Að minnsta kosti fimm þúsund glæpasamtök í Evrópu

Europol hefur varað við því að fjöldi glæpa­gengja hafi auk­ist veru­lega, og sér­stak­lega hafi smygl á fólki og netárásir auk­ist veru­lega. Tækni­geta skipu­lagðra glæpa­sam­taka er alltaf að aukast, og þar með geta þeirra til að stunda glæpi í gegnum netið.

Tæplega 70 þúsund einstaklingar eru grunaðir um að tengjast smygli á fólki yfir landamæri.
Tæplega 70 þús­und ein­stak­lingar eru grun­aðir um að tengj­ast smygli á fólki yfir landa­mæri. Mynd: EPA

Evrópska lög­reglan Europol hefur varað við því að fjöldi glæpa­gengja í Evrópu hafi auk­ist upp í að minnsta kosti fimm þús­und. Sér­stak­lega sé ógn­vekj­andi aukn­ing í smygli á fólki og netárásum á fyr­ir­tæki þar sem gögn eru tekin í gísl­ingu.

Europol segir að búið sé að bera kennsl á 17.500 ein­stak­linga sem eru grun­aðir um að tengj­ast ólög­legu smygli á fólki yfir landa­mæri, til við­bótar við 50 þús­und manns sem búið var að bera kennsl á árið 2014. Guardian greinir frá þessu. Rob Wainwright, yfir­maður Europol, segir að greini­leg merki sjá­ist um að glæpa­menn hafi séð aukin tæki­færi til að græða pen­inga á því að smygla flótta- og föru­fólki.

Þó er það svo að tækni er það sem helst gerir glæpa­mönnum kleift að brjóta lög, sam­kvæmt skýrslu Europol. Það séu nokk­urs konar nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki í glæpum sem fari um djúp­netið. Þar sé mikið fram­boð á fölsuðum skjölum, margir fíkni­efna­salar noti það og mikil aukn­ing sé að verða í ransomware – sem er þegar gögn eru tekin í gísl­ingu gegn lausn­ar­gjaldi.

Hingað til hafi tækni af þessu tagi fyrst og fremst beinst gegn litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum. Wainwright segir hins vegar að tækni­getu skipu­lagðra glæpa­sam­taka sé alltaf að fara fram og brátt muni þau geta kom­ist í gegnum varnir stórra fyr­ir­tækja eins og banka. „Stóru sam­steyp­urnar þurfa að taka sömu ákvarð­anir og litlu fyr­ir­tækin gera í dag: Borgarðu lausn­ar­gjaldið eða ekki? Það er erfið ákvörðun og margt í því sem þarf að hafa í huga.“

Europol segir einnig að þetta kalli á við­brögð frá lög­gjöfum, um það hvernig lög­reglu­yf­ir­völd geti borið kennsl á glæpa­menn sem feli sig með þessum hætti. Rétt­inda­sam­tök hafa aftur á móti áhyggjur af því að laga­breyt­ingar gætu leitt til þess að lög­reglu­yf­ir­völd beini sjónum sínum að póli­tískum aðgerðasinnu, lög­fræð­ingum og blaða­mönnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár