Vilja klára síðustu plötu Eika Einars og koma öllum plötunum hans á Spotify

Síðasta plata tón­list­ar­manns­ins Eika Einars var tekin upp rétt áður en hann lést árið 2021. Hópur fólks sem tengd­ist Eika vill halda minn­ingu hans á lofti, klára plöt­una og koma öllum plöt­unum hans á Spotify. Safnað er fyrir verk­efn­inu á Karolina Fund.

Halldór Ágúst Björns­son var upp­töku­stjóri allra sex platn­anna sem Eiki Einars gerði á sínum ferli. Hann hefur starfað við tón­list frá árinu 1999. Hann hefur unnið með Krumma í mínus, Daníel Ágúst, Svölu Björg­vins, GIG, Magnúsi Þór, Stebba Jak og Herberti Guð­munds­syni svo ein­hverjir séu nefndir. Nú leiðir Halldór Ágúst verk­efni sem felur í sér að safna fjár­munum svo hægt sé að klára síð­ustu plötu Eika og koma öllum plötum hans á Spotify. Safnað er fyrir verk­efn­inu á Karolina Fund.

Halldór Ágúst segir að hug­myndin að verk­efn­inu hafi kviknað þegar hann fór Tor­revi­eja á Spáni í lok júní 2021 til að taka upp sjöttu plötu Eika, sem ber tit­il­inn „Frábært". „Upptökur fóru fram í júní og júlí. Eiki kláraði alla sína grunna og svo kom Emil Hreiðar Björns­son til okkar til að taka upp kassagít­ara og ein­hverja raf­gít­ara.Upptökur klár­uð­ust í lok júlí og við héldum heim. Við fengum síðan þær hörmu­legu fréttir stuttu síðar að Eiki hefði lát­ist skyndi­lega. Við náðum sem betur fer að taka upp alla grunna fyrir plöt­una en eftir var að klára allan trommu­leik, bassa­leik, ein­hverja sólógít­ara, hljóð­gervla vinnslu, hljóð­blöndun og tón­jöfnun. Öllum sem þekktu til þótti það frá­leitt að klára ekki þessa síð­ustu og bestu plötu Eika, að mínu mati, og því ákváðum við að efna til þess­arar söfn­unar.“

[adspot]Hann segir að sam­starf sitt og Eika hafi haf­ist snemma árs 2009. „Eiki gekk einn dag­inn inn í studíó til mín með raf­magns­gítar og sagð­ist vilja gera plötu. Hann var bara einn, ekki með neina hljóm­sveit á bak­við sig. Ég hafði ekki tekið að mér að „pródúsa" fyrir aðra lista­menn áður en mig hafði alltaf langað til þess.Ég sagði því já við Eika og við hóf­umst handa stuttu síðar. Fyrstu plötu Eika „Ég er með hug­mynd" var ein­stak­lega vel tekið, hann fékk til dæmis fjórar stjörnur af fimm mögu­legum í plötu­dómi Arnars Eggerts Thorodd­sen.“

Dóminn má lesa hér að neðan:

Eiki Einars – ...ég er með hugmynd! ****

Eiki þessi er (var?) for­maður íslensks Bítla­klúbbs en stígur hér fram með nokk kersknis­lega og bara býsna skemmti­lega sóló­plötu. Full­komið dæmi um hversu gef­andi það getur verið að slægj­ast eftir gull­molum í gras­rót­inni. Lögin fara snið­ug­lega á svig við hefð­bundna dæg­ur­laga­bygg­ingu, sækja grunn­inn til gull­aldar dæg­ur­lag­arokks­ins, sjö­unda ára­tug­ar­ins, og halda þannig athygl­inni út í gegn. Bráðvel heppnuð plata.

Arnar Eggert Thorodd­sen, 12. októ­ber 2009

Halldór Ágúst segir það vera fáheyrt að krist­inni plötu væri jafn vel tekið og hann varð upp frá þessu upp­töku­maður og útsetj­ari á öllum plötum Eika. „Það var virki­lega gaman að vinna með honum. Ástríða hans var óhemju mikil. Mér þykir skemmti­leg­ast að vinna með fólki sem gerir þetta af ástríðu. Við gerðumnýja plötu sirka annað hvert ár. Eiki flutti síðan til Spánar í kring um 2017 að mig minnir. Tækninni hafði fleytt fram í tón­list­ar­geir­anum sem gerði mér kleift að ferð­ast með studíóið í hand­far­angrinum. Ég fór því til Spánar á sumrin og við kláruðum upp­tökur á þremur plötum frá árinu 2018 til 2021.Ég hvet alla til að styrkja þetta verk­efni svo hægt sé að varð­veita öll verk Eika Einars í heild sinni, þannig getur hann verið með okkur í anda um aldir alda.“

Markmið verk­efn­is­ins er að koma öllum plötum Eika á Spotify og aðrar tón­list­ar­veitur. „Hann var frá­bær tón­list­ar­maður með sinn sér­staka eigin stíl, sem fáum tekst að finna. Stefnt er á að prenta 50 ein­tök af geisla­diskum afplöt­unni "Frábært". Hana er ein­ungis hægt að nálg­ast á söfn­un­ar­síðu Karolina Fund. Platan inni­heldur 10 lög sem voru öll hljóð­rituð rétt áður en hann lést. Þessi plata er að mínu mati besta platan hans.“

Hér er hlekkur á söfn­un­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár