Líknardrápum fjölgar stöðugt í Hollandi

Líkn­ar­drápum hefur fjölgað um tutt­ugu pró­sent á síð­ustu tveimur árum í Hollandi en líkn­ar­dráp hefur verið lög­legt þar í landi frá árinu 2002. Á Íslandi hefur þings­á­lykt­un­ar­til­laga um dán­ar­að­stoð verið lögð fram þrí­vegis en skiptar skoð­anir eru um mál­efnið

Líknardrápum hefur fjölgað um tæp 20 prósent á tveimur árum í Hollandi. Líknardráp var lögleitt árið 2002 í Hollandi en þar í landi er beint líknardráp leyfilegt, þar sem læknir gefur banvæna lyfjagjöf í æð, en aðstoð við sjálfsvíg er þar einnig leyfileg. Árið 2017 fengu 4,4 prósent þeirra sem létust í Hollandi aðstoð við að deyja eða 6585 einstaklingar. Frá þessu er greint í Læknablaðinu.

„Tilfellunum hefur fjölgað í gegnum árin en nú teljum við að jafnvægi sé að nást,“ segir Antina de Jong, doktor í siðfræði, en hún talaði fyrir konunglegu hollensku læknasamtökunum á ráðstefnu læknafélags Íslands og Alþjóðalæknafélagsins um lífsiðfræði, sem haldin var í Hörpu í október.

Samkvæmt Antinu de Jong mega læknar í Hollandi aðstoða við andlát en reglurnar eru strangar. Grundvallarreglurnar eru að það liggi fyrir frjáls og vel íhuguð beiðni sjúklings, til staðar séu óbærilegar þjáningar án möguleika á bættri líðan. Að sjúklingar séu upplýstir um stöðu sína og líkur á bata og að sannarlega sé engin önnur skynsamleg lausn í boði. Þá þarf samráð við annan lækni og framkvæma þarf líknardráp með aðgát segir í umfjöllun Læknablaðsins.

Í Hollandi eiga sjúklingar ekki rétt á líknardrápi og lækni ber aldrei skylda til að aðstoða við líknardráp. Hann má hins vegar aðstoða ef hann er sannfærður um að sjúklingur uppfyllir skilyrði reglna og telur ekki aðra lausn draga úr eða lina þjáningar sjúklingsins. Af þessum ríflega 6000 andlátum í fyrra eru fimm þeirra í nánari skoðun opinbers saksaksóknara, samkvæmt Jong eru það mál þar sem ekki var farið eftir grundvallarreglum.

Umræða um líknardráp á Íslandi

Á Alþingi hefur þingsályktunartillaga um dánaraðstoð verið lögð fram þrívegis. Nú síðast í lok september af sjö þingmönnum úr öllum þingflokkunum nema Flokk fólksins. Tillagan var rædd á þingi og fór til umfjöllunar í velferðarnefnd.

Í þingsályktunartillögunni er lagt til að heilbrigðisráðherra yrði falið að taka saman upplýsingar um þróun lagaramma þar sem dánaraðstoð er leyfð. Einnig er lagt til að opinber umræða í nágrannalöndum sé skoðuð. Ásamt því yrði gerð skoðanakönnun meðal heilbrigðisstarfsmanna um afstöðu þeirra og hvort starfsmenn telji dánaraðstoð vera réttlætanlega í ákveðnum tilfellum og hvort þeir væru tilbúnir að verða við slíkri ósk að uppfylltum skilyrðum og að því gefnu að það samræmist íslenskum lögum. Lagt er til að skýrsla um málið verið skilað fyrir lok febrúar 2019.

75 prósent Íslendinga hlynnt dánaraðstoð

Í nóvember 2015 lét Siðmennt gera könnun á lífsskoðunum og trú Íslendinga þar sem fram kom að 75 prósent aðspurðar voru mjög eða frekar hlynntir því að einstaklingur geti fengið aðstoð ið að binda enda á líf sitt ef hann er haldinn ólæknandi sjúkdómi. Átján prósent voru hvorki né en 7,1 prósent mjög eða frekar andvíg.

Árið 2010 var gerð könnun um afstöðu heil­brigð­is­starfs­fólks til sið­fræði­legra álita­mála um tak­mörk­un ­með­ferð­ar­ við lífslok, var gerð var nið­ur­staðan sú að líkn­ar­dráp þótti rétt­læt­an­legt hjá 18 pró­sent lækna og 20 pró­sent hjúkr­un­ar­fræð­inga en aðeins 3 pró­sent vildu verða við slíkri ósk. Frá þessu er greint í grein­ar­gerð þingsályktunartillögunnar.

Í greinargerðinni segir að umræður um dánaraðstoð hafi sprottið upp hér á landi í meira mæli eftir að stofnuð voru samtökin Lífsvirðing, félag um dánaraðstoð og í kjölfar skoðanakönnunar Siðmenntar.„Flutningsmenn þessarar tillögu telja að forsenda þess að umræðan geti þroskast og verið málefnaleg sé að fyrir liggi upplýsingar um stöðu þessara mála í öðrum löndum, svo og um afstöðu heilbrigðisstarfsfólks. Mikilvægt er að stjórnvöld safni þeim upplýsingum saman og setji fram á skýran og hlutlausan hátt. Þingsályktunartillagan felur ekki í sér afstöðu til þess hvort ástæða sé til að breyta lögum hérlendis. Tilgangurinn er að treysta grundvöll nauðsynlegrar umræðu um viðkvæmt mál.“

Landlækni hugnast ekki að dánaraðstoð sé til umræðu á þingi.

Alls hefur verið skilað inn tutt­ugu umsögn­um, álitum og athuga­semdum um þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una. Meðal þeirra sem skil­uðu inn umsögn var Emb­ætti land­lækn­is, Alþýðu­sam­band Íslands, Sið­mennt, Kaþ­ólsku kirkjan á Íslandi og Lækna­fé­lag Íslands.

Emb­ætti land­læknis mælti ein­dregið gegn þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni í sinni umsögn og sagði ekki væri ráð að færa umræð­una um dán­ar­að­stoð inn á alþingi Íslend­inga frekar ætti að ræða mál­efnið í sam­nor­rænum vett­vangi utan þing og án þrýst­inga frá stjórn­mál­u­m.

Umsagnir Kaþ­ólsku kirkj­unnar á Ísland og Rétt­trún­að­ar­kirkj­unnar er á þá leið að líkn­ar­dráp sé glæp­sam­legt athæfi. „Fyrst og fremst viljum við segja að það að drepa ein­hvern eða að hjálpa honum að fyr­ir­fara sér er hvorki eut­hanasia (dauði með gleði) né dán­ar­að­stoð (það að hjálpa ein­hverjum sem er að deyja), heldur glæp­sam­legt aðgerð. Þá getum við á engan hátt sam­þykkt slíka gjörn­inga vegna þess að þeir brjóta gegn nátt­úru­legum lögum og eru einnig and­stæðir meg­in­reglum krist­innar trú­ar.“

Í umsögn Lífs­virð­ing­ar, félags um dán­ar­að­stoð, hvetur félagið Alþingi ein­dregið til að sam­þykkja þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una. „Víð­tæk, mál­efna­leg og yfir­veguð umræða almenn­ings og fag­fólks er mik­il­væg og lyk­ill­inn að gagn­kvæmum skiln­ing­i.“ segir í umsögn­inni. Lífs­virð­ing tekur einnig undir með flutn­ings­mönnum þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar að mik­il­vægt er að kanna afstöðu heil­brigð­is­starfs­manna til dán­ar­að­stoð­ar. Síð­asta rann­sóknin er frá 2010 og sam­kvæmt félag­inu hefur umræðan í hinum vest­rænum heimi þró­ast mikið síðan þá. „Miklar fram­farir í lækna­vís­indum hafa þær afleið­ingar að hægt er að halda fólki lengur á lífi en áður. Tíð­ar­and­inn hef­ur einnig breyst og aukin áhersla er á sjálf­ræði ein­stak­lings­ins og þátt­töku í ákvörð­un­um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár