Hin umdeilda Roseanne

Banda­ríska sjón­varps­stöðin ABC hefur tekið sjón­varps­þátt Roseanne Barr af dag­skrá eftir sví­virði­lega rasískt tíst sem Roseanne sendi frá sér. Leik­konan hefur alltaf verið umdeild og Kjarninn rifj­aði upp nokkur atvik þar sem Roseanne kom sér í vand­ræði.

Banda­ríska sjón­varps­stöðin og fram­leið­and­inn ABC hefur tekið sjón­varps­þátt Roseanne Barr af dag­skrá eftir sví­virði­lega rasískt tíst sem Roseanne sendi frá sér. Sýningar á tíundu þátta­röð­inni um hina umdeildu Roseanne Connor og fjöl­skyldu hennar hófust í mars, 21 ári eftir að sýn­ingum á níundu þátta­röð­inni lauk, og var henni almennt vel tekið.

Í tíst­inu tók Roseanne fyrir Valerie Jarrett, sem hún vís­aði til sem VJ, sem gegndi stöðu sér­staks ráð­gjafa Baracks Obama fyrr­ver­andi for­seta. Sagði hún Valerie vera afkvæmi Bræðra­lags múslima og kvik­mynd­anna um Apa­plánet­una.

Roseanne hefur síðar eytt tíst­inu og beðist afsök­unar. Það dugði þó ekki til og í yfir­lýs­ingu sjón­varps­stöðv­ar­innar þar sem til­kynnt var um að þætt­inum yrði hætt kom fram að tístið hefði verið bæði and­styggi­legt og við­bjóðs­legt. Til stóð að ráð­ast í fram­leiðslu á ell­eftu ser­í­unni en ekk­ert verður úr. Hún hefur síðar tíst nokkrum sinnum og beðið aðdá­endur sína að vor­kenna sér ekki. Að auki bað hún þá hund­urði sem vinna að þátt­unum en hafa nú misst vinn­una afsök­unar. Annars staðar sagð­ist hún hafa tíst þetta um miðja nótt undir áhrifum róandi lyfs­ins Ambien og bað fólk um að grípa ekki til varnar fyrir hana þar sem tístið hafi verið óverj­andi.

Roseanne hefur ávallt verið umdeild. Hún hóf feril sinn í uppi­standi en fékk síðar sinn eigin þátt sem sló aldeilis í gegn. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem mis­heppnað grín hennar fellur í grýttan jarð­veg en Kjarninn rifj­aði upp nokkur skipti sem Roseanne fór yfir strikið.

Árið 1990 bauð eig­andi hafn­ar­boltaliðs­ins San Diego Padres Rosanne, sem þá hafði notið mik­illar vel­gengni eftir tvær ser­íur af þætti sínum, til að koma og syngja þjóð­söng­inn fyrir leik liðs­ins. Roseanne ákvað að vera sjálfri sér lík og öskr­aði lagið frekar en söng. Að lok­inni sýn­ing­unni hrækti hún á jörð­ina og greip í klofið á sér og gerði þannig grín að hafn­ar­bolta­leik­mönnum.

Roseanne sat fyrir hjá gyð­inga­tíma­rit­inu Heeb árið 2009 sem gerði út á háðsá­deilur. Þar kom hún fram í Hitler­s­bún­ingi og fékk á sig mikla gagn­rýni. Roseanne, sem er gyð­ings­trúar sjálf, sagð­ist í kjöl­farið hafa verið að gera grín að Hitler - ekki fórn­ar­lömbum hans.

Árið 2014 birti Roseanne heim­il­is­fang manns að nafni George Zimmerman á Twitter. Sá var hverf­is­vakt­maður og hafði skotið 17 ára dreng. Nið­ur­staða rann­sóknar máls­ins var sú að Zimmerman hafi skotið í sjálfs­vörn en Roseanne birti heim­il­is­fangs hans og for­eldra hans. Þau fóru síðar í mál við Roseanne og vildu meina að birt­ingin hafi gert það að verkum að þau þurftu að flýja heim­ili sitt og síðar yfir­gefa það alfarið. Málinu var vísað frá.

Það hefur ekki gengið nægi­lega vel á Twitter hjá Roseanne á þessu ári. Í mars gaf hún í skyn að einn af nem­endum Parkland skól­ans í Flórída sem lifðu af skotárás­ina þar og gengu kröfu­göngu í Washington til að herða skot­vopna­reglur, hefði heilsað að hætti nas­ista. Tístið féll í væg­ast sagt grýttan jarð­veg og var eytt - eins og svo mörgum tístum Roseanne.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár