Skiptastjórar WOW air vísa málum til héraðssaksóknara vegna gruns um lögbrot

Leiga á íbúð í London sem for­stjóri WOW air bjó í og röng upp­lýs­inga­gjöf í tengslum við skulda­bréfa­út­boð WOW air eru á meðal þeirra mála sem skipta­stjórar flug­fé­lags­ins hafa vísað til hér­aðs­sak­sók­ara vegna gruns um lög­brot.

Skipta­stjórar WOW air hafa vísað nokkrum málum til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara vegna gruns um að þar hafi átt sér stað ólög­mæt hátt­semi. Á meðal þeirra mála sem þar eru undir eru mál tengd skulda­bréfa­út­boði WOW air, sem lauk í sept­em­ber 2018, og mál tengd hús­næði sem Skúli Mogensen, eig­andi og for­stjóri WOW air, hafði til umráða í London. Heim­ildir Kjarnans herma að fleiri til­vik hafi einnig verið til­kynnt.

Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari stað­festi við Kjarnann að til­kynn­ing hefði borist frá skipta­stjórum WOW air fyrir nokkrum dögum síðan en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.

Deloitte fengið til að rannsaka

Föstu­dag­inn 16. ágúst 2019 héldu skipta­stjórar þrota­bús WOW air, Sveinn Andri Sveins­son og Þor­steinn Ein­ars­son, fund með kröfu­höfum félags­ins. Þá lá fyrir að kröfum upp á 151 millj­arð króna hafði verið lýst í búið, þar af 138 millj­arða króna kröfum sem telj­ast almennar. Eins og staðan var þá voru 1,1 millj­arður króna á banka­reikn­ingum WOW air upp í þær kröfur. Það þýddi að 0,7 pró­sent er til upp í lýstar kröfur, sem þó á eftir að taka afstöðu til hvort að verði við­ur­kenndar eða ekki.

[adspot]Í skýrslu skipta­stjór­anna var farið yfir hver raun­veru­leg staða mála var hjá WOW air þegar skellt var í lás með hvelli í lok mars 2019. Þar var meðal ann­ars opin­berað að við gjald­þrot félags­ins hafi verið um þrjár millj­ónir króna lausar til ráð­stöf­unar á banka­reikn­ingum WOW sam­stæð­unnar. Til að setja þá tölu í sam­hengi má benda á að við gjald­þrot störf­uðu alls 963 manns hjá WOW air. Lausafé sam­stæð­unnar hefði ekki dugað til að greiða nema örfáum þeirra sem þar störf­uðu laun í byrjun apríl 2019.

Þar var sú nið­ur­staða sett fram að WOW air hafi verið ógjald­fært í síð­asta lagi um mitt ár 2018. Það þýðir, sam­kvæmt lög­fræði­orða­bók Laga­stofn­unar Háskóla Íslands, að skuld­ari, í þessu til­felli WOW air, geti ekki greitt gjald­fallnar skuldir sínar en hefur samt sem áður ekki verið úrskurð­aður gjald­þrota. Í skýrslu skipta­stjór­anna sagði að þeir teldu „óhjá­kvæmi­legt að fram fari nán­ari grein­ing á því hvenær WOW var sann­ar­lega ógjald­fært.“

Skömmu eftir að skipta­stjórar voru skip­aðir yfir bú WOW air réðu þeir ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Deloitte til að vinna athugun á mál­efnum félags­ins, fjár­málum þess og ráð­stöf­unum fyrir þrot.

Deloitte skil­aði af sér ítar­legri skýrslu í lok júní síð­ast­lið­ins og helstu nið­ur­stöður hennar voru kynntar á kröfu­hafa­fund­inum í ágúst. Eftir skil á skýrsl­unni tóku skipta­stjórar skýrslur af öllum stjórn­ar­mönnum lyk­il­stjórn­endum og end­ur­skoð­anda WOW air. Þær fóru fram á tíma­bil­inu 5. til 30. júlí.

Kynning ekki talin hafa gefið raunsanna mynd af rekstri WOW air

Slík athugun skipti meðal ann­ars máli fyrir þá þátt­tak­endur í skulda­bréfa­út­boði WOW air sem fram fór í ágúst og sept­em­ber 2018, sem töldu sig hafa verið blekktir.

Í skýrsl­unni sagði: „Skipta­stjórar telja vera til staðar vís­bend­ingar um að upp­lýs­ingar og gögn um fjár­hags­leg mál­efni félags­ins, rekstur og efna­hag og áætl­anir, sem fjár­festa­kynn­ing skulda­bréfa­út­boðs­ins byggði á, hafi verið ófull­nægj­andi og ekki gefið raunsanna mynd af rekstri og efna­hag WOW á þessum tíma, auk­in­heldur sem áætl­anir hafi ekki verið raun­hæfar.“

[adspot]Það væri nið­ur­staða skipta­stjór­anna að þátt­tak­endur í skulda­bréfa­út­boð­inu hafi verið blekktir. Þar var meðal ann­ars vísað í að eigið fé WOW air hefði með réttu átt að vera nei­kvætt um mitt ár 2018 þegar farið var af stað með útboðið. Í efna­hags­reikn­ingi sem birtur var í fjár­festa­kynn­ing­unni var því hins vegar haldið fram að eigið fé væri jákvætt. Þ.e. að WOW air ætti meiri eignir en skuldir.

Leiga á íbúð sögð greiðsla á persónulegum kostnaði Skúla

Í skýrslu Deloitte var einnig greint frá því að WOW air hefði greitt 37 millj­ónir króna í leigu vegna íbúð­ar í London, sem Skúli Mogensen og kærasta hans bjuggu í, á tveggja ára tíma­bili, frá 28. mars 2017 og þangað til að WOW air fór í þrot. Það þýðir að með­al­tals­mán­að­ar­leiga hefur verið rúm­lega 1,5 milljón króna á mán­uð­i.

Íbúðin var í eigu félags sem hét WOW air Ltd., og var skráð í Englandi. Það var lengi vel í per­sónu­legri eigu Skúla Mogensen en var fram­selt til WOW air í sept­em­ber 2018, í sama mán­uði og skulda­bréfa­út­boð félags­ins fór fram. Skipta­stjór­ar WOW air sögðu í skýrslu sinni að eng­inn samn­ingur hafi verið í gildi milli WOW air og WOW air Ltd. „vegna þess­arar íbúðar og þá voru greiðslur WOW vegna hennar ekki sam­þykktar í stjórn félags­ins.“

[links]Leigu­greiðsl­urnar hafi ein­fald­lega verið vegna greiðslu á per­sónu­legum kostn­aði hlut­hafa WOW air, Skúla Mogensen. Í skýrsl­unni segir enn fremur að Deloitte telji, að lok­inni athugun sinni, að „greiðslur WOW vegna rekst­urs og leigu fyrr­greindrar íbúðar hafi ekki verið reistar á við­skipta­legum for­sendum enda engar vís­bend­ingar um að íbúðin hafi verið nýtt í þágu starfs­manna WOW, hvorki flug­fólks né ann­arra almennra starfs­manna. Skipta­stjórar skoða nú að krefj­ast end­ur­greiðslu þess fjár sem WOW greiddi vegna fyrr­greindrar íbúð­ar.“

Skúli Mogensen sagði í yfir­lýs­ingu sem hann sendi á fjöl­miðla í ágúst síð­ast­liðnum að þegar WOW air hafi farið að leigja íbúð­ina, í byrjun árs 2017, hafi flug­fé­lagið verið að und­ir­búa opnun á nýrri starfs­stöð í London eða Dublin og jafn­framt verið að skoða mögu­lega skrán­ingu á mark­aði í London. „Hvort tveggja kall­aði á veru­lega við­veru for­stjóra í London. WOW air skil­aði yfir 4 millj­örðum í hagnað árið 2016 og því voru þessi áform eðli­legt skref í áfram­hald­andi upp­bygg­ingu WOW air á þeim tíma og ekk­ert óeðli­legt við það að félagið skyldi leigja hús­næði fyrir for­stjóra félags­ins í þeim til­gangi að sinna þeim verk­efn­um.“

Vilja rifta greiðslum til Skúla

Á grund­velli athug­unar Deloitte hefur þrota­búið þegar ráð­ist í ýmsar aðgerðir, og mun ráð­ast í fleiri. Flestar snú­ast þær um samn­inga og greiðslur sem áttu sér stað milli Skúla Mogensen og félags hans Títan, sem var eig­andi WOW air fyrir þrot, og WOW air. 

Þegar hefur verið höfðað rift­un­ar­mál vegna greiðslu á tæp­lega 108 milljón króna frá WOW air til Títan, félags Skúla Mogensen, sjö vikum fyrir gjald­þrot flug­fé­lags­ins. Það var gert 24. júlí 2019. Greiðslan byggði á því að sum­arið 2018, þegar staða WOW air var orðin mjög þröng, keypti WOW air 60 pró­sent í félag­inu Cargo Express af Títan á 2,1 millj­arð króna. Kaup­verðið var greitt að lang­mestu leyti með nýju hlutafé í WOW air sem bók­færð­ist þannig sem hluta­fjár­aukn­ing, þrátt fyrir að ekk­ert nýtt hlutafé hafi komið inn í rekstur WOW air við hana. Skipta­stjórar eru með það til athug­unar hvort að þetta hlutafé í Cargo Express hafi verið tekið yfir á of háu verði og „því hafi ekki verið greitt að fullu fyrir hlutafé í WOW. Þessi við­skipti tengdra aðila sæta nán­ari skoðun skipta­stjóra.“

[adspot]Þá áttu 150 millj­ónir króna að greið­ast frá WOW air til Títan í reiðufé 30. apríl 2019 vegna söl­unnar. Sú greiðsla átti að vera háð því að Cargo Express myndi greiða arð til WOW air vegna árs­ins 2018 sem næmi að minnsta kosti sömu upp­hæð. Í skýrslu skipta­stjóra segir að í samn­ing­unum hafi komið skýrt fram að ef arð­greiðslan yrði hærri en 150 millj­ónir króna myndi WOW air halda þeirri við­bót­ar­greiðslu. Ef arð­greiðslan yrði hins vegar lægri en sú upp­hæð „skyldi mis­mun­inum umbreytt í hluta­bréf í kaup­anda handa selj­anda.“

Þann 6. febr­úar 2019 fékk WOW air greiddan 107,6 millj­ónir króna í arð frá Cargo Express. Sama dag og arð­greiðslan barst greiddi WOW air sömu upp­hæð til Títan. Sú greiðsla fór fram tæp­lega þremur mán­uðum fyrir umsam­inn gjald­daga og sjö vikum fyrir gjald­þrot WOW air. Í skýrslu skipta­stjóra sagði: „Á þeim tíma var WOW í miklum fjár­hags­erf­ið­leikum. Greiðslan var innt af hendi fyrir gjald­daga og fyrr en eðli­legt var. Þá skerti greiðslan greiðslu­getu WOW og er það mat skipta­stjóra að greiðslan hafi verið óvenju­leg eftir atvikum.“

Því hefur þrota­búið höfðað rift­un­ar­mál og vill end­ur­heimta greiðsl­una. 

Greiðsla á ábyrgðargjaldi

Annað mál sem Deloitte vakti sér­staka athygli á eftir athugun sína var í tengslum við flug­vél­arnar TF-MOM, TF-DAD, TF-KID og TF-SON. Þær voru allar seldar til Air Canada um ára­mótin 2018/2019.

Vélarnar voru upp­haf­lega leigðar af tveimur félögum, Moonsun Leasing og Hawk Bay. Títan, félag Skúla Mogensen sem fór með eign­ar­hald WOW air, gerði samn­inga við þessa tvo aðila um gagn­kvæman sölu- og kaup­rétt á vél­unum. Títan greiddi ekk­ert fyrir þann kaup­rétt. Í skýrslu skipta­stjór­anna segir hins vegar að Títan hafi gert samn­ing við WOW air um að greiða sér alls 12 millj­ónir dali fyrir kaup­rétt­ina. Í dag nemur sú upp­hæð um 1,3 millj­arði króna. Auk þess greiddi WOW air mán­að­ar­legt ábyrgð­ar­gjald til Títan vegna leigu á vél­unum.

Hluta af þeim kröfum sem urðu til vegna þessa samn­ings voru nýttar til að greiða fyrir aukið hlutafé í WOW air. Nið­ur­staða Deloitte var að erfitt hafi verið að „greina við­skipta­legar for­sendur að baki svo hárri þóknun er WOW bar að greiða Títan fyrir kaup­rétti að flug­vélum.“

Undir það tóku skipta­stjórar WOW air í skýrsl­unni og þar kemur fram að málið sé til áfram­hald­andi skoð­unar.

Skúli hefur sagt að það sé ekki rétt að hann hafi fengið millj­arða greiðslur út úr WOW air vegna sölu Títan á kaup­rétt­unum, sem félagið hafi fengið frítt, til WOW air.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár