Aurum-málið tekið fyrir á ný í héraðsdómi

Aurum-málið verður tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Þetta er í annað sinn sem málið fer fyrir hér­aðs­dóm, en sýknu­dómur í mál­inu var ógiltur í Hæsta­rétti fyrir rúmu ári síðan og honum vísað aftur í hérað.

Sak­born­ingar í Aur­um-­mál­inu, þeir Lárus Weld­ing, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitn­is, Magnús Arnar Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fyrrum aðal­eig­andi Glitn­is, og Bjarni Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi við­skipta­stjóri bank­ans, voru allir sýkn­aðir af ákæru sér­staks sak­sókn­ara um umboðs­svik í hér­aði fyrir tveimur árum síðan. 

Málið snýst um sex millj­arða króna lán­veit­ingu til félags­ins FS38 í júlí 2008. Lánið var veitt til að fjár­magna kaup FS38, eign­ar­laust félag í eigu Pálma Har­alds­son­ar, á 25,7 pró­sent hlut Fons hf., líka í eigu Pálma, í Aurum Hold­ing Limited. Hluti láns­ins, einn millj­arður króna, var ráð­stafað inn á per­sónu­legan banka­reikn­ing Jóns Ásgeirs. Hann nýtti þann millj­arð síðan í að borga meðal ann­ars 705 millj­óna króna yfir­drátt­ar­heim­ild sína hjá Glitni. Sér­stakur sak­sókn­ari vill meina að Jón Ásgeir hafi þannig fengið hlut í ávinn­ingi af brot­inu og notið hagn­að­ar­ins.

Sér­stakur sak­sókn­ari fór fram á sex ára fang­elsi yfir Lárusi Weld­ing þegar málið var flutt í hér­aði og fjög­urra ára fang­elsi yfir þeim Jóni Ásgeiri, Magn­úsi Arn­ari og Bjarna.

Ógilt vegna efa um óhlutdrægni dómara

Helgi Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ari hafði kraf­ist ómerk­ingar á með­ferð máls­ins fyrir hér­aðs­dómi á grund­velli þess að einn með­dóm­ari máls­ins hefði verið van­hæfur til að fjalla um það. Um­ræddur með­dóm­ari er Sverrir Ólafs­son, fjár­mála­verk­fræð­ing­ur, en hann er bróðir Ólafs Ólafs­son­ar, kenndum við Sam­skip, sem hlaut þungan fang­els­is­dóm vegna aðildar sinnar að Al-T­hani flétt­unni svoköll­uðu. Þetta lá ekki fyrir við með­ferð máls­ins í hér­aði. Hæsti­réttur féllst á það.

Fjöl­miðlar komust á snoðir um tengslin eftir dóms­upp­kvaðn­ingu í hér­aði og spurðu Ólaf Þór Hauks­son, sér­stakan sak­sókn­ara, hvort hann hefði vitað af tengsl­unum, sem hann neit­aði. Í kjöl­far­ið, nánar til­tekið 9. júní 2014, ræddi frétta­stofa RÚV við með­dóm­ar­ann Sverri. Í þeirri frétt sagði hann: „Ég fór til dóm­ar­ans, Guð­jóns St. Mart­eins­son­ar, sagði honum frá tengslum mín­um. Hann taldi að það væru ekki vand­kvæði á því að ég tæki þetta að mér … Ég trúi því ekki í eina sek­úndu að sér­stakur sak­sókn­ari hafi ekki vitað af mínum tengslum strax í upp­hafi. Ef hann vissi ekki af mínum tengsl­um, þá ber það vott um afskap­lega léleg og yfir­borðs­kennd vinnu­brögð. Mér finnst við­brögð hans, sko, hæpin og mér finnst þetta bera vott um örvænt­ing­ar­fullar og jafn­vel óheið­ar­legar aðgerð­ir. Og hann grípur til þeirra á erf­iðum tímum þegar að trú­verð­ug­leiki hans stofn­unar er eig­in­lega í mol­u­m.“

Í sjón­varps­fréttum saman kvöld bætt­ust eft­ir­far­andi ummæli Sverris við frétt­ina: „Ég trúi því fast­lega að sér­stakur sak­sókn­ari hafi vitað allan tím­ann hver ég var, hann telji það hins vegar kost að full­yrða núna að hann hafi ekki vitað það. Það laum­ast að mér sá grunur að sak­sókn­ari sé í raun­inni að gera þetta til þess að veikja dóm­inn.“

Guðjón þurfti að víkja sæti

Í októ­ber í fyrra varð svo ljóst með úrskurði Hæsta­réttar að Guðjón St. Mart­eins­son hér­aðs­dóm­ari þyrfti að víkja sæti í mál­inu, en áður hafði hér­aðs­dómur úrskurðað að hann þyrfti ekki að víkja. Sér­stakur sak­sókn­ari hafði gert kröfu um að Guðjón véki sæti vegna eft­ir­mála máls­ins í hér­aðs­dómi.

Hann taldi Guðjón ekki geta talist hæfan til að fara með málið. Ástæðan er sú að eftir að Hæsti­réttur ómerkti nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms í mál­inu í apríl og vís­aði því aftur til hér­aðs­dóms sendi Guð­jón tölvu­póst til rík­is­sak­sókn­ara og verj­enda ákærðu þar sem hann ræddi mál­ið. Með tölvu­póst­inum sendi hann grein sem hann hafði ætlað að birta í Frétta­blað­inu, en gerði ekki. Greinin fjall­aði um málið og umræð­una um van­hæfi Sverris Ólafs­sonar. Þrátt fyrir að hann hafi hætt við birt­ing­u ­sögð­u 365 miðlar frá inni­haldi grein­ar­inn­ar í fréttum og leið­ara­skrifum.

„Ég varð bæði undr­andi og fannst að mér vegið með ummælum sér­staks sak­sókn­ara í fjöl­miðlum eftir upp­sögu dóms­ins. Af því til­efni sendi ég hinn 10. júní 2014 stutta grein til birt­ingar í dag­blaði. Mér þótti sann­gjarnt og eðli­legt að greina rík­is­sak­sókn­ara frá þessu og ræddi því við hana í síma sama dag auk þess að senda henni grein­ina. Sama dag ræddi ég sím­leiðis við sér­stakan sak­sókn­ara sem kann­að­ist ekki við að hafa rætt bræðra­tengslin í sím­tali okkar 13. mars 2014 þótt hann kann­að­ist við sím­talið og ýmis­legt sem þar var rætt. Eftir þetta ákvað ég að birta ekki grein­ina enda ljóst að birt­ingin myndi valda miklu fjaðrafoki sem ekki væri á bæt­and­i.“

Guð­jón segir í tölvu­póst­inum að á þessum tíma hafi hann hvorki séð fyrir né reiknað með að krafa ákæru­valds­ins við áfrýjun yrði krafa um ómerk­ingu máls­ins. „Ég hefði hins vegar birt grein­ina hefði svo ver­ið,“ segir í tölvu­póst­in­um. Þá segir hann að Sverrir hafi látið ummælin falla í fjöl­miðlum „eftir ómak­lega aðdróttun sér­staks sak­sókn­ara í hans garð og raunar gegn mér einnig“.

Í dómi Hæsta­réttar er einnig vitnað í óbirtu blaða­grein­ina, þar sem Guð­jón segir að Ólafur Þór Hauks­son, sér­stakur sak­sókn­ari, hafi hringt í hann og greint honum frá tengslum Sverris Ólafs­sonar og Ólafs Ólafs­sonar að fyrra bragði þann 13. mars 2014. „Lauk sam­tal­inu með því að sér­stakur sak­sókn­ari kvað ákæru­valdið ekki ætla að gera athuga­semd við hæfi með­dóms­manns­ins og var það ekki gert.“ Þetta hefur komið fram í mál­inu áður og hefur Ólafur Þór sagt að í umræddu sím­tali milli hans og Guð­jóns hafi hann rætt um það að Sverrir hafi unnið fyrir slita­stjórn Glitn­is. Þetta kemur einnig fram í dómn­um, þar sem vitnað er til tölvu­pósts sem Ólafur Þór sendi til rík­is­sak­sókn­ara þann 18. febr­ú­ar. „Enn og aftur skyld­leika­tengsl með­dóm­ar­ans við C [Ólaf Ólafs­son, inn­skot blaða­manns] voru ekki rædd í því sím­tali enda hefði ákæru­valdið þá klár­lega gert athuga­semd við þá skipan dóms­ins,“ segir í tölvu­póst­in­um.

Hæsti­réttur úrskurð­aði að Guðjón skyldi víkja sæti vegna þess að orð hans væru fallin til þess að draga mætti með réttu í efa að hugur hans gagn­vart Ólafi Þór Hauks­syni, sér­stökum sak­sókn­ara, væri með þeim hætti að tryggt væri að óhlut­drægni yrði gætt við úrlausn máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár