Hátt hlutfall ferðamanna á móti íbúum

Hlutfall ferða­manna á móti íbúum er lang­hæst á Íslandi í sam­an­burði við vin­sæl­ustu ferða­manna­þjóðir Evrópu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íslands­banka um ferða­þjón­ust­una 2018.

Hlutfall ferða­manna á móti íbúum er lang­hæst á Íslandi í sam­an­burði við vin­sæl­ustu ferða­manna­þjóðir Evrópu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íslands­banka um ferða­þjón­ust­una 2018.

Í skýrsl­unni segir að hlut­fallið gefi vís­bend­ingu um álag á inn­viði við­kom­andi þjóðar. Innviðir fámennra þjóða séu eðli máls­ins sam­kvæmt við­kvæm­ari fyrir mik­illi og hraðri fólks­fjölgun en inn­viðir þeirra þjóða sem fjöl­menn­ari eru.

„Þannig hefur t.d. reynst Íslend­ingum erfitt að mæta vinnu­afls­þörf í ferða­þjón­ustu og bygg­ing­ar­iðn­aði nema með aðfluttu vinnu­afli sam­hliða hraðri fjölgun ferða­manna und­an­farið. Eft­ir­spurn eftir atvinnu- og íbúð­ar­hús­næði hefur einnig auk­ist sam­hliða upp­gangi ferða­þjón­ust­unnar. Álag á flug- og vega­sam­göngur hefur auk­ist og skap­ast hefur aukin þörf á gisti­veit­inga- og afþrey­inga­tengdri þjón­ustu.“

Þegar Ísland er borið saman við vin­sæl­ustu ferða­manna­þjóðir í Evrópu sést að Ísland er ennþá lít­ill fiskur í stórri tjörn. Hingað koma um 3 pró­sent af þeim fjölda ferða­manna sem ferð­ast til Frakk­lands sem er vin­sæl­asti áfanga­staður í Evrópu fyrir ferða­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár