Telur Má hafa misbeitt valdi sínu

Lögmaður Samherja hf. segir í opnu bréfi til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í Morg­un­blað­inu í morgun að seðla­banka­stjóri hafi svo sann­ar­lega mis­farið með vald sitt við með­ferð Sam­herj­a­máls­ins og að hann eigi ekki að halda því.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri. Mynd: Seðlabankinn

Garðar G. Gíslason lög­maður Samherja hf. birtir opið bréf til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í Morg­un­blað­inu í morgun þar sem hann hvetur hana til að kynna sér dóm Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem Hæsti­réttur stað­festi á dög­unum.

[links]Þann 8. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn kvað Hæsti­réttur Íslands upp dóm í máli Seðla­banka Íslands gegn Samherja hf. Í dómnum er stað­fest nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Reykja­víkur um að fella úr gildi ákvörðun Seðla­banka Íslands frá 1. sept­em­ber 2016 um að Samherji hf. skuli greiða 15 millj­ónir króna í stjórn­valds­sekt til rík­is­sjóðs vegna brota gegn reglum um gjald­eyr­is­mál.

Garðar segir í bréf­inu að lögum sam­kvæmt sé mikið vald falið seðla­banka­stjóra og að það vald hafi Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri svo sann­ar­lega mis­farið með við með­ferð máls­ins. „Sá sem mis­fer svo með opin­bert vald á ekki að fá að halda því,“ segir hann.

Eins og fram kom í fréttum í gær hefur Katrín sent Gylfa Magn­ús­syni for­manni banka­ráðs Seðla­banka Íslands bréf vegna umfjöll­unar um dóm Hæsta­réttar í máli Seðla­banka Íslands gegn Samherja hf. þar sem óskað er eftir grein­ar­gerð banka­ráðs um málið.

„Hér með óska ég eftir grein­ar­gerð banka­ráðs um mál Samherja frá þeim tíma sem rann­sókn hófst á meintum brotum á reglum um gjald­eyr­is­mál. Sér­stak­lega er óskað eftir upp­lýs­ingum um það hvað lá að baki ákvörðun Seðla­banka Íslands um að end­ur­upp­taka málið sem til­kynnt var Samherja hf. 30 mars 2016. Þá óska ég einnig eftir útlistun á því hvort og þá með hvaða hætti Seðla­banki Íslands hygg­ist bregð­ast við dómnum og hvort dóms­nið­ur­staðan kalli á úrbætur á stjórn­sýslu bank­ans og þá hvaða,“ segir í bréfi for­sæt­is­ráð­herra.

Garðar segir það ánægju­efni að sjá bréfið til banka­ráðs Seðla­banka Íslands. „Bitur reynsla segir mér hins vegar að það sé óvar­legt að treysta um of á við­brögð og afgreiðslu banka­ráðs Seðla­banka Íslands, svo oft sem atbeina þess og inn­grips var óskað undir með­ferð fyrr­greinds máls, án nokk­urs árang­urs,“ segir hann.

Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja var í við­tali á Hring­braut í gær­kvöldi en þar sagði hann að for­kólfar Seðla­banka Íslands hefðu ætlað sér með öllum ráðum að leggja Samherja að velli og virt þar að vettugi til­mæli og álit Sérstaks sak­sókn­ara og Skatt­rann­sókn­ar­stjóra sem öll voru Samherja í vil.

Hér fyrir neðan má sjá við­talið í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár