Upplýsingafulltrúar ráðuneyta og undirstofnana kosta hátt í 400 milljónir króna á ári

Launa­kostn­aður upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyta hefur auk­ist um 40 pró­sent á þessu kjör­tíma­bili. Fyrir utan þá eru margar und­ir­stofn­arnir ráðu­neyta með starfs­menn sem sinna upp­lýs­inga- og kynn­ing­ar­málum.

Árlegur launa­kostn­aður vegna upp­lýs­inga­full­trúa sem störf­uðu í ráðu­neytum lands­ins var um 140 millj­ónir króna í fyrra og kostn­aður vegna slíkra sem störf­uðu hjá und­ir­stofn­unum ráðu­neyta var 246 millj­ónir króna. Það þýðir að heild­ar­kostn­aður vegna upp­lýs­inga­full­trúa sem starfa hjá ráðu­neytum og und­ir­stofn­unum þess var um 386 millj­ónir króna í fyrra.

Þetta má lesa úr svörum sem ráð­herrar allra mála­flokka hafa tekið saman vegna fyr­ir­spurna Þor­steins Sæmunds­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, um málið. Kostn­að­ur­inn hefur auk­ist umtals­vert það sem af er kjör­tíma­bili, en hann var um 100 millj­ónir króna árið 2017. Það þýðir að kostn­að­ur­inn á síð­asta ári var um 40 pró­sent meiri en hann var á því ári, þegar kosið svar síð­ast á Íslandi.

Mis­mun­andi var hvort að ráðu­neytin gáfu upp kostnað vegna árs­ins 2020 að öllu leyti eða hvort þau gáfu hann ein­ungis upp að hluta. Í ein­hverjum til­vikum voru birtar tölur fyrir árið 2019. Í þeim til­fellum þar sem það vant­aði kostnað vegna síð­asta árs þá var reiknuð hóf­leg aukn­ing á kostnað, í sam­ræmi við það sem tíðk­að­ist hjá öðrum ráðu­neytum.

Kostn­að­ur­inn í fyrra var mestur hjá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, 19,9 millj­ónir króna, og félags- og barna­mála­ráðu­neyt­inu, eða 15,2 millj­ónir króna. Ástæða þess að talan var svona há hjá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu er sú að hún nær yfir launa­greiðslur vegna starfa upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar og vegna greiddra bið­launa sem féllu til vegna starfs­loka upp­lýs­inga­full­trúa hennar á tíma­bil­inu. Hjá félags- og barna­mála­ráðu­neyt­inu voru bæði upp­lýs­inga­full­trúi og starfs­maður sem sinnti kynn­ing­ar­málum og vef­stjórn starf­andi hjá ráðu­neyt­inu á síð­asta ári.

Mikið kostnaður hjá undirstofnunum

Til við­bótar við þetta spurði Þor­steinn um upp­lýs­inga­full­trúa sem störf­uðu hjá stofn­unum sem heyrðu undir við­kom­andi ráðu­neyti. Sam­an­lagður kostn­aður við þá er áætl­aður um 246 millj­ónir króna á ári.

Vert er að taka fram að mis­jafn var hvernig ráðu­neyti svör­uðu. Sum skil­uðu ein­ungis inn nýj­ustu tölum fyrir árið 2019 og önnur gáfu ekki tæm­andi upp­lýs­ingar um nákvæman launa­kostnað. Í svari mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins sagði til að mynda að kostn­aður vegna kynn­ing­ar­mála væri „að með­al­tali 7 til 10 millj. kr. á ári hjá Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands og Mennta­mála­stofnun.“

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, spurði um kostnað vegna upplýsingafulltrúa.
Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Mið­flokks­ins, spurði um kostnað vegna upp­lýs­inga­full­trúa.

Í þeim til­vikum þar sem kostnað vant­aði vegna árs­ins 2020 var reiknuð hóf­leg hækkun, í takti við aðra hækkun launa hjá stofn­unum hins opin­bera, á laun árs­ins 2019 til að finna út þá tölu. Í þeim tveimur til­vikum þar sem gefið var upp bil í kostn­aði var með­al­tal þess bils haft til hlið­sjónar við útreikn­ing á kostn­aði hins opin­bera. Útreikn­ingar Kjarnans sýna að kostn­aður vegna upp­lýs­inga­full­trúa og þeirra sem starfa að kynn­ing­ar­málum hjá und­ir­stofn­unum ráðu­neyta hefur auk­ist um 22 pró­sent frá árinu 2017.

Mestur var kostn­að­ur­inn vegna upp­lýs­inga­full­trúa hjá Seðla­banka Íslands, þar sem hann var tæp­lega 31 milljón króna í fyrra. Þar starfa tveir upp­lýs­inga­full­trúar eftir sam­ein­ingu Seðla­banka Íslands og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í byrjun síð­asta árs. Næst mestur var kostn­að­ur­inn hjá Land­spít­al­anum og Trygg­inga­stofnun, rétt yfir 19 millj­ónir króna á ári.

Aðstoðarmenn kosta á þriðja hundrað milljónir króna á ári

Til við­bótar við þennan kostnað þá má rík­is­stjórn ráða sér allt að 25 aðstoð­ar­menn. Hver ráð­herra má ráða sér tvo og rík­is­stjórnin sjálf svo þrjá ofan á það. Einungis er gert ráð fyrir kostn­aði vegna eins þeirra aðstoð­ar­manna, upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar, í ofan­greindum tölum.

Ef horft er á kostnað vegna aðstoð­ar­manna ráð­herra og rík­is­stjórn­ar­innar, að frá­dregnum kostn­aði við upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar, var hann um 250 millj­ónir króna á árinu 2019.

Því má ætla að árlegur kostn­aður við upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyta og stofn­ana og aðstoð­ar­menn ráð­herra og rík­is­stjórnar sé allt í allt um 636 millj­ónir króna á ári.

Margir hjá Reykjavíkurborg líka

Næst stærsta stjórn­vald lands­ins, Reykja­vík­ur­borg, heldur einnig úti miklum fjölda upp­lýs­inga­full­trúa. Kjarn­inn greindi frá því í des­em­ber í fyrra að alls væru upp­­­lýs­inga­­­full­­­trúar í níu stöð­u­­­gildum hjá Reykja­vík­­­­­ur­­­borg, þar af einn í 80 pró­­­sent starfs­hlut­­­fall­i. Þá stóð yfir ferli til að ráða til við­bótar teym­is­stjóra sam­skiptateymis borg­ar­innar, sem til­kynnt var um hver yrði í byrjun þessa mán­aðar.

Í svar­i borg­­ar­innar við fyr­ir­­spurn Kjarn­ans um málið sagði að sex hafi verið í upp­­­lýs­inga­­­deild/­­­sam­­­skiptateymi sem starfi þvert á fagsviðin og tveir hjá umhverf­is- og skipu­lags­svæði, þar af annar í 80 pró­­­sent starfi. Þá hafi einn nýlega ráð­inn í 100 pró­­­sent starf hjá vel­­­ferð­­­ar­sviði.

Árlegur launa­­­kostn­aður við þessi níu stöð­u­­­gildi var um 102 millj­­­ón­ir. Til við­bótar við það bæt­ist launa­kostn­aður vegna nýráð­ins teym­is­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár