Íslendingar taka nánast bara verðtryggð húsnæðislán

Alls eru 86,2 pró­sent þeirra hús­næð­is­lána sem veitt hafa verið á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2016 verð­tryggð lán. Einungis 13,8 pró­sent lán­anna eru óverð­tryggð. Þetta sést þegar útlán líf­eyr­is­sjóða, banka og Íbúða­lána­sjóðs til hús­næð­is­kaupa eru skoðuð.

Það vekur athygli í ljósi þess að mikil umræða hefur verið um það á hinu póli­tíska sviði á und­an­förnum árum hvort að verð­trygg­ing eigi rétt á sér eða ekki. Rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar réðst til að mynda í þá for­dæma­lausu aðgerð að greiða hluta þeirra sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009 80,4 millj­arða króna í bætur vegna verð­bólgu þeirra ára. Í ágúst kynnti frá­far­andi rík­is­stjórn síðan aðgerðir sem áttu að draga úr vægi verð­trygg­ingar á íslenskum hús­næð­is­mark­aði. Samkvæmt þeim átti að banna hin svoköll­uðu Íslands­lán, 40 ára verð­tryggð jafn­greiðslu­lán. Í frum­varpi sem lagt var fram vegna þessa kom hins vegar fram að ungt og tekju­lágt fólk myndi enn geta tekið lánin. Í raun hefðu 75 pró­sent lán­tak­enda getað haldið áfram að taka lánin. Einungis sá hópur sem er ólík­leg­astur til að þurfa að taka slík lán yrði bannað að taka þau. Ekki náð­ist að klára frum­varpið og verður að telj­ast lík­legt að það verði ekki end­ur­flutt, enda í raun ekki um neitt.

Þrátt fyrir mikla aukn­ingu á fram­boði óverð­tryggðra hús­næð­is­lána þá hefur eft­ir­spurn eftir þeim lík­lega aldrei verið minni. Ástæðan er sú að verð­bólga hefur verið lá á Íslandi í á þriðja ár og undir verð­bólgu­mark­miði Seðla­banka Íslands frá því í febr­úar 2014. Það gerir það að verkum að verð­tryggðu lánin eru, að minnsta kosti sem stendur, hag­stæð­ari. Afborg­anir af þeim eru lægri en höf­uð­stóll lán­anna er samt að greið­ast niður. Auk þess hjálpar til að hús­næð­is­verð hefur hækkað um 65 pró­sent frá árinu 2010 og langt umfram verð­bólgu. Við það hefur eigið fé fólks í hús­næði snar­hækkað.

Olía og sterk króna áhrifavaldar

Ástæða þess að verð­bólga hefur verið lág er marg­þætt. Mjög ströng höft hafa verið í land­inu og Seðla­banki Íslands hefur því getað stýrt efna­hags­á­stand­inu betur en ef frjáls­ræði ríkti í fjár­magns­flutn­ingum. Síðustu mán­uði hafa höftin verið losuð og geta íslenskra stjórn­valda og Seðla­bank­ans til að stýra málum mun því ekki verða eins mikil í nán­ustu fram­tíð.

Þá hefur mikil og hröð styrk­ing íslensku krón­unnar og lágt heims­mark­aðs­verð á olíu haldið aftur af inn­fluttri verð­bólgu og þannig minnkað verð­bólgu­þrýst­ing. Mikill þrýst­ingur er hjá fyr­ir­tækjum í alþjóð­legri starf­semi á Íslandi á stjórn­völd að grípa til aðgerða til að draga úr styrk­ingu krón­unnar, sem veikir sam­keppn­is­hæfni og dregur úr arð­semi þeirra fyr­ir­tækja sem eru með tekjur í öðrum gjald­miðlum en íslensku krón­unni.

Síðustu daga hefur heims­mark­aðs­verð á olíu hækkað hratt og gert er ráð fyrir því að það hækki enn í nán­ustu fram­tíð. Verðið náði lág­marki í febr­úar þegar tunnan af hrá­olíu fór í 26 dali, en nú er búist við því að verðið á henni fari yfir 60 dali fljót­lega. Ástæðan er sú að olíu­fram­leiðslu­ríki hafa náð saman um að draga úr fram­leiðslu, sem svo leiðir til minna fram­boðs á mark­að­i.

Íslendingar taka nær einvörðungu verðtryggð lán

Allt þetta mun hafa mikil áhrif á verð­bólgu á Íslandi, og þar af leið­andi á verð­tryggð íslensk hús­næð­is­lán. Þótt spár geri enn ráð fyrir því að verð­bólgan hald­ist undir 2,5 pró­sentum út árið 2017 þá gæti sú staða breyst mjög snögg­lega vegna ofan­greindra aðstæðna.

