Þrengt að umboðsmanni

Umboðs­maður Alþingis mun ekki fá nægi­legt fjár­magn til þess að sinna frum­kvæð­is­at­hug­unum. Ákvörð­unin kemur í kjöl­far harðrar gagn­rýni flokks­manna rík­is­stjórn­ar­flokk­anna á störf umboðs­manns í leka­mál­inu, sem sneri að ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar.

Umboðsmaður Alþingis
Umboðs­maður Alþingis Tryggvi Gunn­ars­son var harð­lega gagn­rýndur fyrir að opin­bera athuga­semdir við störf Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra.

Alþingi sam­þykkti breyt­ingar á fjár­lögum næsta árs síð­ustu helgi eftir margra daga umræður. Fallið var frá breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta fjár­laga­nefndar um að skera fram­lög til emb­ættis umboðs­manns Alþingis um þrettán millj­ónir króna. Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd lagði til að emb­ættið fengi fimmtán millj­óna króna við­bót­ar­fram­lag en ekki náð­ist sam­staða um það í fjár­laga­nefnd. Þetta er sú upp­hæð sem umboðs­maður hefur sagt að hann þurfi til þess að geta sinnt frum­kvæð­is­at­hug­unum.

Embætti umboðs­manns Alþingis sætti harðri gagn­rýni af hálfu stjórn­ar­liða, þar á meðal for­sætis- og fjár­mála­ráð­herra, fyrir vinnu­lagið í tengslum við frum­kvæð­is­at­hugun emb­ætt­is­ins á sam­skiptum inn­an­rík­is­ráð­herra og lög­reglu­stjóra meðan á rann­sókn leka­máls­ins stóð. Í nýlegu áliti Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar kemur hins­vegar fram að verk­lag emb­ætt­is­ins hafi verið eðli­legt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár