Ingvar J. Rögnvaldsson gegnir tímabundið embætti ríkisskattstjóra

Ingvar J. Rögn­valds­son hefur tíma­bundið verið settur til að gegna emb­ætti rík­is­skatt­stjóra. Frá­far­andi rík­is­skatt­stjóri, Skúli Eggert Þórð­ar­son, hefur verið kjör­inn rík­is­end­ur­skoð­andi af Alþingi til næstu sex ára.

Ingvar J. Rögnvaldsson
Ingvar J. Rögn­valds­son

Ingvar J. Rögn­valds­son hefur verið tíma­bundið settur til að gegna emb­ætti rík­is­skatt­stjóra frá og með 1. maí 2018.

Þetta kemur fram í frétt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins.

Ingvar lauk lög­fræði­prófi frá Háskóla Íslands árið 1977 og stund­aði fram­halds­nám við Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla á árunum 1977 til 1979. Ingvar hefur gegnt stöðu vara­rík­is­skatt­stjóra frá árinu 2000.

„Frá­far­andi rík­is­skatt­stjóri, Skúli Eggert Þórð­ar­son, hefur verið kjör­inn rík­is­end­ur­skoð­andi af Alþingi til næstu sex ára. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið þakkar honum fyrir sam­starfið á liðnum árum og óskar honum vel­farn­aðar,“ segir í frétt ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár