„Á ég að gera þetta svona eða hinsegin, hætta við eða breyta?“

Jón Óskar, sá merki list­málari á jafnframt að baki listrænan ferli í heimi dagblaða. Nú hefur hann opnað sýningu á Vinnu­stofu Kjarvals. Hún er opin öllum – í salnum Fantasíu sem er rými fyrir menningar­bræðing. Ekki er úr vegi að taka púlsinn á Jóni Óskari og rabba um líf og list.

Jón Óskar:
Jón Óskar: „Ég hef alltaf verið hrif­inn af þessu almenna. Því sem skiptir ekki máli. Í þessu flæði sem þú lifir.“ Mynd: Golli

Jón Óskar lífgar upp á grámósku­legan dag þegar hann mætir í viðtal í eldappelsínugulum jakka og fyrsta spurningin dynur strax á honum: Er rétt að þú hafir skapað Loka á baksíðu DV?

Hann jánkar því og segir að Loki hafi orðið til í kringum 1977.

„Ég byrjaði á Vísi árið 76, og hann varð til ári seinna. Svolítið fyndinn karakter að því leyti að hann var notaður til að endur­spegla fréttir dagsins, vanalega á baksíðunni. Hinir og þessi blaðamenn skrifuðu texta við hann. Þannig virkaði hann eins og algjör geðsjúklingur því sumir blaða­mennirnir voru með flotta vinkla en aðrir voru bara svo flatir. Eiginlega varð hann forvitnilegri fyrir vikið. Loki var raunar hugmynd Ólafs Ragnars­sonar, síðar bóka­útgefanda. Hann var ritstjóri þarna, þá. Og Loki var teiknaður á Langholts­vegi 44, þar sem ég bjó þá.“

Eitthvað fallegt í draslinu

Loki lifir í minni …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár