Seðlabankinn: Munum meta verklag eftir Samherjamálið

Seðla­banki Íslands hefur sent frá sér til­kynn­ingu vegna nið­ur­stöðu Hæsta­réttar í Sam­herj­a­mál­inu svo­nefnda, en nið­ur­staðan féll Samherja í vil.

Verklag innan Seðla­banka Íslands verður yfir­farið, í kjöl­far nið­ur­stöðu Hæsta­réttar í Sam­herj­a­mál­inu svo­nefnda, þar sem 15 millj­óna króna stjórn­valds­sekt var ógild og nið­ur­staða úr hér­aði þar með stað­fest.

Í ítar­legri til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands, vegna nið­ur­stöð­unnar frá 8. nóv­em­ber í Hæsta­rétti, segir að Seðla­bank­inn að sam­kvæmt lögum hafi bank­anum borið að kæra mál þar sem grunur vakn­aði um brot gegnum lögum og reglum um gjald­eyr­is­mál.

Það hafi verið gert í takt við ráð­gjöf þar um.

Yfir­lýs­ingin í heild sinni fer hér á eftir:

„Hinn 8. þessa mán­aðar stað­festi Hæsti­réttur dóm Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í máli Samherja hf. gegn Seðla­banka Íslands, en í mál­inu krafð­ist Samherji hf. ógild­ingar á ákvörðun Seðla­bank­ans um greiðslu sektar að fjár­hæð 15.000.000 kr. vegna brota gegn lögum og reglum um gjald­eyr­is­mál sem mæla fyrir um skila­skyldu erlends gjald­eyris. Um var að ræða lít­inn hluta af meintum brotum sem Seðla­bank­inn kærði til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara á árinu 2013 og sem emb­ættið hafði end­ur­sent bank­anum til með­ferðar. Var það nið­ur­staða hér­aðs­dóms, sem Hæsti­réttur hefur nú stað­fest, að Samherji hf. hefði mátt binda rétt­mætar vænt­ingar við að málið hefði verið látið niður falla með vísan til bréfa­sam­skipta félags­ins og Seðla­bank­ans um stöðu máls­ins á meðan það var í með­förum hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, sem yrði þannig jafnað til bind­andi stjórn­valds­á­kvörð­unar um nið­ur­fell­ingu þess. Í dóm­inum var ekki tekin afstaða til ann­arra máls­á­stæðna, þar með talið meintrar brot­legrar hátt­semi.

Í ljósi fréttaum­fjöll­unar um málið telur Seðla­bank­inn rétt að koma á fram­færi frek­ari skýr­ingum um stað­reyndir máls­ins. Samkvæmt lögum um gjald­eyr­is­mál þá ber Seðla­bank­anum að kæra grun um meiri­háttar brot til lög­reglu en hefur heim­ildir til að sekta í öðrum málum. Í sam­ræmi við þá skyldu sem hvíldi á Seðla­bank­anum beindi hann kæru til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara hinn 10. apríl 2013 vegna meintra brota Samherja hf. og tengdra aðila á lögum um gjald­eyr­is­mál og reglum sam­kvæmt þeim. Embætti sér­staks sak­sókn­ara end­ursendi málið hinn 23. ágúst 2013 til Seðla­bank­ans þegar í ljós kom að lög­að­ilar gætu ekki borið refsi­á­byrgð á brotum á lögum og reglum um gjald­eyr­is­mál. Þessir ann­markar á lög­unum, sem fyrst komu í ljós við með­ferð þessa máls, höfðu víð­tæk áhrif þar sem sam­bæri­legir ann­markar voru á annarri lög­gjöf á fjár­mála­mark­aði allt frá árinu 2007. Lög­gjaf­inn hefur nú lag­fært umrædda ann­marka.

Í kjöl­farið beindi Seðla­bank­inn kæru hinn 9. sept­em­ber 2013 til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara sem beind­ist að fyr­ir­svars­mönnum Samherja hf. og tengdra aðila og varð­aði kæran í meg­in­at­riðum sömu sak­ar­efni og fyrri kæra bank­ans. Málið var til rann­sóknar hjá emb­ætt­inu í tvö ár og var síðan fellt niður sem saka­mál og end­ur­sent bank­anum hinn 4. sept­em­ber 2015 til með­ferðar og ákvörð­unar, þar sem eftir stóðu heim­ildir bank­ans til álagn­ingar stjórn­valds­sekta á hendur lög­að­ilum, að öðrum skil­yrðum upp­fylltum. Embættið benti jafn­framt á ann­marka sem urðu við setn­ingu reglna nr. 1130/2008, um gjald­eyr­is­mál, þar sem form­legt sam­þykki ráð­herra skorti. Ljóst er að þessir ann­markar sem urðu við setn­ingu regln­anna í des­em­ber 2008 og komu í ljós eftir að málið var kært í seinna skiptið hafa haft áhrif á mál sem vörð­uðu meint brot á gild­is­tíma regln­anna. Seðla­bank­inn tók í kjöl­farið málið til með­ferðar og felldi niður mestan hluta þess hinn 30. mars 2016, m.a. vegna áður­nefndra ann­marka við setn­ingu reglna nr. 1130/2008. Bankinn tók lít­inn hluta máls­ins, sem nú tald­ist minni­háttar, til áfram­hald­andi stjórn­sýslu­með­ferðar og ákvarð­aði sekt hinn 1. sept­em­ber 2016 vegna brota á lögum og reglum um gjald­eyr­is­mál um skila­skyldu erlends gjald­eyris. Það var meðal ann­ars gert á grund­velli jafn­ræð­is­sjón­ar­miða vegna ann­arra sam­bæri­legra mála sem áður hafði verið lokið með stjórn­valds­sekt.

Í nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms sem Hæsti­réttur stað­festi 8. þessa mán­aðar kom fram að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara hafi ekki talið efni til að vísa kærunni frá á grund­velli laga um með­ferð saka­mála og að af því mætti ráða að það væri ekki mat sér­staks sak­sókn­ara að efn­is­at­riði kærunnar væru á engum rökum reist. End­ursendi því sér­stakur sak­sókn­ari málið í heild sinni til Seðla­bank­ans til með­ferðar og ákvörð­unar með vísan til laga um gjald­eyr­is­mál.

Seðla­bank­inn leit á með­ferð máls­ins hjá Seðla­bank­anum og emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara sem sam­fellda og heild­stæða þar sem sömu meintu brot voru til rann­sóknar. Var það í sam­ræmi við lög­fræði­á­lit sem bank­inn afl­aði og skýrslu Laga­stofn­unar Háskóla Íslands um úttekt á stjórn­sýslu bank­ans við fram­kvæmd laga um gjald­eyr­is­mál, sem laut m.a. að þessu til­tekna máli. Vegna fram­an­greinds taldi Seðla­bank­inn því rétt að fá úr álitefn­inu skorið fyrir Hæsta­rétti. Endanleg nið­ur­staða dóm­stóla liggur nú fyrir og mun Seðla­bank­inn meta verk­lag vegna máls­með­ferðar innan bank­ans í kjöl­far dóms­ins í til­vikum sem þessum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár