Ekki til þess fallið að efla samstöðu að leyfa fótbolta en banna annað

Þingmenn Við­reisnar og Sam­fylk­ingar gagn­rýndu ósam­ræmi varð­andi íþrótta­iðkun í hertum reglum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í umræðum um störf þings­ins í morgun. Hanna Katrín Frið­riks­son segir að það verði að vera „system i gal­skapet“ – sam­ræmi í vit­leys­unni.

Fótbolti og aðrar utanhússíþróttir eru leyfilegar á höfuðborgarsvæðinu, en innanhússíþróttir ekki.
Fótbolti og aðrar utan­húss­í­þróttir eru leyfi­legar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en inn­an­húss­í­þróttir ekki. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­maður Við­reisnar og Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar gagn­rýna báðar þá ákvörðun heil­brigð­is­ráð­herra að víkja að hluta frá ráð­legg­ingum sem komu fram í minn­is­blaði sótt­varna­læknis varð­andi íþrótta­iðkun, í þeirri reglu­gerð um hertar aðgerðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem kynnt var í gær­kvöldi. Gagnrýni þing­mann­anna kom fram í umræðum um störf þings­ins á Alþingi í morgun.[links]

Samkvæmt regl­unum sem tóku gildi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag er lík­am­rækt og íþrótta­starf inn­an­dyra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu óheim­ilt inn­an­dyra, en íþróttir eru heim­ilar utandyra, þar á meðal fót­bolti. Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis um hertar aðgerðir var hins vegar mælt með því að öllu keppn­i­starfi í íþróttum yrði frestað um 2 vikur. Eftir því var ekki farið hvað íþróttir utandyra varðar.

„Í stuttu máli, til þess að flækja þetta ekki frekar, er fót­bolti leyfður og ekki aðrar íþrótta­greinar. Munurinn er sagður vera að fót­bolti er stund­aður utandyra, aðrar inn­an­dyra, samt er sundið bannað – og svona mætti lengi telja. Þetta er ekki til þess fallið að efla sam­stöðu þjóðar sem fyrst og fremst þarf á sam­stöðu að halda til þess að kom­ast í gegnum þetta,“ sagði Hanna Katrín. 

Hún sagð­ist bíða spennt eftir því að sjá hvernig heil­brigð­is­ráðu­neytið myndi taka í óskir íþrótta­hreyf­inga sem alla jafna stunda íþróttir sínar inn­an­húss, um að fá að leika íþróttir sínar utandyra.

[adspot]

„Það verður að vera eitt­hvað „system i gal­skapet“ (í. sam­ræmi í vit­leys­unni) en ekki handa­hófs­kenndar ákvarð­anir þegar þær varða hags­muni jafn margra og við verðum að treysta því að heil­brigð­is­yf­ir­völd hafi ein­hverja reglu á hlut­unum en séu ekki bara hlaupa á eftir þeim sem kalla hæst hverju sinni,“ sagði Hanna Katrín.

Mega leikmenn sem búa á höfuðborgarsvæðinu spila körfu með Njarðvík?

Helga Vala sagði að „óreiða í upp­lýs­ingum“ væri algört lyk­il­mein í sam­stöðu þjóð­ar­innar. Hún sagði að ólíkar reglur fyrir ólík land­svæði – eða ólíkar reglur fyrir ólíkar íþrótta­greinar – vektu upp tor­tryggni í garð þeirra aðgerða sem gripið er til.

Svörin sem lík­ams­rækt­ar­fröm­uðir á Akureyri hefðu fengið um helg­ina, þegar þeir gagn­rýndu að þurfa að loka hjá sér þar sem það væri lítið smit, hefðu verið þau að það dug­aði lítt að loka bara á einum stað en ekki öðrum.

Hún sagði að íþrótta­fé­lög í dag væru hugsi yfir þeim skila­boðum sem borist hafa, því nú megi ekki leika inn­an­húss­í­þróttir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en þeir sem stunda slíkar í Keflavík, Borg­ar­nesi, Njarðvík og Grinda­vík megi áfram stunda sínar íþróttir, „algjör­lega óháð því hvar íþrótta­fólkið býr sem spilar með umræddum félögum.“

„Þetta fær mig til að vera aðeins hugsi um hvort við séum að lenda í upp­lýs­inga­óreiðu eða reglu­óreiðu og ég held að stjórn­völd verði að grípa þarna inn í og láta skyn­sem­ina taka yfir en ekki póst­númer,“ sagði Helga Vala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár