Már: Samherji hefur rétt til að kæra mig

Seðla­banka­stjóri vill ekki gang­ast við því að bank­inn hafi gengið of hart fram gegn Samherja en telur fyr­ir­tækið hafa fullan rétt til að kæra sig. Hann seg­ist þó ekki ætla að tjá sig meira um það.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri vill ekki gang­ast við því að bank­inn hafi gengið of hart fram gegn Samherja. Hann segir að þar sem málin hafi aldrei kom­ist til dóm­stóla þýði það að Samherja-menn séu ekki sekir en Seðla­bank­inn sé heldur ekki sekur. Hann segir Samherja hafa rétt til að kæra sig og hafi enga skoðun á því.

[links]Þetta kemur fram í frétt RÚV en Már var í ítar­legu við­tali við Kristján Krist­jáns­son í útvarps­þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun.

Þann 8. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn kvað Hæsti­réttur Íslands upp dóm í máli Seðla­banka Íslands gegn Samherja hf. Í dómnum er stað­fest nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að fella úr gildi ákvörðun Seðla­banka Íslands frá 1. sept­em­ber 2016 um að Samherji hf. skuli greiða 15 millj­ónir króna í stjórn­valds­sekt til rík­is­sjóðs vegna brota gegn reglum um gjald­eyr­is­mál.

Forsætisráðherra óskaði eftir greinargerð

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sendi Gylfa Magn­ús­syni for­manni banka­ráðs Seðla­banka Íslands þann 12. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn bréf vegna umfjöll­unar um dóm Hæsta­réttar í máli Seðla­banka Íslands gegn Samherja hf. þar sem óskað er eftir grein­ar­gerð banka­ráðs um málið.

„Sér­stak­lega er óskað eftir upp­lýs­ingum um það hvað lá að baki ákvörðun Seðla­banka Íslands um að end­ur­upp­taka málið sem til­kynnt var Samherja hf. 30 mars 2016. Þá óska ég einnig eftir útlistun á því hvort og þá með hvaða hætti Seðla­banki Íslands hygg­ist bregð­ast við dómnum og hvort dóms­nið­ur­staðan kalli á úrbætur á stjórn­sýslu bank­ans og þá hvaða,“ segir í bréfi for­sæt­is­ráð­herra.

Kannað að setja málið í sáttarferli

Már segir í við­tal­inu á Sprengisandi að hann hafi strax í upp­hafi látið kanna þann mögu­leika hvort ekki væri hægt að setja málið í sátt­ar­ferli. „Það var kallað á hæsta­rétt­ar­lög­mann sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að ég mætti það ekki. Slíkt væri brot á lögum. Ég yrði að kæra ef grunur væri um meiri­háttar brot,“ segir hann.

Seðla­banka­stjóri tekur það fram í við­tal­inu að allt sem hann segði fæli ekki í sér neina full­yrð­ingu um sekt Samherja, eng­inn dómur hafi fallið og muni ekki gera. „Það er ekki bank­ans segja til um hvort ein­hver sé sekur eða ekki. Ef það er rök­studdur grunur um meiri­háttar brot þá megum ekki bara kæra heldur eigum við að kæra.“

Málið kom ekki frá RÚV

Már segir það af og frá að málið hafi komið frá RÚV. Rann­sóknin hafi verið í fullum gangi þegar Kastljós hafði sam­band og spurt hvort þetta gæti stað­ist. „Bankinn varð mjög óró­legur yfir því að þetta gæti mögu­lega spillt fyrir rann­sókn máls­ins. Þau fengu engin gögn frá okkur,“ segir Már. Hann hafi heldur ekk­ert vélað um umfangs­mikla hús­leit sem ráð­ist var í hjá Samherja á sínum tíma. „Þetta virkar mjög umfangs­mikið en þegar menn telja að það sé nauð­syn­legt að kom­ast í öll gögn á einum tíma­punkti þá verður það ekki gert nema í umfangs­mik­illi aðgerð,“ segir hann.

Már bendir á að Samherji hafi reynt að hnekkja þess­ari hús­leit fyrir dóm­stólum en Seðla­bank­inn hafi unnið öll þau mál. Málið hafi síðan verið kært til sér­staks sak­sókn­ara sem hafi þá kom­ist að því að ekki væri laga­stoð fyrir því að kæra fyr­ir­tæki í saka­máli fyrir gjald­eyr­is­brot. Hann segir að þetta hafi verið í lögum síðan 2007 en ekki upp­götvast fyrr en árið 2013 og hafi eyði­lagt fjölda mála hjá FME. „Sér­stakur sak­sókn­ari hafði áður tekið við Ursusar-mál­inu og þar var ekki gerð þessi athuga­semd.“

Sak­sókn­ari hafi því bent Seðla­bank­anum á að mögu­leik­arnir væru annað hvort stjórn­valds­sekt eða heima­færa brot upp á ein­stak­linga. Málið hafi því ekki verið gert aft­ur­reka. „Á þeim tíma­punkti er þetta enn meiri­háttar mál og það er kært aftur á hendur ein­stak­lingum,“ segir Már.

Sak­sókn­ari hafi verið með málið hjá sér í tvö ár og fram­kvæmt marg­vís­legar rann­sóknir en síðan sent það aftur til baka með þeim skila­boðum að það hefði vantað und­ir­skrift ráð­herra á reglu­gerð en líka að það væri erfitt að heim­færa þessi til­teknu brot upp á ein­stak­linga.

Hann segir að þegar ljóst var að þessa und­ir­skrift vant­aði hafi Seðla­bank­inn fellt niður allt sem bank­inn taldi sig geta fellt niður án þess Samherji fengi ein­hverja sér­staka með­ferð. Það sé alvar­leg ásökun að saka bank­ann um að hafa af ásetn­ingi borið Samherja röngum sökum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár