Húsnæðisverð lækkaði en útlán lífeyrissjóða jukust

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa lánað þrefalt meira til sjóðfsé­laga sinna á hálfu ári en þeir gerðu allt árið 2015. Vextir á verð­tryggðum lánum þeirra eru komnir undir þrjú pró­sent. Og þeir taka sífellt stærri hluta af mark­aðnum.

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins lán­uðu sjóðs­fé­lögum sínum 14,3 millj­arða króna í júní, sem er met í einum mán­uði. Á fyrri helm­ingi þessa árs lán­uðu sjóð­irnir rúm­lega þrisvar sinnum hærri fjár­hæð en þeir gerðu allt árið 2015. Ef útlán líf­eyr­is­sjóð­anna verða jafn umfangs­miðil á síð­ari hlut árs­ins 2017 og þau voru á þeim fyrri munu sjóð­irnir lána yfir 40 millj­örðum krónum meira til sjóðs­fé­laga en þeir gerðu í fyrra. Þetta má lesa út úr hag­tölum líf­eyr­is­sjóða sem Seðla­banki Íslands birtir.

[links]Umrædd lán eru nær ein­vörð­ungu lán til íbúð­ar­kaupa. Hlut­deild líf­eyr­is­sjóða á þeim mark­aði hefur auk­ist veru­lega eftir að nokkrir stórir sjóðir hófu að bjóða allt að 75 pró­sent íbúða­lán, betri vaxta­kjör en bank­arnir, óverð­tryggð lán og lægri lán­töku­gjöld á síð­ari hluta árs­ins 2015.

Met sett í mánuðinum þegar verðið lækkaði

Miklar verð­hækk­anir hafa verið á hús­næði á und­an­förnum árum. Frá því í des­em­ber 2010 hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á öllu hús­næði, hækkað um 90 pró­sent. Síðustu tólf mán­uði hefur hækk­unin verið mjög skörp (21,4 pró­sent frá júní 2016 til júní 2017) og verðið hækkað þrefalt hraðar en laun (7,3 pró­sent), en æski­legt þykir að þessar tvær stærðir hald­ist í hendur.

Svo virð­ist sem að þessi þróun sé að breyt­ast því í júní lækk­aði verð á fjöl­býli í fyrsta sinn í tvö ár. Lækkunin var reyndar ekki mjög mikil, eða 0,2 pró­sent. Það benti því til þess að mark­að­ur­inn væri kom­inn upp að ákveðnu þaki og réði ekki við frek­ari hækk­anir.

[adspot]Þessi staða breytti þó ekki eft­ir­spurn eftir útlánum líf­eyr­is­sjóða. Þvert á móti settu þeir útlána­met í júní þegar þeir lán­uðu 14,3 millj­arða króna og bættu þar met frá því í mars um 1,8 millj­arð króna.

Verðtryggðir vextir undir þremur prósentum

Kjör lán­anna er líka sífellt að batna. Verð­bólga hefur verið undir 2,5 pró­sent mark­miði Seðla­banka Íslands í 42 mán­uði sam­fleytt og bank­inn hefur verið að lækka meg­in­vexti sína. Þetta hefur leitt til þess að nú bjóð­ast í fyrsta sinn íbúða­lána­vextir á Íslandi sem eru undir þrjú pró­sent, verð­tryggt. Bestu kjörin eru sem stendur hjá Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna þar sem verð­tryggðir breyti­legir vextir eru 2,95 pró­sent.

Þessi þróun hefur leitt til þess að Íslend­ingar flykkj­ast í verð­tryggð lán. Af nýjum lánum sem líf­eyr­is­sjóð­irnir veittu á fyrstu sex mán­uðum þessa árs voru 72,1 pró­sent verð­tryggð.

Hlut­fallið er svipað hjá íslensku við­skipta­bönk­unum. Þar hækkar hlut­fall verð­tryggðra íbúða­lána sífellt á kostnað óverð­tryggðra lána. Auk þess eru öll lán Íbúð­ar­lána­sjóðs verð­tryggð.

Innreiðin hófst af alvöru á ný 2015

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa lengi lánað sjóð­fé­lögum sínum til íbúð­ar­kaupa. Þau lán hafa þó verið þannig að mun lægra láns­hlut­fall hefur verið í boði sem gerði það að verkum að fólk sem átti lítið eigið fé gat illa nýtt sér þau lán. Það breytt­ist allt haustið 2015 þegar sjóð­irnir hækk­uðu láns­hlut­fall sitt og bjóða upp á enn hag­stæð­ari kjör.

Það var erfitt fyrir íslensku við­skipta­bank­anna, sem höfðu nær ein­okað íslenska íbúða­lána­mark­að­inn eftir hrun, að bregð­ast við þessu. Þeir töldu sig ekki geta lækkað kjör á hús­næð­is­lánum sínum meira en þeir höfðu þegar gert og báru fyrir sig tvenns konar ástæður sem skertu sam­keppn­is­stöðu þeirra gagn­vart öðrum lán­veit­endum á mark­aðn­um. Í fyrsta lagi eru þeir skyldugir sam­kvæmt lögum til að eiga mun meira eigið fé en líf­eyr­is­sjóð­ir. Líf­eyr­is­sjóð­irnir þurfa ekki að sitja á svona miklu eigin fé. Raunar eiga þeir ekk­ert eigið fé.

Í öðru lagi þurfa stóru við­skipta­bank­arnir að greiða banka­skatt og sér­stakan fjár­sýslukatt. Þeir skattar hafa ekki verið afnumdir þótt að íslensku bank­arnir séu nær allir komnir í eigu íslenska rík­is­ins og búið sé að semja við kröfu­hafa föllnu bank­anna um slit þrota­búa þeirra. Í fjár­lögum er til að mynda gert ráð fyrir að tekjur rík­is­sjóðs á árinu 2017 af banka­skatti, sem er 0,376 pró­sent af skuldum banka, verði 9,2 millj­arðar króna. Bank­arnir hafa haldið því fram að þessi skattur sé ekk­ert annað en álag ofan á útlán, sem almenn­ingur þurfi á end­anum að borga. Katrín Júl­í­us­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra og núver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja, fjall­aði um þetta í sjón­varps­þætti Kjarnans í maí síð­ast­liðnum.

Þess vegna er staðan enn þannig í dag að þeir vextir á íbúða­lánum sem bank­arnir bjóða eru í lang­flestum til­vikum ekki jafn góðir og þeir sem líf­eyr­is­sjóðir geta boðið.

Þetta ástand hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir nýtt sér út í ystu æsar. Og skóflað til sín við­skiptum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár