Sigríður auglýsir aftur eftir upplýsingafulltrúa

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hyggst aug­lýsa aftur eftir upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins, en staðan var fyrst aug­lýst laus til umsóknar í mars.

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hyggst aug­lýsa aftur eftir upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins, en staðan var fyrst aug­lýst laus til umsóknar í mars. Kjarninn greindi frá því að 23 hefðu sótt um þá.

Í frétt RÚV um málið segir að umsækj­endum hafi verið til­kynnt um þetta með tölvu­pósti frá mannauðs­fyr­ir­tæk­inu Attentus í dag. Þar kom fram að aðeins hluti umsókn­anna hafi upp­fyllt þau hæfn­is­skil­yrði sem til­greind voru í aug­lýs­ing­unni. Enginn hafi verið boð­aður í við­tal vegna starfs­ins.

„Ráðu­neytið telur vegna þessa rétt að útvíkka hæfniskil­yrði og gera ítar­legri grein fyrir því í hverju starfið felst, til að freista þess að hafa úr stærri hópi umsækj­enda að velja,“ segir í tölvu­póst­inum. Þess megi vænta að ný aug­lýs­ing birt­ist á laug­ar­dag­inn næsta.

Jóhannes Tómasson sem gegnt hefur stöðu upp­lýs­inga­full­trúa sam­ein­aðs ráðu­neytis dóms­mála og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­mála síð­ustu 12 ár hefur þegar látið af störfum.

Þessir sóttu um stöð­una sem aug­lýst var í mars:

Aldís Gunn­ars­dóttir

Auð­unn Arn­órs­son

Berg­lind Pét­urs­dóttir

Björn Frið­rik Brynj­ólfs­son

Björn Sig­urður Lár­us­son

Eyþór Gylfa­son

Gró Ein­ars­dóttir

Guð­munda Sig­urð­ar­dóttir

Guð­mundur Albert Harð­ar­son

Guð­mundur Heiðar Helga­son

Guð­rún Óla Jóns­dóttir

Hulda Birna

Inga Dóra Guð­munds­dóttir

Kol­brún G. Þor­steins­dóttir

Ragnar Auð­unn Árna­son

Sól­veig Fríða Guð­rún­ars­dótt­ir

Stef­anía Hrund Guð­munds­dóttir

Tinna Garð­ars­dóttir

Torfi Geir Sómon­ar­son

Viktor H. And­er­sen

Þor­björn Þórð­ars­son

Þór­dís Vals­dóttir

Ösp Ásgeirs­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár