Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig í borginni

Stuðn­ingur við Flokk fólks­ins og Framsókn hefur hrunið frá kosn­ingum en Sjálf­stæð­is­flokkur og Sam­fylk­ing hafa bætt við sig. Meiri­hlut­inn er fall­inn.

Oddviti
Oddviti Hildur Björns­dóttir er odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks en orðrómur hefur verið uppi um að hún komi til með að fá mót­fram­boð í odd­vita­vali flokks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar. Mynd: Stundin / Jón Ingi

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík í nýjum Borg­ar­vita Maskínu. Sam­fylk­ingin er næst stærst og mælist enn yfir kjör­fylgi, en fylgið hefur dalað frá því í sumar.

Samkvæmt nið­ur­stöð­unum, sem greint var frá í kvöld­fréttum Sýnar, mælist Viðreisn með 11,9 pró­sent, Mið­flokkur 8,5 pró­sent og Píratar 6,4 pró­sent og Sós­í­alista­flokk­ur­inn 5 pró­sent. Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn mæl­ast með 4,4 og 4,2 pró­sent. 

Fylgi við Flokk fólks­ins hrynur niður í 2,6 pró­sent.

Könnun Maskína 2. desember 2025
Fylgi flokka í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt borgarvita Maskínu.
Sjálfstæðisflokkurinn
31,0%
Samfylkingin
25,5%
Viðreisn
11,9%
Miðflokkurinn
8,5%
Píratar
6,4%
Sósíalistaflokkurinn
5,0%
Framsókn
4,4%
Vinstri græn
4,2%
Flokkur fólksins
2,6%
Heimild: Maskína.

Sam­an­lagt fylgi flokk­anna sem mynda meiri­hluta í borg­inni er 43,5 pró­sent. Minni­hlut­inn mælist með 47,3 pró­sent en Mið­flokk­ur­inn, sem stendur utan borg­ar­stjórnar, mælist í áður­nefndum 8,5 pró­sentum. Sam­an­lagt fylgi minni­hlut­ans og Mið­flokks­ins er því 55,8 pró­sent.

Könnunin var gerð dag­ana 20. til 26. nóv­em­ber og svar­endur voru 1.034.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár