Eygló: Hafnaði beiðnum fjármálaráðuneytis um afturköllun á húsnæðisfrumvörpum

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, seg­ist ítrekað hafa hafnað beiðnum frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu um að hún dragi til baka frum­vörp sín um hús­næð­is­mál. Hún bíði eftir kostn­að­ar­mati á þeim og þau verði lögð fram.

Fjár­mála­ráðu­neytið hefur und­an­farnar sjö vikur haft til umsagnar frum­vörp Eyglóar um hús­næð­is­bætur og um stofn­fram­lög vegna félags­legra íbúða. Í gær sagði ráðu­neytið í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið að Eygló og vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefðu dregið til baka frum­varp um stofn­fram­lög í þáver­andi mynd. Verið væri að skoða „tals­vert breytta útfærslu“ en að telja mætti „ósenni­legt úr því sem komið er að lokið verði við útfærslu á nýju frum­varpi um þennan mála­flokk ásamt umsögn um fjár­hags­á­hrif til fram­lagn­ingar á vor­þing­inu.“

Þetta segir Eygló ekki vera rétt. „Fjár­mála­ráðu­neytið hefur óskað eftir því að ég aft­ur­kalli frum­vörpin, ég hef hafnað því. Sú beiðni var ítrekuð gagn­vart stofn­fram­lög­unum en ég hef hafnað því að kalla þessi frum­vörp til baka og óskað eftir því að fá kostn­að­ar­mat á þau,“ segir Eygló í sam­tali við Kjarnann. Aðspurð hvers vegna svo mis­vísandi svör komi úr ráðu­neyt­unum segir Eygló að fjár­mála­ráðu­neytið verði að svara fyrir það hvers vegna það hafi gefið þau svör sem gefin voru í gær. Hún segir þó að sam­skipti hennar við Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafi verið „með ágætum“.

Tilbúin að gera breytingar fyrir vinnumarkaðinn


Eygló seg­ist þó vera til­búin að gera breyt­ingar á frum­vörp­unum til að koma til móts við aðila vinnu­mark­að­ins. „Við höfum átt núna í nokkrar vikur í mjög miklum og góðum sam­tölum við aðila vinnu­mark­aðr­ins þar sem ég lýsti því yfir að ég væri til­búin til þess að gera breyt­ingar á mínum frum­vörpum til þess að koma til móts við þeirra óskir. Hins vegar hef ég lagt áherslu á það að fá kostn­að­ar­mat á mín frum­vörp til þess að við getum þá líka áttað okkur á því hver er kostn­að­ar­auk­inn við það að koma til móts við þessar kröfur.“ Hún segir áherslu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar vera að lækka hús­næð­is­kostnað hjá þeim sem eru með lægstu tekj­urnar og það sé hún mjög viljug að koma til móts við. Aðal­at­riðið sé að bæta stöð­una á hús­næð­is­mark­aði, vinna á biðlistum eftir félags­legu hús­næði og ná niður kostn­aði hjá þeim tekju­lægstu.

„En það teng­ist nátt­úru­lega því að við séum hér að fara að semja á grund­velli efna­hags­stöð­ug­leika, að við séum að huga að fólki sem er með lægstu og með­al­tekj­urnar og að allir aðilar nái saman. Allir gefi eitt­hvað eftir og allir komi með eitt­hvað að borð­inu. Ef hins vegar það næst ekki nið­ur­staða á vinnu­mark­aði þannig að þetta verði hluti af okkar fram­lagi inn í þær deilur, þá mun ég leggja fram mín frum­vörp óbreytt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár