Þegar gígantískt skip strandar í skurði

Á þeim um það bil sex sól­ar­hringum sem Ever Given sat pikk­fast í Súes-skurð­inum tókst því að setja alþjóða við­skipti í hnút, valda hund­ruð millj­arða króna skaða og fá marga til að glotta í kamp­inn en sam­tímis klóra sér í hausnum og spyrja: Hv

Í meira en 150 ár hafa flutn­inga­skip geta siglt með vörur heims­horna á milli í gegnum Súes-skurð­inn og stytt för sína milli áfanga­staða um þús­undir kíló­metra og fleiri sól­ar­hringa. Svo mikið verk­fræði­undur þótti skurð­ur­inn á sínum tíma að mekt­ar­fólk Evrópu flykkt­ist að á lysti­bátum sínum til að verða vitni að því er haftið var rofið og sjór úr Mið­jarð­ar­hafi tók að flæða inn í Rauða­hafið. Og síðan hefur skurð­ur­inn verið þarna og fæstum sér­stak­lega ofar­lega í huga nema auð­vitað skip­stjórum og hafn­ar­stjórum. Þeir sem siglt hafa í gegnum hann segja það þó ævin­týri lík­ast. Að fylgj­ast með því sem fyrir augu ber; heima­mönnum, Egyptum, á gangi eða á baki asna með varn­ing – kannski á leið á markað. Eins og dæmi­saga úr Bibl­í­unni sem lifnað hefur við.

En þeir sem halda um stýri flutn­inga­skip­anna, sem í tuga tali fara um hinn 193 kíló­metra langa skurð dag­lega, geta ekki leyft sér að fylgj­ast með mann­líf­inu á bökkum hans. Það er ekki ein­falt að sigla 220 þús­und tonna stál­klumpi, fullum af allra handa vörum og jafn­vel lif­andi skepnum, í gegn. Það krefst ein­beit­ingar. Mikillar ein­beit­ingar. Og þó að Súes-skurð­ur­inn sé kannski í okkar huga í veð­ur­para­dís heims­ins, læk­ur­inn úr hinu sól­ríka Mið­jarð­ar­hafi sem við heim­sækjum að sum­ar­lagi til að láta streitu vetr­ar­ins í norðri líða úr okkur, er þar allra veðra von.

Það sem skip­stjór­arnir ótt­ast mest eru hinir alræmdu sand­byljir. Þegar skyggnið verður, stundum skyndi­lega, lítið sem ekk­ert og sveipar sjón­deild­ar­hring­inn grá­brúnni hulu og lit­brigði lands­ins til allra átta verða dauf.

Þetta er einmitt skýr­ingin sem skipa­fé­lagið sem rekur flutn­inga­skipið með skrítna nafn­inu, Ever Given, hefur gefið á því að það fest­ist í skurð­inum að morgni þriðju­dags­ins í síð­ustu viku og bif­að­ist ekki af strand­stað sól­ar­hringum saman. Allir 20 þús­und gám­arnir um borð hafi virkað eins og helj­ar­innar segl og þrátt fyrir að skip­stjór­inn hafi reynt allt hvað hann gat end­aði sigl­ingin frá Malasíu til Rott­er­dam í Hollandi svona: Skip sem er sam­bæri­legt fjórum fót­bolta­völlum á breidd og svipað á lengd og hæð Empire State-bygg­ing­ar­innar, gróf sig niður í leir­kenndan botn­inn og lok­aði aug­unum.

Eða svo mætti halda. Að það þyrfti bara að hvíla sig.

Til að koma í veg fyrir að Súes-skurð­ur­inn yrði hinsti hvílu­staður þess var óðara kölluð út aðstoð. Bubbi byggir mætti á gröf­unni sinni og keppt­ist við að moka sandi frá stefni þess.

Eða svo mætti halda. Að einn krafta­verka­maður úr eyði­mörk­inni hefði verið kall­aður til. Að hér ætti að leika sama leik­inn og fyrir nokkur þús­und árum: Þegar Davíð sigr­aði Golíat.

En Golíat virð­ist hafa safnað ægi­legum kröftum síðan hann barð­ist síð­ast við litla mann­inn. Sama hvað var ýtt, togað, grafið, dælt og tæmt beit það ekki á hans stóra skrokki. Vélar með sam­tals tug­þús­undir hest­afla að vopni máttu sín lít­ils. Það var ekki fyrr en nátt­úru­fyr­ir­brigði brá fyrir á him­in­hvolf­inu að hann fór að mjakast úr stað. Og loks losna.

Þetta fannst okkur mörgum fyndið. Þegar myndin af litlu gröf­unni að reyna sitt besta birt­ist fyrst var eins og eld­ing færi um heila­búið og kveikti neista sem vakti okkur ræki­lega af far­sótt­ar­þreyt­unni: Árið 2021, mörgum ára­tugum eftir að fyrsta fólkið steig fæti á tunglið, hund­ruðum ára eftir að Kína­m­úr­inn var byggður, árþús­undum eftir að píramíd­arnir voru reistir, strandar fer­líki byggt af mönnum – í skurði gröfnum af mönnum – og fát kemur á mann­skap­inn. Verk­fræði­þekk­ingin var þá ekki meiri.

Kannski minnti þetta okkur með ein­hverjum hætti á veiruna örsmáu sem við höfðum kannski ekki sér­stak­lega miklar áhyggjur af í upp­hafi. Því var það ekki þannig að lækna­vís­indin höfðu tekið svo miklum fram­förum á stuttum tíma?

Jú, en nátt­úran getur verið óút­reikn­an­leg. Þar er fyr­ir­sjá­an­leik­inn ekki alltaf mik­ill. Sér­stak­lega ekki þegar mis­jafnar athafnir manna hafa breytt flæði hennar. Spillt takti hennar. Hrynj­anda. Sveiflum og straumum.

Litla grafan og stóra skipið. Mynd: EPA
Litla grafan og stóra skipið. Mynd: EPA

„Ég að reyna að berj­ast við far­ald­ur­inn,“ skrifar net­verji við mynd­ina af gröf­unni við skipið og upp­sker ótelj­andi læk. Mynd­lík­ingin er svo sterk að fjöldi fólks stóðst ekki freist­ing­una að nota hana til að lýsa til­finn­ingum sínum eftir meira en árs stríð við veiruna.

Annar sam­kvæm­is­leikur hefur falist í því að máta Ever Given á hinn og þennan stað­inn á heimskort­inu. „Smellpassar í höfn­ina í Nes­kaup­stað, en svo­lítið klunna­legt við bæj­ar­bryggj­una,“ skrifar einn og annar athugar hvernig færi á því að hafa það í Stuðla­gili.

Því það er stórt. Svo risa­stórt. Ekki svo stórt að eng­inn kom­ist yfir það nema fugl­inn fljúg­andi en þó svo stórt að það getur ekki siglt í gegnum Panama-skurð­inn. Og aug­ljós­lega tæp­lega í gegnum félaga hans, Súes.

Stærðin hefur fengið okkur til að taka and­köf, skip Eimskips og Samskips virð­ast dverg­vaxin í sam­an­burð­inum, en þó er Ever Given ekki stærsta flutn­inga­skip heims. Skipið sem það met á getur borið yfir 30 þús­und gáma.

Um 20 þúsund gámar voru um borð í skipinu er það strandaði.
Um 20 þús­und gámar voru um borð í skip­inu er það strand­aði.

Gáma­flutn­ingar hófust á sjötta ára­tugnum eftir að banda­rískum við­skipta­manni hafði hug­kvæmst að staðla þau ílát sem varn­ingur er fluttur í um heim allan. Til varð „gámur­inn“, ýmist 20 fet eða 40 fet að lengd, og í kjöl­farið gátu skipa­fé­lög skipu­lagt flutn­inga sína af nákvæmni. Þetta umbylti vöru­flutn­ingum og í kjöl­farið hófu skipa­smíða­stöðvar að smíða flutn­inga­skip sem gátu flutt marga gáma í einu. Smám saman stækk­uðu skipin. Og um alda­mótin þótti nokkuð gott ef þau gátu flutt um 5.000 gáma í einu.

En svo gerð­ist eitt­hvað.

Í upp­hafi nýs árþús­unds hófu skipin að stökk­breyt­ast í stærð. Skipa­smíða­stöðvar í t.d. Japan og Kína dældu út skipum, ekki aðeins stórum heldur gígantískt stórum.

Eitt þeirra er Ever Given. Sem við fæst höfðum nokkra hug­mynd um að vagg­aði og velt­ist um heims­höfin stút­fullt af öllum þeim vörum sem við helst óskum okkur.

Ef þú lítur í kringum þig núna, les­andi góður, má ætla að um 90 pró­sent af þeim hlutum sem þú sérð hafi verið fluttir til þín frá upp­runa­stað með skipi. Ef þú situr er lík­legt að stól­inn eða sóf­inn hafi komið til lands­ins í skipi, sömu­leiðis öll þau föt sem þú klæð­ist og mögu­lega bróð­ur­part­ur­inn af því sem þú ætlar að snæða í dag.

Svo umfangs­miklir eru vöru­flutn­ingar milli landa og heims­álfa í nútíma sam­fé­lagi.

Við leyfðum okkur að gera grín að strandi Ever Given af því atburð­ur­inn ógn­aði mjög ólík­lega lífi. Við leyfðum okkur að gant­ast með stóra skipið í skurð­inum af því að við höfum mörg hvert haft það svo­lítið skítt, svona miðað við aldur og fyrri störf, síð­ustu mán­uði.

En að baki strand­inu er þó tölu­verð alvara. Ever Given, yfir­fullt af vörum sem það var, var langt í frá eina skipið sem beið eftir að kom­ast í gegnum Súes-skurð­inn í tæpa viku. Það gerðu einnig um 300 önnur flutn­inga­skip. Sum voru að flytja mat­væli. Sum dýr. Dýr sem flutt eru langar leiðir landa á milli til slátr­unar og sífellt er harð­ara gagn­rýnt með til­liti til dýra­verndar og lofts­lags­mála.

Við vitum hvað getur gerst í ísskápnum okkar á einni viku. Hversu fljótt girni­legar mat­vörur geta misst sjar­mann. Það sama hefur í ein­hverjum til­vikum átt sér stað um borð í flutn­inga­skip­unum í Súes. Í þessu fellst sóun á nátt­úr­unnar gjöfum og fjár­hags­legur skaði.

Afhend­ingar á vörum úr skip­unum töfð­ust einnig. Ekki aðeins um viku heldur stundum mun lengur því stæði við hafnir eru tak­mörkuð auð­lind og mann­skapur til upp­skip­unar sömu­leiðis.

Gámar eru líka tak­mörkuð auð­lind. Nú bíða óþol­in­móðir fram­leið­endur með vörur sínar hér og hvar um heim­inn eftir að fá járn­kassa til að senda þær vestur á bóg­inn, til norð­urs, suð­urs eða vest­urs. Svo þær kom­ist inn um dyrnar á þínu heim­ili. Inn í ís- eða búr­skáp. Upp á vegg eða ofan í skúffu. Svo þú getir klætt þig í þær eða stungið þeim upp í þig.

Þversum í Súes-skurðinum.
Þversum í Súes-skurð­inum.

Sér­fræð­ingar telja að það geti tekið marga mán­uði að vinda ofan af þessum töfum. Afsök­unin „því miður, varan þín var föst í Súes-skurð­inum“ gæti orðið við­höfð næstu vik­urnar í það minnsta.

Því um leið og Ever Given stífl­aði skurð­inn stífl­aði það líka hag­kerfið. Setti í það tappa um hríð þó að hann hafi verið lekur. Hefti frjálst flæði vara og mynd­aði þrýst­ing á fram­leiðslu- og neyslu­keðj­urnar sem við leiðum í dags­ins önn sjaldan hug­ann að.

Eftir að ljóst var að Bubbi byggir og litla skurð(!)grafan hans hafði ekk­ert í Ever Given voru tog­bátar kall­aðir út og fleiri vél­knúin tæki til að reyna sig við verkið. Eitthvað vand­ræða­legt var við það hversu lítið (sama sem ekk­ert) mið­aði. Vinnu­vél­arnar og mann­fólkið voru eins og iðnir en ósköp van­máttugir maurar við hlið flikk­isins.

En þá fórn­aði nátt­úran höndum og minnti á að hún byggi yfir tog­kröftum öfl­ugri en nokkuð af því sem mann­inum hefði tek­ist að skapa. Þetta ákvað svo fólkið að nýta sér til að „frelsa“ Súes-skurð­inn. Koma Ever Given á flot.

Gervitunglamynd Evrópsku geimvísindastofnunarinnar þar sem til hægri sjást áhrifin af strandinu á skip sem bíða við skurðinn í Rauðahafinu.
Gervi­tungla­mynd Evrópsku geim­vís­inda­stofn­un­ar­innar þar sem til hægri sjást áhrifin af strand­inu á skip sem bíða við skurð­inn í Rauða­haf­inu.

Á mánu­dag röð­uðu sólin og tunglið sér þannig upp að óvenju stór­streymt varð, tveimur dögum eftir að tunglið náði fyll­ingu og var óvenju nálægt jörðu, meira en búast má í flestum mán­uðum árs­ins. Sjáv­ar­borð hækk­aði við þetta um tæp­lega hálfan metra.

Og þannig atvik­að­ist það að Ever Given, „skrímslið“ eins og sumir vilja kalla það, tók að hreyfast á ný og það sem vant­aði upp náð­ist með mask­ínum mann­anna.

Ekki er enn vitað hvað varð til þess að skipið strand­aði. Mögulega áttu þar nokkrir þættir hlut að máli. Ekki er úti­lokað að tæknin hafi verið að stríða skip­stjór­anum og ekki er heldur hægt að afskrifa að mann­leg mis­tök hafi átt sér stað. Veðrið lék svo sitt hlut­verk. En vindur er þar stundum mik­ill, það er ekk­ert nýtt, og í fyrra, svo dæmi sé tekið, fóru tæp­lega 19 þús­und skip af öllum stærðum og gerðum í gegnum skurð­inn án nokk­urra vand­kvæða.

Ever Given var siglt í öruggt skjól þar sem þetta verður rann­sakað til hlítar. Á meðan sitja margir sveittir við að reikna út hinn fjár­hags­lega skaða sem tal­inn er hlaupa á tugum millj­arða banda­ríkja­dala. Og reyna að finna þann sem á að borga – ber hina fjár­hags­legu ábyrgð.

Þegar fyrstu bátarnir sigldu í gegnum Súes-skurðinn árið 1869.
Þegar fyrstu bát­arnir sigldu í gegnum Súes-skurð­inn árið 1869.

Þegar fyrsta skóflustungan að Súes-skurð­inum var tekin árið 1858 var hún ekki sú síð­asta. Skurð­ur­inn var bók­staf­lega mok­aður með handafli fyrst í stað. Frakkar höfðu tryggt sér samn­inga við Egypta um gerð hans. Það þurfti margar hendur. Þær voru egyp­skar. Þúsundir verka­mann­anna létu lífið. Sjórinn á þessum slóðum mun því um alla eilífð vera lit­aður blóði þeirra.

Bretar tryggðu sér lengi vel yfir­ráða­rétt­inn og her­námu nokkrum árum síðar Egypta­land. Það var svo ekki fyrr en árið 1956, sama ár og gámur­inn var fund­inn upp, að Egyptar ákváðu að þjóð­nýta skipa­skurð­inn. Þeir vildu fá umsýslu­gjöldin í sinn vasa til að byggja stóra virkjun í Níl­ar­fljóti, koma landi sínu áleiðis inn í nútím­ann. Sú yfir­færsla á valdi fór ekki hljóð­lega fram. Ísraelar, Bretar og Frakkar sýndu klærnar en hörf­uðu nokkrum mán­uðum síðar vegna þrýst­ings frá Sam­ein­uðu þjóð­unum. Á meðan þessu brölti stóð var skurð­ur­inn meira og minna lok­aður.

Er hann var opn­aður að nýju fyrir skipa­um­ferð árið 1957, þá að fullu undir stjórn Egypta, varð hann að tákn­mynd fyrir enda­lok nýlendu­tím­ans. Um hann var aftur deilt síðar, m.a. í sex daga stríð­inu við Ísraela árið 1967. Nokkur flutn­inga­skip urðu þá inn­lyksa í skurð­inum og losn­uðu ekki úr herkvínni fyrr en árið 1975. Skipin fimmtán voru frá átta löndum og skip­verjarnir bund­ust vina­böndum og héldu m.a. sína eigin ólymp­íu­leika árið 1968, árið sem hinir eig­in­legu leikar fóru fram í Mexíkó.

Súes-skurð­ur­inn breytti heim­inum. Hann breytti heims­mynd okkar. Stytti leið­ina milli Asíu og Evrópu um helm­ing. Ekki þurfti lengur að sigla fyrir Góðr­ar­von­ar­höfða, syðst í Afríku, til að koma sendi­bréfum og marg­vís­legum varn­ingi – og fólki – milli nýlend­anna við mið­baug og herra­þjóð­anna í Evrópu.

Í dag er hann fjórða fjöl­farn­asta sigl­inga­leið flutn­inga­skipa heims­ins.

Lítið sem ekk­ert hefur heyrst frá skip­verjum Ever Given, hvorki á meðan strand­inu stóð né eftir það. Þeir eru flestir frá Indlandi. Landi sem Bretar arð­rændu ára­tugum saman og klöpp­uðu því hátt er sigl­inga­leiðin með ráns­feng­inn helm­ing­að­ist á sínum tíma. Landi sem var á löngu tíma­bili, allt til árs­ins 1947, kallað „krúnu­djásn“ breska heims­veld­is­ins.

Þegar hreyf­ing komst loks á Ever Given á mánu­dag heyrð­ist eng­inn hvellur. Ekkert brak. Engir skruðn­ingar. Það bara fór á flot á ný. Var vaknað. Tilbúið að halda áfram. Það mátti þó heyra fagn­að­aróp björg­un­ar­sveit­anna og jafn­vel berg­mál and­varpa allra þeirra sem setið höfðu límdir við tölvur og síma um víða ver­öld og fylgst með aðgerðum. Sumir í sótt­kví, aðrir í ein­angrun og vel­flestir búandi við harðar tak­mark­anir vegna heims­far­ald­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið undanfarið ár