Íslend­ingar taka nefni­lega nær ein­vörð­ungu verð­tryggð hús­næð­is­lán. Á árinu 2015 lán­uðu íslenskir bankar 101,6 millj­arða króna til heim­ila lands­ins, þegar búið er að draga frá upp­greiðslum og bíla­lán. Sú tala sýnir því útlán sem eru nær ein­göngu til íbúð­ar­kaupa.

Ríkisstjórnin kynnti aðgerðina Fyrsta fasteign í ágúst. Á meðal þess sem hún fól í sér var að banna átti hluta landsmanna að taka svokölluð Íslandslán. Aðgerðin hefur ekki verið lögfest.
Rík­is­stjórnin kynnti aðgerð­ina Fyrsta fast­eign í ágúst. Á meðal þess sem hún fól í sér var að banna átti hluta lands­manna að taka svokölluð Íslands­lán. Aðgerðin hefur ekki verið lög­fest.

Í fyrra lán­uðu bank­arnir 56,4 millj­arða króna verð­tryggt en 45,2 millj­arða króna óverð­tryggt vegna íbúð­ar­kaupa. Því voru verð­tryggð hús­næð­is­lán 55,5 pró­sent af heild­ar­út­lánum þeirra.

Í ár hefur orðið mikil breyt­ing á. Þrátt fyrir mik­inn upp­gang á hús­næð­is­mark­aði – útlánum hefur fjölgað mikið og verð hækkað um 13,6 pró­sent á einu ári – þá hefur sú fjár­hæð sem íslenskir bankar lána til íslenskra heim­ila, að frá­dregnum upp­greiðslum og bíla­lánum, dreg­ist saman milli ára. Á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins 2016 lán­uðu þeir sam­tals 67,8 millj­arða króna til heim­ila. Þar af voru ein­ungis 2,9 millj­arðar króna í óverð­tryggðum lánum þegar búið var að draga bíla­lán frá. 64,9 millj­arðar króna voru hins vegar í verð­tryggðum lánum. Það þýðir að lán til heim­ila, að frá­dregnum upp­greiðslum og bíla­lánum, voru í 96 pró­sent til­vika verð­tryggð.

Til við­bótar hefur Íbúða­lána­sjóður lánað um 2,2 millj­arða króna í almenn lán það sem af er þessu ári. Sjóð­ur­inn lánar ein­ungis verð­tryggt.

Lífeyrissjóðir orðnir umsvifameiri í nýjum lánum en bankar

Ástæða þess að íslensku bank­arnir hafa ekki náð meiri árangri í útlánum til heim­ila það sem af er árinu 2016 er ein­föld, inn­rás líf­eyr­is­sjóða á hús­næð­is­lána­mark­að­inn.

Líkt og Kjarninn greindi frá um helg­ina þá munu útlán líf­eyr­is­sjóða til heim­ila lands­ins að öllum lík­indum fjór­fald­ast á þessu ári. Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa þegar lánað sjóð­fé­lögum sínum 70,3 millj­arða króna á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins og ef sama þróun heldur áfram á síð­ustu tveimur mán­uðum árs­ins munu heildar útlán þeirra til heim­ila verða nálægt 85 millj­örðum króna á árinu öllu. Það er fjórum sinnum meira en þeir 21,6 millj­arðar króna sem sjóð­irnir lán­uðu til heim­ila á árinu 2015.

Umrædd lán eru nær ein­vörð­ungu lán til íbúð­ar­kaupa. Hlut­deild líf­eyr­is­sjóða á þeim mark­aði hefur auk­ist veru­lega eftir að nokkrir stórir sjóðir hófu að bjóða allt að 75 pró­sent íbúða­lán, betri vaxta­kjör en bank­arnir, óverð­tryggð lán og lægri lán­töku­gjöld á síð­ari hluta árs­ins 2015. Á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins lán­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir hærri upp­hæð til heim­ila lands­ins en bankar gerðu. Allt árið í fyrra lán­uðu þeir ein­ungis um fjórð­ung af því sem bankar lán­uðu heim­ilum lands­ins, þegar búið er að draga frá upp­greiðslum og bíla­lán.

Hjá líf­eyr­is­sjóð­unum er þró­unin svipuð og hjá bönk­unum. Þ.e. lán­tak­endur eru mun frekar að taka verð­tryggð lán en óverð­tryggð. Alls voru 53,9 millj­arðar króna af þeim 70,3 millj­örðum króna sem sjóð­irnir lán­uðu til hús­næð­is­kaupa á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins verð­tryggð lán. Það þýðir að 77 pró­sent lán­anna eru verð­tryggð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár