Drottningin missir af sinni fyrstu jólamessu

Elísabet II drottn­ing gat ekki verið við­stödd jóla­messu í dag vegna veik­inda.

Elísabet drottning og eiginmaður hennar Filippus.
Elísabet drottn­ing og eig­in­maður hennar Filippus. Mynd: Annie Leibovitz

Elísabet II Eng­lands­drottn­ing missti af sinni fyrstu jóla­messu síðan hún tók við völdum 1952 í dag. Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum sem tals­maður hall­ar­innar veitti fjöl­miðlum þjást kon­ungs­hjónin af heift­ar­legu kvefi.

Elísabet drottn­ing varð níræð á árinu og er þegar orð­inn elsti kon­ung­borni þjóð­höfð­ingi í heimi. Eig­in­maður hennar, Filippus prins, er 95 ára gam­all.

Kon­ungs­hjónin hafa haldið jólin á sveita­setr­inu í Sandring­ham á vest­an­verðu Englandi síðan árið 1988 og aldrei misst af jóla­messu í kirkju heil­agrar Maríu Magda­lenu.

Áður en þau hófu að halda jólin á sveita­setr­inu voru kon­ung­leg jól haldin í Windsor-kast­ala í London þar sem Elísabet var við­stödd guðs­þjón­ustu síðan um miðjan sjö­unda ára­tug­inn. Fjöl­miðlar í Brelandi gera ekki ráð fyrir öðru en að Elísabet hafi alltaf mætt í jóla­messu.

Eig­in­maður hennar, Filippus prins, var ekið í Range Rover-bif­reið til kirkj­unnar og gekk óstuddur frá bif­reið­inni. Karl Breta­prins, erf­ingi krún­unnar, gekk til kirkj­unnar ásamt Camillu eig­in­konu sinni og öðrum fjöl­skyldu­með­limum fyrir utan elsta son Karls. Vil­hjálmur og Kate kusu að eyða jól­unum með for­eldrum Kate og börnum sínum.

Vegna kvefs­ins var ferð hjón­an­anna til Sandring­ham frestað um sól­ar­hring og þeim flogið með þyrlu á fimmtu­dag. Í til­kynn­ingu tals­manns hall­ar­innar segir að drottn­ingin muni halda sig inn­an­dyra á meðan kvefið gengur yfir og til þess að flýta bata. Hún mun svo taka þátt í ann­ari jóla­dag­skrá fjöl­skyld­unnar í dag.

Þrátt fyrir háan aldur heldur Elísabet drottn­ing áfram að taka þátt í opin­berum athöfnum, þó þeim hafi fækkað í seinni tíð og muni fækka enn frekar á næsta ári. Erlendar heim­sóknir drottn­ing­ar­innar eru enn fremur orðnar mjög fáar. í breska blað­inu The Times á mið­viku­dag var sagt frá því að Filippus prins hefði tekið þátt í fleiri opin­berum athöfnum á árinu en afa­synir hans tveir, Vil­hjálmur og Harry, og Kate til sam­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár