Þingmenn vilja stofna fulltrúaþing á vegum SÞ

Smári McCarthy, þing­maður Pírata, er einn þeirra 33 þing­manna sem skrifað hefur undir áskorun þess efnis að stofnað verði nýtt full­trúa­þing á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna. Hann segir Alls­herj­ar­þingið mark­laust.

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York.
Alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York. Mynd: EPA

Þrjátíu og þrír þing­menn hvaðanæva að úr heim­inum vilja að stofnað verði nýtt full­trúa­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna. Smári McCarthy, þing­maður Pírata, er einn þeirra sem skrifar undir áskorun þess efnis en frá þessu var greint í frétt The Guardian í síð­ustu viku.

Smári segir í sam­tali við Kjarnann að hug­myndin hafi sprottið upp í gegnum sam­tal þing­manna um heim allan. Margir af þeim hafi talið að Alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna starfi ólýð­ræð­is­lega og að bæta þyrfti úr því. Almenn­ingur viti ekki hvert hlut­verk þings­ins sé og að stærstu ríkin taki ekki mark á því, til að mynda Banda­ríkin og Kína.

Hug­myndin sé sú að gera Alls­herj­ar­þingið að ein­hvers konar efri deild og búa til neðri deild með beinum kosn­ingum í hverju landi. „Þetta mun færa stofn­un­ina nær almenn­ingi,“ telur Smári og bætir því við að hún myndi hafa í fram­hald­inu meira vægi í alþjóð­legu sam­hengi. Hann segir að Ísland myndi hugs­an­lega fá tvo full­trúa á þingið og myndi það hjálpa smærri ríkjum að nýta þennan vett­vang.

Tilgangurinn að auka lýðræðislega aðkomu almennings

Í frétt The Guardian kemur fram að til­gangur þings­ins yrði að auka lýð­ræð­is­lega aðkomu almenn­ings að heims­mál­unum og ákvarð­ana­töku Sam­ein­uðu þjóð­anna. Í áskorun þing­mann­anna segir að Sam­ein­uðu þjóð­irnar og lýð­ræði liggi undir árásum. „Hinir vana­legu við­skipta­hættir og háleit orð­ræða duga ekki til að mæta þess­ari ógn. Þrátt fyrir margar við­var­anir og ráð­legg­ingar hefur lítið verið gert til að búa Sam­ein­uðu þjóð­irnar undir þessa áskorun. Tíminn fyrir sinnu­leysi og umkvart­anir er lið­inn. Nú er þörf fyrir djarfa for­ystu,“ segir á áskor­un­inni.

Varað hefur verið við því að Sam­ein­uðu þjóð­irnar þyrftu að gera meira til að styrkja stjórn­sýslu á heims­vísu og takast á við lýð­ræð­is­halla. Nefnd sem fjall­aði um málið fyrir um fimmtán árum síðan full­yrti að mark­viss­ara sam­starf með þing­mönnum, þjóð­þingum og bæj­ar­fé­lögum á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna myndi styrkja stjórn­sýsl­una á heims­vísu, takast á við lýð­ræð­is­halla í sam­skiptum milli rík­is­stjórna, treysta full­trúa­lýð­ræðið í sessi og tengja Sam­ein­uðu þjóð­irnar betur inn í almenn­ings­á­litið. Núver­andi fyr­ir­komu­lag dygði ekki til.

Vilja koma hnattvæðingunni undir lýðræðislega stjórn

Þegar alþjóð­leg her­ferð fyrir full­trúa­þing á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNPA) var sett á lagg­irnar fyrir ell­efu árum síðan sagði vernd­ari sam­tak­anna, Boutros Boutros-Ghali, að stuðla þyrfti að lýð­ræð­i­svæð­ingu hnatt­væð­ingar áður en hnatt­væð­ingin næði að eyði­leggja stoðir lýð­ræð­is­ins.

„Nú horfum við áhyggju­full upp á þessa þróun eiga sér stað. Stofnun full­trúa­þings á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna er orðin ómissandi liður í þeirri við­leitni að koma hnatt­væð­ing­unni undir lýð­ræð­is­lega stjórn.

Við, und­ir­rit­aðir þing­menn, ítrekum stuðn­ing okkar við það mark­mið að stofna UNPA til að auka lýð­ræð­is­lega aðkomu almenn­ings að heims­mál­unum og ákvarð­ana­töku Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Við bjóðum öðrum lýð­ræð­is­lega kjörnum þing­mönnum hvaðanæva að úr ver­öld­inni að ganga til liðs við UNPA-þing­hóp­inn okkar til að styrkja og sam­hæfa við­leitni okkar. Saman getum við myndað þann póli­tískan skrið­þunga og þrýst­ing sem nauð­syn­legur er til að ná mark­miði okkar,“ segir í áskorun þing­mann­anna.

Vilja víðtækar umbætur á næsta ári

Þing­menn­irnir eru þeirrar skoð­unar að nota beri 75 ára afmæli Sam­ein­uðu þjóð­anna árið 2020 sem tæki­færi til að taka mið af aðstæðum og hleypa af stokk­unum víð­tækum umbótum, þar á meðal stofnun UNPA.

Þau kalla jafn­framt eftir því að aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna, for­seti Alls­herj­ar­þings­ins, þjóð­höfð­ingjar og rík­is­stjórnir þeirra og utan­rík­is­ráðu­neyti, auk full­trúa aðild­ar­ríkja Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York, hefji nauð­syn­legar aðgerðir til að und­ir­búa áhrifa­ríkan leið­toga­fund til umbóta og til að stofna UNPA.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár