Tæplega sex af hverjum tíu segja mikilvægt að fá nýja stjórnarskrá

Nær allir vænt­an­legir kjós­endur Sam­fylk­ingar og Pírata segja mik­il­vægt að fá nýja stjórn­ar­skrá, en ein­ungis 15 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks.

Alls segj­ast 56 pró­sent aðspurðra að þeim þyki mik­il­vægt að fá nýja stjórn­ar­skrá á næsta kjör­tíma­bili. 23,5 pró­sent lands­manna þykir málið lít­il­vægt og 20,5 pró­sent eru ekki með afger­andi skoðun á því. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR.

Stuðn­ingur við nýja stjórn­ar­skrá er meiri höf­uð­borg­ar­svæð­inu en á lands­byggð­inni og mestur hjá stuðn­ings­fólki Pírata og Sam­fylk­ingar. Einungis 15 pró­sent af stuðn­ings­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks telja hins vegar mik­il­vægt að fá nýja stjórn­ar­skrá á næsta kjör­tíma­bili.

Munur á afstöðu eftir aldri og tekjum

Stuðn­ingur við nýja stjórn­ar­skrá er mestur hjá elstu og yngstu kjós­end­unum. Þá er meiri stuðn­ingur við hana eftir því sem laun eru lægri en meiri­hluti er þó fyrir henni í öllum tekju­hópum. Þannig segj­ast 64 pró­sent þeirra sem eru með laun undir 400 þús­und krónum á mán­uði telja mik­il­vægt að fá nýja stjórn­ar­skrá en 51 pró­sent þeirra sem eru með yfir milljón krónur á mán­uði í tekjur.

Stuðn­ing­ur­inn mun meiri hjá konum en körlum. Alls segj­ast 64 pró­sent kvenna að það þurfi nýja stjórn­ar­skrá á næsta kjör­tíma­bili en 50 pró­sent karla.

Mikill munur hjá stuðningsmönnum flokka

92 pró­sent stuðn­ings­manna Pírata telja mik­il­vægt að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá á næsta kjör­tíma­bili og 91 pró­sent stuðn­ings­manna Sam­fylk­ingar. Alls segja 76 pró­sent stuðn­ings­manna Vinstri grænna að það sé mik­il­vægt. Innan Fram­sókn­ar­flokks­ins segja 40 pró­sent að það þurfi nýja stjórn­ar­skrá en 36 pró­sent telja að það sé lít­il­vægt. Hjá Viðreisn er afstaðan sam­bæri­leg, 39 pró­sent eru fylgj­andi henni en 36 pró­sent telja mál­efnið lít­il­vægt. And­staðan er mest afger­andi innan Sjálf­stæð­is­flokks. Þar eru ein­ungis 15 pró­sent aðspurðra fylgj­andi nýrri stjórn­ar­skrá en 46 pró­sent telja málið lít­il­vægt.

Könnunin var fram­kvæmd dag­anna 26-28. sept­em­ber og var úrtakið handa­hófs­kennt val á ein­stak­lingum 18 ára og eldri úr hópi álits­gjafa MMR. Alls svör­uðu 1.012 manns könn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár