og biðja hana svo afsök­unar.

Mútur, peningaþvætti og skattasniðganga

Kveikur og Stundin greindu frá því í nóv­em­ber að ­Sam­herji lægi undir grun um að hafa greitt mútur til að tryggja aðgengi að ódýrum kvóta í Namibíu. Auk þess hefur er grunur um að Sam­herji hafi stundað umfangs­mikið pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu. Málið byggir á frá­sögn upp­ljóstr­ar­ans Jóhann­esar Stef­áns­sonar, sem starf­aði hjá Samherja í Namibíu og hefur sjálfur við­ur­kennt að hafa tekið þátt í umfangs­miklum lög­brotum fyr­ir­tæk­is­ins, og gríð­ar­legu magni af gögnum sem hann lét Wikileaks í té. Þau gögn eru nú aðgengi­leg á inter­net­inu. Al Jazeera sjón­varps­stöðin tók einnig þátt í opin­ber­un­inni og birti sinn hluta hennar í síð­ustu viku.

Bern­hard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namib­íu, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra Namib­íu, og fjórir aðrir menn voru nýverið ákærðir fyrir að hafa þegið 103,6 millj­ónir namibískra doll­ara, jafn­virði 860 millj­óna íslenskra króna, í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­sóttan kvóta í land­inu.

Auk Shang­hala og Esau voru James Hatuikulipi, sem hætti sem stjórn­ar­for­maður namibísku rík­is­út­gerð­ar­innar Fishcor nýverið, Tamson 'Fitty' Hatuikulipi, tengda­sonur Esau, Ricardo Gustavo, sam­starfs­maður hans og Pius Mwatelulo, sem einnig teng­ist Hatuikulipi fjöl­skyldu­bönd­um, ákærðir.

Sam­herj­a­málið er einnig til rann­sóknar í Noregi, þar sem fyr­ir­tækið hefur verið í banka­við­skiptum við DNB, og á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár