Segir stöðugleikaframlag ekki fela í sér afslátt af skatti

Benedikt Árnason, efna­hags­ráð­gjafi Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, segir það rangt að slitabú föllnu bank­anna njóti afsláttar af stöð­ug­leika­skatti ef þau greiða stöð­ug­leika­fram­lag í stað­inn. Þetta segir Benedikt í svari við fyr­ir­spurn Frétta­blaðs­ins til for­sæt­is­ráð­herra vegna umsagnar InDefence-hóps­ins um frum­varp um stöð­ug­leika­skatt. Það er mat hóps­ins að tryggja eigi að samn­ingar um mæt­ingu stöð­ug­leika­skil­yrðum skili jafn miklu í rík­is­kass­ann og stöð­ug­leika­skattur, en fram hefur komið að skatt­ur­inn verður slita­bú­unum dýr­ari en samn­inga­leiðin. Um 400 millj­arða króna tekju­munur er sagður vera á leið­unum.

Benedikt segir í svari til Frétta­blaðs­ins að um sé að ræða tvær ólíkar en jafn­gildar aðferðir út frá hags­munum þjóð­ar­bús­ins. Skatt­ur­inn sé ein­skiptis ráð­stöfun sem taki mið af stöðu hvers skatt­að­ila um næstu ára­mót en taki aftur á móti ekki til­lit til áhættu þjóð­ar­bús­ins vegna virð­is­breyt­inga á eignum slita­bú­anna til fram­tíðar. „Ólíkt skatt­inum draga stöð­ug­leika­skil­yrðin úr þess­ari greiðslu jöfn­uð­ar­á­hættu til fram­búðar,“ segir hann. Skatt­ur­inn geti gefið fleiri krónur í rík­is­kass­ann en stöð­ug­leika­skil­yrðin dragi veru­lega úr lengri tíma áhættu.

InDefence-hóp­ur­inn hefur verið mjög áber­andi í íslensku sam­fé­lagi und­an­farin ár. Hópurinn varð fyrst til í októ­ber 2008 þegar nokkrum ein­stak­lingum ofbauð fram­ganga breskra stjórn­valda gagn­vart Íslandi þegar landið beitti hryðju­verkarlögum gegn Íslandi vegna banka­hruns­ins. InDefence barð­ist síðan hat­ramm­lega gegn Icesave-samn­ing­unum og stóð meðal ann­ars fyrir und­ir­skrift­ar­söfn­unum gegn sam­þykkt þeirra.

Bæði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra og Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður hans, voru áber­andi í starfi InDefence hér á árum áður. Sigurður Hann­es­son, einn vara­for­manna fram­kvæmda­hóps um losun hafta, sem vann til­lögur um stöð­ug­leika­skil­yrði og mögu­legan stöð­ug­leika­skatt, kom einnig að starfi hóps­ins. Sigurður er einn nán­asti efna­hags­ráð­gjafi og trún­að­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra. Hann tekur auk þess virkan þátt í flokks­starfi Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár