Forsætisráðherra: Að vinna með þeim sem eru ósammála manni gerir mann sterkari

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að sjaldan hafi verið mik­il­væg­ara að sýna fram á að hægt sé að taka til­lit til ólíkra sjón­ar­miða, miðla málum og vinna sam­hent að sam­eig­in­legum mark­miðum þvert á flokka.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir það sjaldan hafa verið mik­il­væg­ara en nú að sýna fram á að hægt sé að taka til­lit til ólíkra sjón­ar­miða, í aðsendri grein í Tíma­mótum, auka­blaði Morg­un­blaðs­ins. Í grein­inni fjallar Katrín um að blikur séu á lofti í heims­mál­unum og sjá megi að á alþjóða­vett­vangi sé til­hneig­ing til að loka sig af og byggja upp múra á milli sín og „hinna“. Hún segir að ein leið til þess að hafna þessum múrum sé að leyfa sér að vinna með þeim sem séu manni ósam­mála og bendir meðal ann­ars á sam­vinnu ólíkra flokka í rík­is­stjórn hennar. 

„Ein helsta gagn­rýni sem höfð hef­ur verið uppi á þá rík­is­stjórn sem nú sit­ur hef­ur ekki snú­ist um verk henn­ar held­ur að hún hafi yf­ir­leitt verið mynduð og að ólík­ir flokk­ar hafi náð sam­an um stjórn lands­ins. En mín reynsla er sú að það að vinna með þeim sem eru manni ósam­mála geri mann stærri,“ segir Katrín.

Aðrar leiðir en múrar og hindranir

Í grein sinni fjallar Katrín um hvernig heims­mynd þjóða mót­ast oft af ótt­anum við hina og hvernig sú til­hneig­ing að ein­angra sig frá „hinum“ ógni hefð­bundnum skiln­ingi okkar á mann­rétt­indum. Hún segir að múr­arnir fjar­lægi fólk frá hvert öðru og ali á tor­tryggni. „Múrarnir eru ekki allir áþreif­an­legir. Suma sjáum við alls ekki á ver­ald­ar­vefnum en þeir skipta okkur upp í ólík berg­máls­her­bergi þar sem við tölum hvert við annað og ekki við hin sem eru ólík okkur.“

Katrín segir að til séu aðrar leiðir en að byggja múra og reisa hindr­anir. Ein leið sé til dæmis að byggja upp ákveðna sam­fé­lags­lega inn­viði og tryggja þannig að allir eigi eitt­hvað í sam­fé­lag­inu. Hún bendir þar á mik­il­vægi almanna­þjón­ustu og að sú þjón­usta hafi því hlut­verki að gegna að tvinna saman ólíka þræði sam­fé­lags­ins og tryggja að allir sitji við sama borð. „En auk heldur tryggir hún líka að við séum öll virkir þátt­tak­endur í sama sam­fé­lagi sem er einmitt for­senda þess að lýð­ræðið dafni. Þess vegna er hún ein af und­ir­stöðum lýð­ræð­is­ins og brýtur niður múra. Tryggir að við eigum sam­fé­lagið,“ segir Katrín.

Sjaldan mikilvægra að sýna fram á hægt sé að taka tillit til ólíkra sjónarmiða

Katrín segir í grein sinni að önnur leið sé að ólíkir aðilir vinni sam­hentir að sam­eig­in­legum mark­miðum. Hún bendir þar á að reglu­legt sam­ráð stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins hafi meðal ann­ars snú­ist um að auka skiln­ing á milli þeirra sem sitja við borðið.

Enn­fremur segir hún frá því hvernig ein helsta gagn­rýnin á núver­andi rík­is­stjórn hafi ekki snú­ist um verk hennar heldur að hún hafi yfir­höfuð verið mynduð. „Stjórn­mála­menn með sundr­andi orð­ræðu sem miðar að því að skipa fólki í hópa og hengja á þá jákvæða og nei­kvæða merki­miða allt eftir því hvað þjónar þeirra hags­munum eru stjórn­mála­menn sem vilja byggja múra. Markmið þeirra er gjarnan að sundra og grafa undan þeim lýð­ræð­is­legu gildum sem hafa tryggt stór­stígar fram­farir í mann­rétt­inda­málum, hag­sæld og öryggi,“ segir Katrín.

„Sjaldan hefur það því verið mik­il­væg­ara að sýna fram á að það er hægt að taka til­lit til ólíkra sjón­ar­miða, miðla málum og vinna sam­hent að sam­eig­in­legum mark­miðum, þvert á flokka, sam­fé­lag­inu öllu til heilla,“ segir Katrín að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár