Ekkert húsnæðisfrumvarp náði fram að ganga - þarf að leggja fram aftur í haust

Ekkert af fjórum hús­næð­is­frum­vörpum Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, náði fram að ganga á þingi í vetur, þvert á yfir­lýs­ingar. Þingi var slitið í gær og kemur saman í sept­em­ber. Eygló hafði talað um það í vetur að hús­næð­is­málin yrði að klára á þessu þingi og að jafn­vel ætti að halda sum­ar­þing til þess að klára þau. Jafnvel þótt þingið hafi starfað langt fram á sumar komust málin ekki úr nefnd.

Í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar voru boðuð fjögur frum­vörp um hús­næð­is­mál á liðnum vetri. Það voru frum­varp til laga um hús­næð­is­bætur, um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög, um breyt­ingu á húsa­leigu­lögum og um hús­næð­is­mál, en hið síð­ast­nefnda fjallar um stofn­styrki til félags­legs leigu­hús­næðis. Breyt­ingar á húsa­leigu­lögum og frum­varp um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög komu inn í þingið 1. apríl. Hins tvö frum­vörpin létu hins vegar á sér standa, eða þar til frum­varp um hús­næð­is­bætur kom inn í þingið þann 8. júní. Þá var orðið ljóst að frum­varp um stofn­styrki yrði ekki lagt fram fyrr en í haust. Þrjú frum­varpanna komu sem sagt fram, og þau voru öll til umfjöll­unar í vel­ferð­ar­nefnd þegar þingið lauk störfum. Því er ljóst að leggja þarf þau fram aftur á haust­þing­inu.

Deilur milli ráðuneyta og ráðherra


Frum­varpanna tveggja sem ekki komu fram í vor var beðið lengi. Þau höfðu bæði verið boðuð á haust­þingi í fyrra. Þegar ljóst var að svo yrði ekki átti frum­varp um hús­næð­is­bætur að koma fram í febr­úar og frum­varp til laga um stofn­fram­lögin að koma fram í mars.

Fjár­mála­ráðu­neytið greindi Kjarn­anum frá því þann 15. maí að frum­varp um stofn­styrki hefði verið dregið til baka úr kostn­að­ar­mati í ráðu­neyt­inu og ekki væri von á því að það yrði lagt fram aftur á þessu þingi, verið væri að skoða mjög breytta útgáfu af því frum­varpi. Þegar svarið barst frá ráðu­neyt­inu höfðu frum­vörpin tvö verið í kostn­að­ar­mati þar í sjö vikur. Fjár­mála­ráðu­neytið sagði að við grein­ingu á frum­varp­inu hafi vaknað mörg álita­efni og í kjöl­farið hafi vel­ferð­ar­ráðu­neytið hætt við að leggja fram frum­varpið.

Fjár­mála­ráðu­neytið hafði líka til skoð­unar frum­varp hús­næð­is­mála­ráð­herr­ans um hús­næð­is­bætur og í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins var vel­ferð­ar­ráðu­neytið gagn­rýnt, og sagt að vinnsla hafi tekið mik­inn tíma þar sem skort hafi mjög á talna­legar grein­ingar á áhrifum frum­varps­ins.

Í kjöl­farið á þessum fréttum þvertók Eygló fyrir að hún hefði dregið nokkuð til baka. „Fjár­mála­ráðu­neytið hefur óskað eftir því að ég aft­ur­kalli frum­vörpin, ég hef hafnað því. Sú beiðni var ítrekuð gagn­vart stofn­fram­lög­unum en ég hef hafnað því að kalla þessi frum­vörp til baka og óskað eftir því að fá kostn­að­ar­mat á þau,“ sagði Eygló í sam­tali við Kjarnann þá.

Hún sagð­ist þá vera reiðu­búin að gera breyt­ingar á frum­vörp­unum til að koma til móts við aðila vinnu­mark­að­ar­ins og sagði frum­vörp sína geta verið inn­legg stjórn­valda í kjara­deil­urnar sem þá ríktu. „Ef hins vegar það næst ekki nið­ur­staða á vinnu­mark­aði þannig að þetta verði hluti af okkar fram­lagi inn í þær deilur, þá mun ég leggja fram mín frum­vörp óbreytt.“ Þá var komið að Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra, sem sagði eftir ummæli Eyglóar að fram­ganga hennar kæmi honum veru­lega á óvart. Hennar mál eins og önnur þurfi að vera full­unnin áður en kostn­að­ar­mat á þeim sé fram­kvæmt og Eygló þyrfti að sætta sig við að hennar mál séu unnin eftir sömu reglum og önnur.

Voru hluti af sátt á vinnumarkaði


Þann 28. maí kynnti rík­is­stjórnin svo sínar aðgerðir til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga. Þar á meðal var yfir­lýs­ing rík­is­stjórn­ar­innar um hús­næð­is­mál. Þar var meðal ann­ars að finna lof­orð um þessi tvö mál, stofn­styrki til upp­bygg­ingar félags­legs leigu­í­búða­kerfis og nýtt hús­næð­is­bóta­kerfi. Í yfir­lýs­ing­unni kemur fram að frum­varpið um hús­næð­is­bætur ætti að að koma fyrir vor­þing í ár og önnur frum­vörp á haust­þingi, þau ætti að afgreiða fyrir ára­mót.

Þann 8. júní var svo frum­varpið um hús­næð­is­bætur lagt fram á þing­inu, þrátt fyrir að umsögn fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins um það hefði sýnt að ráðu­neytið hefði miklar efa­semdir um það. Meðal ann­ars var sagt að sam­kvæmt grein­ingum myndi nið­ur­greiðsla húsa­leigu verða hlut­falls­lega meiri eftir því sem tekjur heim­il­is­ins væru hærri. Það er í and­stöðu við yfir­lýst mark­mið frum­varps­ins, sem er að auka stuðn­ing við efna­m­inna fólk.

Þá sagði fjár­mála­ráðu­neytið að auk­inn rík­is­stuðn­ingur af þessu tagi muni að öllum lík­indum leiða til þess að leigu­verð hækki og það muni hagn­ast leigu­sölum. Þá munu nýju bæt­urnar ekki koma öryrkjum og öldruðum eins vel og þeim sem eru í námi eða vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár