Íbúðalán lífeyrissjóða fjórfaldast á milli ára

Útlán líf­eyr­is­sjóða til heim­ila lands­ins munu að öllum lík­indum fjór­fald­ast á þessu ári. Líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa þegar lánað sjóð­fé­lögum sínum 70,3 millj­arða króna á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins og ef sama þróun heldur áfram á síð­ustu tveimur mán­uðum árs­ins munu heildar útlán þeirra til heim­ila verða nálægt 85 millj­örðum króna á árinu öllu. Það er fjórum sinnum meira en þeir 21,6 millj­arðar króna sem sjóð­irnir lán­uðu til heim­ila á árinu 2015. Þetta kemur fram í tölum um útlán líf­eyr­is­sjóða sem birtar voru í lið­inni viku.

Umrædd lán eru nær ein­vörð­ungu lán til íbúða­kaupa. Hlut­deild líf­eyr­is­sjóða á þeim mark­aði hefur auk­ist veru­lega eftir að nokkrir stórir sjóðir hófu að bjóða allt að 75 pró­sent íbúða­lán, betri vaxta­kjör en bank­arnir, óverð­tryggð lán og lægri lán­töku­gjöld á síð­ari hluta árs­ins 2015.

65 prósent hækkun frá 2010

Á Íslandi er að eiga sér stað gríð­ar­lega hröð hækkun á hús­næð­is­verði. Frá árinu 2010, þegar verðið náði sínum lægsta botni eftir hrun, hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að mynda hækkað um 65 pró­sent. Síð­ast­liðið ár er heild­ar­hækkun á hús­næð­is­verði á svæð­inu 13,6 pró­sent, sem er mesta árs­hækkun sem sést hefur frá árinu 2007.

Ástæður þessa eru marg­þættar. Lítil fjár­fest­ing í íbúð­ar­hús­næði á sama tíma og eft­ir­spurn eftir slíku hefur stór­auk­ist – bæði vegna inn­lendrar eft­ir­spurnar og stór­auk­ins ferða­manna­straums – spilar þar stóra rullu. Ruðn­ings­á­hrif vegna Leið­rétt­ing­ar­innar, nið­ur­greiðsla rík­is­stjórnar Íslands á völdum verð­tryggðum lánum, hefur einnig haft áhrif. Og svo hefur lág verð­bólga í næstum þrjú ár og kaup­mátt­ar­aukn­ing und­an­far­innar ára skipt sköpum.

Þessar miklu hækk­anir hafa leitt til þess að eigið fé lands­manna hefur auk­ist mikið. Í lok árs 2015 var það 2.813 millj­arðar króna. Ári áður var það 2.443 millj­arðar króna. Það jókst því um 370 millj­arða króna á árinu 2015. Helsta ástæða þess að eigið fé flestra Íslend­inga hefur auk­ist hratt á síð­ustu árum er gríð­ar­leg hækkun á hús­næð­is­verði. Sú hækkun hefur haft áhrif á alla hópa sam­fé­lags­ins, en þó hlut­falls­lega mest áhrif á þá sem höfðu eign­ast fast­eignir en áttu lítið eða ekk­ert í þeim. Þorri eigna venju­legra íslenskra launa­manna eru enda bundnar í fast­eignum, þegar eign þeirra í líf­eyr­is­sjóðum er und­an­skilin.

Hófu að bjóða mun betri kjör

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa lengi lánað sjóð­fé­lögum sínum til íbúða­kaupa. Þau lán hafa þó verið þannig að mun lægra láns­hlut­fall hefur verið í boði sem gerði það að verkum að fólk sem átti lítið eigið fé gat illa nýtt sér þau lán. Það breytt­ist allt haustið 2015 þegar sjóð­irnir hækk­uðu láns­hlut­fall sitt og bjóða upp á enn hag­stæð­ari kjör.

Það var erfitt fyrir íslensku við­skipta­bank­anna, sem höfðu nær ein­okað íslenska íbúða­lána­mark­að­inn eftir hrun, að bregð­ast við þessu. Þeir töldu sig ekki geta lækkað kjör á hús­næð­is­lánum sínum meira en þeir höfðu þegar gert og báru fyrir sig tvenns konar ástæður sem skertu sam­keppn­is­stöðu þeirra gagn­vart öðrum lán­veit­endum á mark­aðn­um. Í fyrsta lagi eru þeir skyldugir sam­kvæmt lögum til að eiga mun meira eigið fé en líf­eyr­is­sjóð­ir. Líf­eyr­is­sjóð­irnir þurfa ekki að sitja á svona miklu eigin fé. Raunar eiga þeir ekk­ert eigið fé. Þeirra hlut­verk er að taka við yfir hund­rað millj­örðum krónum sem lands­mönnum er gert að greiða í þá árlega og ávaxta það fé í minnsta lagi um 3,5 pró­sent verð­tryggt á ári.

Í öðru lagi þurfa stóru við­skipta­bank­arnir að greiða banka­skatt og sér­stakan fjár­sýslukatt. Þeir skattar hafa ekki verið afnumdir þótt að íslensku bank­arnir séu nær allir komnir í eigu íslenska rík­is­ins og búið sé að semja við kröfu­hafa föllnu bank­anna um slit þrota­búa þeirra. Í nýbirtu fjár­laga­frum­varpi er til að mynda gert ráð fyrir að tekjur rík­is­sjóðs á árinu 2017 af banka­skatti, sem er 0,376 pró­sent af skuldum banka, verði 9,2 millj­arðar króna. Bank­arnir hafa haldið því fram að þessi skattur sé ekk­ert annað en álag ofan á útlán, sem almenn­ingur þurfi á end­anum að borga.

Þess vegna er staðan enn þannig í dag að þeir vextir á íbúða­lánum sem bank­arnir bjóða eru í lang­flestum til­vikum ekki jafn góðir og þeir sem líf­eyr­is­sjóðir geta boðið. Þess má þó geta að stóru við­skipta­bank­arnir hafa allir lækkað lán­töku­gjöld sín á þessu ári og gert þau að fasti krónu­tölu.

Þetta ástand hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir nýtt sér út í ystu æsar. Og skóflað til sín við­skiptum.

Sprenging á árinu 2016

Október 2016 var nýr met­mán­uður í útlánum líf­eyr­is­sjóða til heim­ila. Þá lán­uðu þeir alls 8,6 millj­arða króna til þeirra. Til sam­an­burðar má benda á að allt árið 2014 lán­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir 11,7 millj­arða króna til sjóð­fé­laga sinna. Í októ­ber einum saman lán­uðu þeir því 74 pró­sent af öllu því fjár­magni sem þeir lán­uðu til heim­ila allt árið 2014.

Í fyrra tæp­lega tvö­föld­uð­ust útlán sjóð­anna til heim­ila lands­ins, og var sú aukn­ing mest á síð­ustu mán­uðum árs­ins eftir að breyt­ingar voru gerðar á vöru­fram­boði þeirra. Heild­ar­út­lán árs­ins 2015 voru 21,7 millj­arðar króna.

Í ár, 2016, hefur síðan orðið spreng­ing. Á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir lánað heim­ilum 70,3 millj­arða króna. Haldi sú aukn­ing áfram á síð­ustu tveimur mán­uðum árs­ins munu heild­ar­út­lán sjóð­anna verða um 85 millj­arðar króna, eða fjórum sinnum hærri en árið 2015.

Fjöldi lána og með­al­upp­hæð þeirra hafa líka marg­fald­ast. Á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins lán­uðu sjóð­irnir 4.515 ný lán. Á öllu árinu 2015 voru útlánin 1.913. Í fyrra var með­al­út­lán 11,3 millj­ónir króna. Nú er með­al­út­lánið 38 pró­sent hærra, eða 15,6 millj­ónir króna.

Bankar vilja banna útlán lífeyrissjóða

Ljóst er að miklar áhyggjur eru af þess­ari þróun innan íslenska banka­kerf­is­ins. Íbúðalán eru mik­il­vægur hluti af und­ir­liggj­andi rekstri við­skipta­banka­hluta þess og þegar nær öll ný útlán, að frá­dregnum upp­greiðslum, fara til sjóð­anna þá dregur það veru­lega úr hag­kvæmni bank­anna. Þetta er sér­stak­lega mikið áhyggju­efni innan þeirra vegna þess að allt íslenska við­skipta­banka­kerfið er sem stendur til sölu.

Þessar áhyggjur sáust ágæt­lega í umsögn sem Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja sendu efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis í maí á þessu ári. Þar beindu sam­tökin því til Alþingis að líf­eyr­is­sjóðum ætti að vera óheim­ilt að lána til ein­stak­linga og fyr­ir­tækja og köll­uðu beinar lán­veit­ingar sjóð­anna „skugga­banka­starf­semi“.

Ef slíku banni yrði komið á myndi það bæta stöðu íslenskra við­skipta­banka á mark­aði. En það myndi hins vegar ekki gagn­ast íslenskum neyt­endum eins og er, í ljósi þess að líf­eyr­is­sjóðir geta boðið hag­stæð­ari kjör á íbúða­lánum sínum en bank­arnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár