Upplýsingar um dánaraðstoð grundvöllur umræðu

Beiðni níu þing­manna um skýrslu um dán­ar­að­stoð hefur verið sam­þykkt á Alþingi. Þing­menn­irnir telja að til þess að umræðan um dán­ar­að­stoð geti þroskast og verið mál­efna­leg þá verði að liggja fyrir skýrar og hlut­lausar upp­lýs­ingar.

Beiðni níu þing­manna úr Sjálf­stæð­is­flokki, Viðreisn, Vinstri grænum, Pírötum og Sam­fylk­ingu um að heil­brigð­is­ráð­herra flytji Alþingi skýrslu um dán­ar­að­stoð var sam­þykkt í gær. Óskað var eftir því að fjallað yrði um tíðni, ástæður, reynslu og skil­yrði dán­ar­að­stoðar þar sem hún er leyfð. Auk þess vilja þing­menn­irnir að skoðað sé að gera við­horfskönnun á meðal heil­brigð­is­starfs­manna um afstöðu þeirra til dán­ar­að­stoðar.

Endurtekin beiðni um slíka skýrslu

[links]Dán­ar­að­stoð er þýð­ing á gríska orð­inu evþanasía sem merkir að binda enda á líf af ásetn­ingi til þess að leysa við­kom­andi undan óbæri­legum sárs­auka eða þján­ingum.

Beiðni um skýrslu um dán­ar­að­stoð hafði áður verið lögð fram fimm sinnum á Alþingi. Beiðni um skýrsl­una var leyfð á Alþingi í júní síð­ast­liðnum með atkvæða­greiðslu en skýrslan barst aldrei þing­inu. Í sept­em­ber 2018 var þingá­lykt­un­ar­til­laga um slíka beiðni jafn­framt send til vel­ferð­ar­nefndar þar sem hún dag­aði uppi.

Tuttugu umsögnum var þó skilað inn um þá til­lögu sem lögð var fram í sept­em­ber. Meðal þeirra sem skil­uðu inn umsögn var Emb­ætti land­lækn­is, Alþýð­u­­sam­­band Íslands, Sið­­mennt, Kaþ­ólsku kirkjan á Íslandi og Lækna­­fé­lag Íslands.[adspot]

Mikill meirihluti Íslendinga fylgjandi dánaraðstoð

Emb­ætti land­læknis mælti ein­­dregið gegn ­þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unn­i í sinni umsögn og sagði að ekki væri ráð að færa umræð­una um dán­­ar­að­­stoð inn á Alþingi Íslend­inga. Frekar ætti að ræða mál­efnið í sam­nor­ræn­um vett­vang­i utan þings og án þrýst­ings frá stjórn­­­mál­u­m.

Lífs­virð­ing­­, félag um dán­­ar­að­­stoð, hvatti hins vegar Alþingi ein­­dregið til að sam­­þykkja þings­á­­lykt­un­­ar­til­lög­una. Í nýrri könnun sem Maskína fram­kvæmdi fyrir hönd Lífs­virð­ingar kemur fram að mik­ill meiri­hluti Íslend­inga seg­ist vera hlynntur því að þeir sem vilji binda enda á líf sitt vegna sjúk­dóms sem er ólækn­andi eða ástands sem þeir meta óbæri­legt fái að gera það með aðstoð.

Þá segj­ast fleiri Íslend­ingar vera hlynntir dán­ar­að­stoð í könnun Líf­virð­ingar en í svip­aðri könnun Sið­menntar frá árinu 2015, eða alls 77,7 pró­sent árið 2019 og 74,5 pró­sent árið 2015.

Flestir fylgjandi „hol­lensku leið­inni“

Í könnun Lífs­virð­ingar var jafn­framt spurt um hvaða aðferð Íslend­ingar ættu að nota ef dán­ar­að­stoð yrði lög­leyfð en í dag er not­ast við þrjár meg­in­að­ferðir við dán­ar­að­stoð í heim­inum. Alls völdu 47 pró­sent leið­ina: „Læknir gefur ban­vænt lyf í æð“ sem oft er nefnd „hol­lenska leið­in“ en á ensku heitir hún eut­hanasia og er notuð í Hollandi, Belgíu og Lúx­em­borg. Í þeim Hollandi og Belgíu var þessi aðferð leyf með lögum árið 2002 en í Lúx­em­borg árið 2008.

Í Holland­i eiga sjúk­lingar ekki rétt á líkn­ar­drápi og lækni ber aldrei skylda til að aðstoða við líkn­ar­dráp. Hann má hins vegar aðstoða ef hann er sann­færður um að sjúk­lingur upp­fyllir skil­yrði reglna og telur ekki aðra lausn draga úr eða lina þján­ingar sjúk­lings­ins. Árið 2017 fengu 4,4 pró­sent þeirra sem lét­ust í Hollandi aðstoð við að deyja eða 6585 ein­stak­ling­ar.

Árið 2010 var gerð könnun á afstöðu heil­brigð­is­starfs­fólks hér á landi til dán­ar­að­stoðar. Nið­ur­staðan var sú að dán­ar­að­stoð þótti rétt­læt­an­legt hjá 18 pró­sent lækna og 20 pró­sent hjúkr­un­ar­fræð­inga en aðeins 3 pró­sent þeirra vildu verða við slíkri ósk. Þing­menn­irnir sem lögðu fram fyrr­nefnda skýrslu­beiðni ósk­uðu eftir því að slík könnun verði fram­kvæmd aftur á meðal heil­brigð­is­starfs­fólks.

Nauðsynleg umræða um viðkvæmt mál

Í grein­ar­gerð beiðn­innar segir að á síð­ustu árum hafi reglu­lega komið upp umræða í íslensku sam­fé­lagi um dán­ar­að­stoð, líkn­ar­dráp eða sjálfs­víg með aðstoð og að ljóst sé að umgjörð um þetta við­kvæma mál sé mis­mun­andi eftir löndum.

Þing­menn­irnir telja að til þess að umræðan um dán­ar­að­stoð geti þroskast og verið mál­efna­leg þá verði að liggja fyrir upp­lýs­ingar um stöðu þess­ara mála í öðrum löndum, svo og upp­lýs­ingar um afstöðu heil­brigð­is­starfs­fólks hér á landi. Því sé mik­il­vægt að stjórn­völd safni þeim upp­lýs­ingum saman og setji fram á skýran og hlut­lausan hátt.

„Beiðni þessi felur ekki í sér afstöðu til þess hvort ástæða sé til að breyta lögum hér­lendis. Til­gang­ur­inn er að treysta grund­völl nauð­syn­legrar umræðu um við­kvæmt mál,“ segir að lokum í grein­ar­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár