Fyrrverandi dúx orðinn forsætisráðherra Íslands

Katrín Jak­obs­dóttir er önnur konan sem gegnir emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra en hvað eftir annað mælist hún með hvað mest per­sónu­fylgi í skoð­ana­könn­unum af öllum starf­andi stjórn­mála­mönnum. En hver er Kata Jak, eins og hún er gjarnan kölluð?

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, er nú orðin for­sæt­is­ráð­herra í nýrri stjórn VG, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Gríð­ar­legt per­sónu­fylgi Katrínar á sér fá for­dæmi og fagna margir því að hún sé orð­inn for­sæt­is­ráð­herra. Hún er þriðja yngsta mann­eskjan til að gegna þessu valda­mesta emb­ætti á Íslandi en þrátt fyrir það er hún alls eng­inn nýgræð­ingur í stjórn­málum. En hver er bak­grunnur Katrínar Jak­obs­dóttur?

Katrín er fædd í Reykja­vík þann 1. febr­úar 1976. Hún er gift Gunnari Erni Sig­valda­syni heim­spek­ingi og eiga þau saman þrjá syni, þá Jakob, Illuga og Ármann Áka.

Faðir hennar hét Jakob Ármanns­son en hann lést árið 1996, 57 ára að aldri. Hann var banka­maður og kenn­ari. Móðir hennar var sál­fræð­ing­ur­inn Signý Thorodd­sen en hún fædd­ist árið 1940 og lést 2011.

Afi Katrínar var Sigurður S. Thorodd­sen alþing­is­maður og meðal ann­arra skyld­menna hennar voru Katrín Thorodd­sen alþing­is­kona og Skúli S. Thorodd­sen alþing­is­maður og langafinn Skúli Thorodd­sen alþing­is­maður.

Dúx með 9,7

Katrín útskrif­að­ist sem stúd­ent frá Mennta­skól­anum við Sund árið 1996. Hún dúxaði með 9,7 í aðal­ein­kunn, hæstu ein­kunn sem stúd­ent við MS hafði fengið fram að því.

„Ég hef svo sem enga töfrafor­múlu fyrir dúxa, en ég lærði vel fyrir prófin. Ég tek tarnir fyrir próf, fremur en að liggja alltaf yfir bók­unum og hef alltaf verið með góðar ein­kunnir,“ sagði Katrín í við­tali við Morg­un­blaðið í maí 1996.

Hún er ekki eini dúx­inn í fjöl­skyld­unni, því bræður hennar tveir, tví­burarnir Ármann og Sverrir, luku sínum stúd­ents­prófum frá Mennta­skól­anum við Sund með láði. Ármann dúxaði með 9,6 og Sverrir var annar sem­idúxa.

Ármann er pró­fessor í íslensku og rit­höf­undur. Frá því 2011 hefur hann gegnt stöðu pró­fess­ors við íslensku-og menn­ing­ar­deild Háskóla Íslands. Á mennta­skóla­árum sínum komst hann ásamt tví­bura­bróður sínum Sverri þrisvar í úrslit í Gettu betur og sigr­aði í þeirri keppni 1990. Árið 1989 var hann í ræðuliði skól­ans sem sigr­aði í Morfís-ræðu­keppn­inni. Árið 2001 var Ármann dóm­ari í Gettu betur.

Sverrir Jak­obs­son bróðir hennar er sagn­fræð­ingur en hann útskrif­að­ist frá Mennta­skól­anum við Sund árið 1990, lauk svo BA-prófi við Háskóla Íslands 1993 og MA-prófi frá Háskól­anum í Leeds í Bret­landi. Hann lauk dokt­ors­prófi frá HÍ 2005. Sverrir var aðjunkt í sagn­fræði við Háskóla Íslands árin 2010 til 2013, lektor 2013 til 2014 og hefur starfað sem pró­fessor í sagn­fræði við Háskóla Íslands frá árinu 2014. Sverrir var í for­svari fyrir Samtök her­stöðvaand­stæð­inga og for­maður þeirra 1999 til 2000.

Ármann og Sverrir í Gettu betur
Ármann og Sverrir í Gettu betur

Áhugi á glæpasögum

Katrín stund­aði nám við Háskóla Íslands og lauk þar BA-prófi í íslensku með frönsku sem auka­grein árið 1999. Katrín lauk meist­ara­námi í íslenskum bók­menntum frá HÍ árið 2004.

Hún skrif­aði bók upp úr BA-rit­gerð sinni sem nefn­ist Glæp­ur­inn sem ekki fannst: saga og þróun íslenskra glæpa­sagna.

Í við­tali við Vísi í jan­úar árið 2002 seg­ist hún alltaf hafa haft áhuga á glæpa­sögum. „Ég las Agöthu Christie á ung­lings­aldri og þótti hún ótrú­lega skemmti­leg. Upp­á­halds­barna­bæk­urnar voru Dul­ar­fullu-bæk­urnar og Fimm-bæk­urnar,“ sagði hún í við­tal­inu.

Í grein­inni segir að þegar komið hafi verið að því að skrifa BA-rit­gerð hafi Katrín gef­ist upp á hefð­bundnum rit­gerð­ar­yrk­is­efnum og tekið að sér að skrifa sögu íslenskra glæpa­sagna. Upp­lýs­ing­arnar sem lágu fyrir um verk­efnið hafi verið um það bil fimm línur í íslensku bók­mennta­sög­unni. Hún sagði að rann­sókn­ar­vinnan hafi verið ótrú­lega skemmti­leg. „Ég gekk um bæinn og spurði fólk sem komið var til vits og ára hvort það myndi eftir glæpa­sögum. Þessar gömlu íslensku glæpa­sögur voru mjög víð­lesnar. Eldra fólk las þær og hafði gaman af. Það er því nægur mark­aður fyrir glæpa­sögur á íslandi,“ sagði hún enn fremur í við­tal­inu.

„Mér finnst þessar sögur geig­væn­lega skemmti­legar og það var mjög gaman að lesa þær og stúd­era. Þær segja mikið um ráð­andi við­horf. Glæpa­sögur brjót­ast ekki gegn ríkj­andi hefðum; þær gera enga upp­reisn.“

Hún var mál­fars­ráðu­nautur á frétta­stofum RÚV í hluta­starfi 1999 til 2003 auk fjöl­margra sum­ar­starfa. Hún starf­aði jafn­framt í dag­skrár­gerð fyrir ljós­vaka­miðla og rit­störf fyrir ýmsa prent­miðla 2004 til 2006. Katrín kenndi í End­ur­menntun, símennt­un­ar­mið­stöðvum og Mími tóm­stunda­skóla 2004 til 2007 og gegndi rit­stjórn­ar­störfum fyrir Eddu - útgáfu og JPV-útgáfu 2005 til 2006. Einnig var hún stunda­kenn­ari við Háskóla Íslands, Háskól­ann í Reykja­vík og Mennta­skól­ann í Reykja­vík 2006 til 2007.

Katrín rökræðir í sjónvarpssal RÚV.
Katrín rök­ræðir í sjón­varps­sal RÚV.

Byrjaði ung í stúdentapólitík

Katrín varð þing­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis norður árið 2007 fyrir Vinstri hreyf­ing­una – grænt fram­boð. Hún varð mennta­mála­ráð­herra árið 2009 í stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra árin 2009 til 2013. Hún var sam­starfs­ráð­herra Norð­ur­landa 2009 til 2013.

Stjórn­mála­fer­ill hennar byrj­aði snemma en hún var í stúd­enta­ráði Háskóla Íslands og háskóla­ráði 1998 til 2000. Hún varð for­maður Ungra Vinstri grænna árið 2002 og gegndi því emb­ætti til árs­ins 2003. Katrín var full­trúi í fræðslu­ráði, síðar mennta­ráði, Reykja­víkur 2002 til 2005 og for­maður nefndar um barna­bóka­verð­laun fræðslu­ráðs Reykja­víkur 2002 til 2006.

Katrín var vara­borg­ar­full­trúi fyrir Reykja­vík­ur­list­ann 2002 til 2006 og vara­for­maður Vinstri hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs 2003 til 2013. Hún var for­maður sam­göngu­nefndar Reykja­víkur árið 2004 og for­maður umhverfis- og heil­brigð­is­nefndar Reykja­víkur 2004. Hún hefur setið í fjölda ann­arra nefnda í gegnum tíð­ina og var hún sam­starfs­ráð­herra Norð­ur­landa 2009 til 2013.

Katrín hefur verið for­maður VG síðan 2013. Hún tók við af Stein­grími J. Sig­fús­syni en hún fékk 98,4 pró­sent atkvæða á lands­fundi á sínum tíma.

Lék í myndbandi Bang Gang

Þess má til gam­ans geta að Katrín lék í mynd­bandi við lagið „Listen Baby“ með Bang Gang árið 1996. Lemúrinn rifj­aði upp leik­list­ar­hæfi­leika hennar í grein fyrir þremur árum. Í henni kemur fram að hljóm­sveitin Bang Gang hafi upp­haf­lega verið tveggja manna verk­efni skóla­fé­laga úr Mennta­skól­anum í Reykja­vík. Annar þeirra var Barði en hinn var Henrik Björns­son, sem átti síðar eftir að gera garð­inn frægan með hljóm­sveit­inni Singa­pore Sling. Meðlimir sveit­ar­innar voru rúm­lega tví­tugir og Katrín var á sama aldri.

Hér fyrir neðan má sjá mynd­bandið þar sem Katrínu bregður fyrir í hlut­verki dul­ar­fullu kon­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár