Stundin kærir synjun á upplýsingagjöf

Úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál mun skera úr um hvort Seðla­banki Íslands geti haldið rann­sókn­ar­gögn­unum í Sam­herj­a­mál­inu leyndum.

Vill að gögnin verði opinber
Vill að gögnin verði opin­ber Már Guð­munds­son vill að gögnin í Sam­herj­a­mál­inu verði gerð opin­ber en telur sig ekki mega opin­bera þau. Mynd: Pressphotoz

Stundin hefur kært synjun Seðla­banka Íslands á beiðni blaðs­ins um að fá aðgang að rann­sókn­ar­gögn­unum í Sam­herj­a­mál­inu til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál. Nefndin mun þá í kjöl­farið veita álit sitt á deilu­efn­inu sem snýst um það hvort Seðla­banka Íslands beri, eða beri ekki, að afhenda fjöl­miðl­inum þau gögn sem kæra bank­ans til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara út af meintum gjald­eyr­is­laga­brotum Samherja byggði á. Seðla­banki Íslands synj­aði beiðni Stund­ar­innar um gögnin um miðjan febr­úar. 

Vísað til þagnarskyldu

Í synj­un­inni vís­aði Seðla­bank­inn til þagn­ar­skyldu­á­kvæða í lögum um Seðla­banka

Íslands: „Rík þagn­ar­skylda hvílir á starfs­mönnum Seðla­banka Íslands um allt það sem varðar hagi við­skipta­manna bank­ans og mál­efni bank­ans sjálfs, svo og um önnur atriði sem þeir fá vit­neskju um í starfi sínu og leynt skulu fara sam­kvæmt lögum eða eðli máls, nema dóm­ari úrskurði að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár