Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, kallar Vilhjálm Bjarnason, þingmann Sjálfstæðisflokksins, „hjárænulegan Sjálfstæðisþingmann sem er í vandræðum með sjálfsmynd sína“ og segir það tíðindi að Sjálfstæðisþingmaður láti vinstrið „siga sér eins og rakka vegna einhverrar minnimáttakenndar“. Þetta kemur fram í grein sem Þorsteinn birtir á Vísi í dag.
Tilefni skrifa hans er umræða um aflandseignir eiginkonu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra og þá staðreynd að hún á kröfur í slitabú föllnu bankanna upp á rúman hálfan milljarð króna. Þorsteinn segir ófrægingarmenn ekki þola að Sigmundur Davíð hafi alla kosti sem þá skortir. Hann eigi framsýni, kjark og dug. Niðurrifið og hælbitin efli hins vegar Sigmund Davíð í hverri raun. Ógæfufólk í pólitík þurfi þó að gaumgæfa framgöngu sína.
Vilhjálmur var gestur í Vikulokunum á Rás 1 á laugardag. Þar sagði hann það vera mjög óþægilegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að standa andspænis málinu. Sigmundur Davíð hafi setið beggja vegna borðsins í tengslum við vinnu við uppgjör föllnu bankanna. „Það er eins og menn skilji ekki vanhæfi og hagsmunatengsl,“ sagði hann. Í ýmsum málum sé hangið á formsatriðum eins og að lög hafi ekki verið brotin. Alltaf eigi að upplýsa um hagsmunatengsl. „Auðvitað rýrir þetta traust mitt á hinum flokknum í þessu samstarfi.“
Forsætisráðherra hefur alla kosti sem hælbítanna skortir
Þorsteini blöskrar umræðan sem nú fer fram um eignir eiginkonu forsætisráðherra og segir hana vera nýjum í íslenskri stjórnmálaumræðu. „Í þrjú ár hafa nokkrir stjórnmálamenn sem voru til í að leggja klyfjar á íslenska þjóð til frambúðar lagt sig fram um að ófrægja forsætisráðherra sem leiddi flokk sinn til sigurs á grundvelli loforða sem síðan hafa verið efnd hvert af öðru.
M.a. kom forsætisráðherra ekki bara í veg fyrir að klyfjar ófrægingarmanna yrðu lagðir á þjóðina heldur leystu stöðugleikasamningar svo vel að eftir er tekið. Reyndar svo vel að Ísland hefur ekki staðið jafnvel síðan á síldarárunum upp úr miðri síðustu öld.[...] Ófrægingarmönnum virðast sárna þessi staðreynd kannski vegna þess að þeir höfðu ekki kjark og þor til að ráðast til atlögu við kröfuhafa. Ófrægingarmennirnir þola ekki að forsætisráðherra á alla kosti sem þá skortir. Hann á framsýni kjark og dug sem þeir eiga ekki. Þess vegna hefur þetta ógæfufólk hamast á forsætisráðherra hvern dag í þrjú ár en auðvitað án árangurs því niðurrifið og hælbitin efla Sigmund Davíð í hverri raun. Hvað tekur ófrægingarliðið þá til bragðs? Jú, það skrifar nýjan kafla í lágkúruumræðu sinni með því að beina spjótum sínum að eiginkonu forsætisráðherra vegna þess að hún á eignir. Og hvað haldiði nema þau fái ekki í lið með sér hjárænulegan Sjálfstæðisþingmann sem er í vandræðum með sjálfsmynd sína. Það eru tíðindi að Sjálfstæðisþingmaður láti vinstrið siga sér eins og rakka vegna einhverrar minnimáttakenndar.“
Ógæfufólk í pólitík þarf að gaumgæfa sig
Þorsteinn segir að endingu að það sé alþekkt að eiginkona forsætisráðherra sé vel efnuð, það liggi fyrir að hún hafi greitt skatta á Íslandi vegna eignanna alla tíð og að hún hafi tapað eignum vegna aðgerða eiginmanns hennar. Samt gefist hælbítarnir ekki upp. Síðan spyr hann: „
Viljum við að íslensk stjórnmálaumræða snúist um fjölskyldumeðlimi stjórnmálamanna? Fjölskyldumeðlimi sem eru ekki þátttakendur í stjórnmálum. Þurfa stjórnmálamenn framvegist að gera ráð fyrir því að fjölskyldur þeirra verði fyrir áreiti og dylgjum vegna þess a
ð makinn er í pólitík? Mitt svar er nei. Til þess að svo megi verða þarf ógæfufólkið í pólitík að gaumgæfa vel framgöngu sína."
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir