Þriggja mánaða neyðarástandi lýst yfir í Tyrklandi

Tyrk­lands­for­seti lýsti í gær­kvöld yfir neyð­ar­á­standi í land­inu. Það á að vara í þrjá mán­uði og segir for­set­inn reglur lýð­ræðis virtar á meðan. Yfir 50.000 manns hafa verið hand­teknir eða reknir úr störfum.

Recep Tayyip Erdogan Tyrk­lands­for­seti lýsti í gær­kvöldi yfir þriggja mán­aða neyð­ar­á­standi í land­inu. Hann til­kynnti þetta eftir að hafa hitt yfir­menn örygg­is­mála og ráða­menn í Ankara, höf­uð­borg Tyrk­lands, í gær. Hreins­unum er haldið áfram í land­inu eftir valda­ránstil­raun­ina á föstu­dag.

Erdogan til­kynnti um neyð­ar­á­standið í sjón­varps­við­tali í gær­kvöld við arab­ísku sjón­varps­stöð­ina Al-Jazeera. Þessar breyt­ingar auð­velda for­set­anum að leita uppi alla þá sem hann grunar um að hafa tekið þátt í valda­ránstil­raun­inni. Erdogan und­ir­strik­aði þó í við­tal­inu að reglur lýð­ræð­is­ins yrðu enn virtar.

Guardian greinir frá því að sam­kvæmt 121. grein stjórn­ar­skrár Tyrk­lands er neyð­ar­á­standi lýst. Þingið þarf að sam­þykkja beiðn­ina og það má ekki vara lengur en í hálft ár. Það veitir ráða­mönnum, undir boð­valdi for­set­ans, vald til að koma á lögum sem eru sniðin að ástand­inu.

Mats­fyr­ir­tækið Standard and Poor's lækk­aði í gær láns­hæf­is­ein­kunn tyrk­neska rík­is­ins. Matið lækkar úr BB plús í BB með nei­kvæðum horfum og færir matið þar með í átt að rusl­flokki. Þá lok­uðu tyrk­nesk stjórn­völd á aðgang að síðu Wikileaks í gær, nokkrum klukku­stundum eftir að sam­tökin láku um 300.000 tölvu­póstum frá Rétt­lætis- og upp­bygg­ing­ar­flokknum, AKP, sem er í meiri­hluta á þing­inu. Yfir 50.000 manns hafa verið hand­teknir eða reknir úr störfum í Tyrk­landi síðan á föstu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár