Strætó segir „ekki verjandi“ að aka tómum vögnum um göturnar

Fram­kvæmda­stjóri Strætó segir að það sé „ekki verj­andi“ að aka um með vagn­ana tóma. Eft­ir­spurn eftir stræt­ó­ferðum hefur hríð­fallið á far­sótt­ar­tímum og auk­ist tak­markað í þess­ari viku. Neyt­enda­sam­tökin gagn­rýna þjón­ustu­skerð­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

Strætó hefur ekið eftir laugardagsáætlun sinni, sem þýðir skerta ferðatíðni, frá því að kórónuveiran fór að láta á sér kræla.
Strætó hefur ekið eftir laug­ar­dags­á­ætlun sinni, sem þýðir skerta ferða­tíðni, frá því að kór­ónu­veiran fór að láta á sér kræla. Mynd: Bára Huld Beck

Jóhannes Svavar Rún­ars­son fram­kvæmda­stjóri Strætó bs. segir við Kjarnann að eft­ir­spurn eftir stræt­ó­ferðum hafi ekki auk­ist nema lít­il­lega frá því að slakað var á sam­komu­bann­inu í upp­hafi vik­unnar, en eft­ir­spurnin hafi fallið um 65 pró­sent eftir að far­sóttin fór að geisa í upp­hafi mars­mán­aðar. Ekki sé verj­andi að aka tómum vögnum um göt­urnar.

Neyt­enda­sam­tökin gagn­rýna Strætó harð­lega í færslu á vef sam­tak­anna í dag og segir Breki Karlsson for­maður þeirra í sam­tali við Kjarnann að kvart­anir hafi borist frá neyt­endum vegna skertrar þjón­ustu, en Strætó hefur ekið um eftir laug­ar­dags­á­ætlun sinni und­an­farnar vikur, sem þýðir að ferða­tíðni er skert og sumar leiðir aka alls ekki. Þó byrjar akst­ur­inn fyrr á morgn­ana en í venju­legri laug­ar­dags­á­ætlun.

Neyt­enda­sam­tökin gagn­rýna að Strætó hafi ekki svarað fyr­ir­spurnum þeirra um málið og hver réttur neyt­enda sé vegna skertrar þjón­ustu. „Núna þegar búið er að lyfta sam­komu­bann­inu og fólk er að mæta í vinnu og fara í skóla og svo­leiðis hníga engin rök að því að halda áfram að bjóða upp á skerta þjón­ustu. Við höfum sent fyr­ir­spurnir á Strætó sem við höfum ekki fengið svör við,“ segir Breki.

Hann segir einnig að svo virð­ist sem um hag­ræð­ing­ar­að­gerð sé að ræða hjá Strætó, sem komi ekki far­sótt­inni við. Allavega taka sam­tökin því þannig, þar til Strætó svari fyr­ir­spurn sam­tak­anna um stöðu neyt­enda.

Jóhannes segir að það sé „ekki verj­andi“ að aka um um með vagn­ana tóma vagna og því verði áfram um sinn ekið eftir laug­ar­dags­á­ætlun, en þó með „fullt af auka­vögnum úti“ til að tryggja að hægt sé að virða þær tak­mark­anir sem eru í gildi vegna sótt­varna­ráð­staf­ana, en ein­ungis 30 manns mega vera í sama vagni þessa dag­ana.

Strætó horfir fram á 420 til 610 milljóna króna tekjutap vegna faraldursins

Á stjórn­ar­fundi Strætó bs. 17. apríl greindi Jóhannes frá því að gert sé ráð fyrir því að tekjur árs­ins verði 420 til 610 millj­ónum lægri en áætl­anir gerðu ráð fyrir. Það mat byggði á þeirri sviðs­mynd að þjón­ustu­stig yrði komið í eðli­legt horf í síð­asta lagi í ágúst.

Í fund­ar­gerð­inni sagði að til stæði að færa leiða­kerfið í fyrra horf á næstu vikum og skipa sér­stakan vinnu­hóp til þess að fara yfir hvernig það verði mögu­legt.

Jóhannes segir að eft­ir­spurnin verði að rísa nokkuð til þess að akst­urs­á­ætl­unin taki breyt­ingum. Aðspurður segir hann að fáir not­endur Strætó hafi kvartað til fyr­ir­tæk­is­ins að und­an­förnu, kannski einn til tveir á dag, og það hafi aðal­lega verið ábend­ingar um að of margir séu í vögn­unum. Ekki hafi borið á mik­illi óánægju með skerta ferða­tíðni.

Breki segir að slíkar kvart­anir hafi borist til Neyt­enda­sam­tak­anna og einnig kvart­anir yfir því að 30 far­þega reglan hafi verið brotin.

Í dag birta Neyt­enda­sam­tökin mynd sem félags­maður tók í þétt­setnum stræt­is­vagni, að þeirra sögn í þess­ari viku.

„Félags­mað­ur­inn taldi a.m.k. 33 far­þega, en Strætó er ein­ungis heim­ilt að ferð­ast með 30 manns. Vandinn krist­all­ast í því að skortur er á vögnum þar sem mun færri mega ferð­ast með hverjum og einum þeirra en áður,“ segir í færslu Neyt­enda­sam­tak­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár