Facebook fjarlægir falsaðganga frá Íran

Facebook fjar­lægði yfir 80 fals­að­ganga sem tengd­ust Íran í síð­ustu viku. Aðgang­arnir deildu áróð­urs­myndum sem mið­aðar voru að banda­rískum og breskum not­endum.

Facebook fann og fjar­lægði 82 falskar facebook-síður og hópa sem tengd­ust Íran í síð­ustu viku. Síðurnar þótt­ust vera frjáslyndir Banda­ríkja­menn eða Bretar og birtu myndir og stöðu­færslur um umdeild póli­tísk mál­efni. Hóparnir hétu nöfnum líkt og „Wake Up America“ og „Thirst for truth“. Frá þessu var greint á frétta­veitu Facebook síð­asta föstu­dag.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni tengj­ast allar þessar síður Íran og eru sumir aðil­arnar þeir sömu og tengd­ust fals­að­göng­unum sem Facebook fjar­lægði í ágúst á þessu ári. Þá voru hund­ruð síðna og hópa, sem voru tengdir Íran og Rúss­landi, fjar­lægð af sam­fé­lags­miðl­inum.

Umtal­aðar síður hafa birt myndir og stöðu­upp­færslur um umdeild póli­tísk mál­efni og sem dæmi má nefna kyn­þátta­erjur, and­stöðu við Donald Trump og mál inn­flytj­enda. Ólíkt þeim áróðri frá Íran og Rúss­landi sem fannst á Facebook í ágúst þá er efnið, sem þessir aðgangar deildu, fjöl­breytt­ara og sam­ofið við banda­rískan áróður. Einnig var að finna áróð­urs­skila­boð um and­stöðu við Ísrael og Sádí Arabíu. 

Yfir milljón fylgjendur

Sumar þess­ara síðna voru með yfir milljón fylgj­endur. Ein facebook-síðan sem hét „I Need Justice Now“ var með meira en 13 millj­ónir áhorf á eitt mynd­band. Einnig hafa fund­ist svip­aðir fals­að­gangar á Instagram. Samkvæmt reglum Facebook eru falskir aðgangar bann­aðir og um leið og fyr­ir­tækið verður vart við blekkj­andi hegðun þá rann­saka þeir aðgang­ana og fjar­lægja ef ástæða þykir. Yfir 20.000 þús­und manns vinna við öryggi á Facebook meðal ann­ars við að fjar­lægja slíkar síður.

Grein­ing­ar­deild Facebook segir aðferðir þess­ara til­teknu fals­síðna þró­aðri heldur en aðferð­irnar sem not­aðar voru á hinum írönsku fals­að­göngnum sem eyddar voru í ágúst. Því er talið að aðil­arnir hafi lært ýmis­legt eftir að Facebook fjar­lægði síð­urnar þeirra í fyrra skiptið.

Kosningar yfirvofandi

Síðurnar voru fyrst stofn­aðar í júní árið 2016 en þær höfðu verið mjög virkar áður en þær voru fjar­lægðar og er sú virkni talin tengj­ast því að þing­kosn­ingar eru yfir­vof­andi í Banda­ríkj­unum sem og áfram­hald­andi Brexit-umræða í Englandi. Facebook tók fyrst eftir fals­að­göngum í síð­ustu viku og í ljósi yfir­vof­andi kosn­inga voru aðgang­arnir rann­sak­aðir og stjórn­völd í Banda­ríkj­unum og Bret­landi látin vita. Samkvæmt frétt Facebook er ekki ljóst hver ber ábyrgð á aðgöng­unum en ekki hafa fund­ist nein tengsl síðn­anna við írönsk stjórn­völd ennþá en rann­sóknin er í fullum gangi.

[links]Facebook hefur áður verið gagn­rýnt fyrir að fylgj­ast ekki betur með fals­fréttum á miðl­inum og hversu auð­velt sé að mis­nota vett­vang­inn til að dreifa áróðri fyrir ákveðna hópa fyrir kosn­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár