Forsetinn talar fyrir sjálfan sig segir Tillerson

Utan­rík­is­ráð­herra Trumps segir for­set­ann tala fyrir sjálfan sig um rasískar undir­öldur í banda­rísku sam­fé­lagi.

Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, talar fyrir sjálfan sig þegar hann talar um ofbeldið í Charlottesville, segir Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna.

Tiller­son var spurður að því hvað hvort orð Donalds Trump, sem kyn­þátta­hat­arar og nýnas­istar í Banda­ríkj­unum hafa skilið sem hvatn­ingu, geri starf hans erf­ið­ara á erlendum vett­vangi. „ÉG held að eng­inn efist um gildi amer­ísku þjóð­ar­innar eða skuld­bind­ingu amer­ískra stjórn­valda og rík­is­stofn­ana um að halda þeim gildum í heiðri,“ sagði Tiller­son.

Utan­rík­is­ráð­herr­ann var svo spurður af frétta­manni Fox news-sjón­varps­stöðv­ar­innar: „En hvað með gildi for­set­ans?“

„For­set­inn talar fyrir sjálfan sig,“ svar­aði Tiller­son.

[adspot]

Virðist standa með nýnasistum og rasistum

Donald Trump steig í pontu í kjöl­far átaka milli nýnas­ista og mót­mæl­enda þeirra í Charlottesville í Suður-Karólínu og sagði að „margir bæru ábyrgð“ á ofbeld­inu. Ein kona lét lífið í Charlottesville, þegar maður ók bíl inn í hóp fólks sem mót­mælti göngu nýnas­ista í borg­inni.

[links]Nokkrum dögum síðar átti Trump svo í orða­skaki við fjöl­miðla­menn í New York þar sem hann kynnti sýn sína á ofbeldið enn frekar: „Á einum end­anum hefur þú hóp sem hegð­aði sér illa og hinu megin hefur þú hóp sem var líka mjög ofbeld­is­fullur,“ sagði Trump og ítrek­aði að í báðum hópum væri mjög slæmt fólk. Hann sagði einnig að í hópi nýnas­ista og öfga-hægri þjóð­ern­is­sinna væru mikið af góðu fólki.

Fyrir þessi ummæli hefur fjöldi banda­manna Trumps ákveðið að for­dæma eða gagn­rýna for­set­ann og benda á far­sælli leiðir fyrir Hvíta húsið til að takast á við þann vanda sem sást í Charlottesville.

Tiller­son er þess vegna aðeins nýjasti með­lim­ur­inn í hópi hátt­settra emb­ætt­is­manna og þing­manna í Banda­ríkj­unum sem segja hug sinn opin­ber­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár